Á fjórða hundrað vilja hænur í fóstur eftir Brúneggjamálið

357 manns ósk­uðu eftir því að fá að taka hænu í fóstur hjá Júlíusi Má Bald­urs­syni, land­náms­hænu­bónda í Þykkvabæ, eftir umfjöllun fjöl­miðla um Brúnegg í síð­ustu viku.

Hann hefur hins vegar bara tök á því að taka við um 25 manns til við­bótar við þá 75 sem fyrir voru með hænu í fóstri hjá honum. Öðrum, yfir 300 manns, býðst því að fara á biðlista eftir hænu. Með því að taka hænu í fóstur getur fólk vænst þess að fá eitt kíló af eggjum frá hæn­unni í hverjum mán­uði.

Ástæðan er fyrst og fremst Kast­ljós-þáttur sem sýndur var í síð­ustu viku þar sem fjallað var um for­dæma­laus afskipti Mat­væla­stofn­unar af eggja­búum Brú­neggja. Júlíus segir í bréfi sem hann sendi öllum þeim sem ósk­uðu eftir að taka hænu í fóstur að báðir símar hans hafi hringt við­stöðu­laust eftir þátt­inn og tölvu­póst­arnir hafi verið mörg hund­ruð. „Fólk var hrein­lega bara í losti og áfalli sem svo snérist upp í rétt­láta reiði. Reiði vegna með­ferðar á fugl­unum sem og ekki síst reiði að Mast skildi leyna þessu í allan þennan tíma,“ skrifar hann meðal ann­ars. Hann tekur einnig fram að allt horfi til betri vegar á búunum og þessi með­ferð á dýrum sé ekki til staðar í dag. Það sé léttir, þó hann sé ekki að afsaka fyrri með­ferð.

Í þætt­inum kom fram að Brú­negg hefði, að mati stofn­un­ar­inn­ar, blekkt neyt­endur árum saman með því að not­ast við merk­ingar sem héldu því fram að eggja­fram­leiðsla fyr­ir­tæk­is­ins væri vist­væn og að varp­hænur þess væru frjáls­ar. Í krafti þess kost­uðu eggin um 40 pró­sent meira en þau egg sem flögg­uðu ekki slíkri vott­un.

Kast­ljós fékk aðgang að gögnum um afskipti Mat­væla­stofn­unnar af Brú­neggjum og í þeim kom í ljós að stofn­unin hefur í tæpan ára­tug haft upp­lýs­ingar um að Brú­negg upp­fyllti ekki skil­yrði sem sett voru fyrir því að merkja vörur sem vist­væn­ar. Það væri því að blekkja neyt­end­ur. Atvinnu­vega­ráðu­neytið hafði líka þessar upp­lýs­ing­ar, en neyt­endum var ekki greint frá þeim.

Fyrir ári síðan hafi staðið til að taka yfir vörslu á hænum Brú­neggja vegna ítrek­aðra brota á lögum um með­ferð dýra, meðal ann­ars með því að vera með allt of marga fugla í eggja­hús­um. Til að koma í veg fyrir vörslu­svipt­ing­una þurftu Brú­negg að slátra um 14 þús­und fugl­um.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Neytendamál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár