Rússar ítreka hótanir gegn Dönum og Nato vegna eldflaugavarna

Þann 21. mars síð­ast­lið­inn birt­ist í dag­blað­inu Jót­land­s­póst­inum grein eftir sendi­herra Rússa í Danmörku, Mikhail Vanin. Í grein­inni segir sendi­herr­ann að ef Danir taki þátt í eld­flauga­vörnum NATO gæti Danmörk (dönsk her­skip voru sér­stak­lega nefnd) orðið skot­mark rúss­neskra kjarn­orkuflauga. Það er ekki dag­legt brauð að rúss­neski sendi­herr­ann í Danmörku skrifi greinar í dönsk dag­blöð og þessi blaða­grein vakti mikla athygli og varð umfjöll­un­ar­efni nær allra danskra fjöl­miðla.

Martin Lidegaard utan­rík­is­ráð­herra (Radikale ven­stre) sagði í við­tölum að sér væri alvar­lega brugðið og Danir gætu ekki sætt sig við jafn alvar­legar hót­anir og fram kæmu í grein sendi­herr­ans. Mette Gjerskov for­maður utan­rík­is­mála­nefndar danska þings­ins sagði tón­inn í grein sendi­herr­ans auka spenn­una milli Rúss­lands og NATO. Margir danskir þing­menn og hern­að­ar­sér­fræð­ingar tóku í sama streng. Tals­maður NATO kvaðst undr­ast þennan tón sem ekki væri til þess fall­inn að stuðla að stöð­ug­leika og trausti. Sumir veltu því fyrir sér hvort sendi­herr­anum hefði verið alvara með orðum sínum, aðrir sögðu að sendi­herra Rússa væri ekki mikið fyrir grín af þessu tagi og greinin hefði örugg­lega verið skrifuð með sam­þykki stjórn­valda í Moskvu. Frá þeim heyrð­ist hins­vegar ekk­ert fyrstu dag­ana eftir að greinin birt­ist.

[caption id="attachment_24652" align="alignnone" width="845"] Martin Lidegaard, utan­rík­is­ráð­herra Dan­merkur er ekki skemmt vegna nýlegra yfir­lýs­inga Rússa.[/caption]

Rússneska utanríkisráðuneytið staðfestir hótanir sendiherrans


Grein sendi­herr­ans í Jót­land­s­póst­inum vakti athygli víða um heim og á frétta­manna­fundi í rúss­neska utan­rík­is­ráðu­neyt­inu tæpri viku eftir að hún birt­ist var tals­maður ráðu­neyt­is­ins kraf­inn svara um hvort hót­an­irnar hefðu verið settar fram með sam­þykki rúss­neskra stjórn­valda. Tals­mað­ur­inn, Aleksandr Lukasjevitj, sagði að grein sendi­herr­ans hefði ekki verið nein reyk­sprengja heldur fúlasta alvara. Hann sagði jafn­framt að Rússar myndu ekki grípa til neinna ónauð­syn­legra aðgerða en þeir sem tækju þátt í þessu eld­flauga­varna­kerfi skyldu vita að Rússar gætu gert slíkt kerfi ónot­hæft.

Martin Lidegaard, utanríkisráðherra Danmerkur er ekki skemmt vegna nýlegra yfirlýsinga Rússa.
Martin Lidegaard, utan­rík­is­ráð­herra Dan­merkur er ekki skemmt vegna nýlegra yfir­lýs­inga Rússa.

Lukasjevitj vís­aði þarna til þess að í ágúst í fyrra sam­þykkti danska þingið að Danmörk tæki virkan þátt í eld­flauga­vörnum NATO (kjarn­orku­skild­inum svo­nefnda) „Þetta er ekki hótun, heldur aðvörun,“ sagði Lukasjevitj. Ekki lyft­ist brúnin á Dönum við þessar yfir­lýs­ingar enda ljóst að þessar „aðvar­anir“ eru settar fram með vit­und og vilja æðstu stjórn­valda í Kreml.

Tónninn er skarpari og ákveðnari en oft áður


Yfir­lýs­ing­arnar núna eru ekki þær fyrstu sem komið hafa frá Rússum, þeir hafa marg­sinnis „látið hringla í kjarn­orku­bjöll­unni,“ eins og danskur blaða­maður orð­aði það. Núna er tónn­inn hins­vegar mun bein­skeytt­ari og ákveðn­ari en áður og skemmst er að minn­ast nýlegrar heim­ilda­myndar þar sem Vladimír Pútín for­seti sagði að hann hefði verið við­bú­inn því að setja rúss­neska kjarn­orku­her­afl­ann í við­bragðs­stöðu.

Þessum ummælum for­set­ans tóku ráða­menn um allan heim vel eftir og þau vöktu ugg í brjósti margra. Ekki hefur heldur farið fram­hjá neinum að Rússar hafa á síð­ustu mán­uðum lagt aukna áherslu á að sýna mátt sinn og megin á hern­að­ar­svið­inu með fjöl­mennum her­æf­ingum sem tugir þús­unda her­manna hafa tekið þátt í. Þar hafa meðal ann­ars verið not­aðar sprengju­flug­vélar sem borið geta kjarna­odda og eld­flaugar af gerð­inni Iskander sem einnig geta borið kjarna­odda.

[caption id="attachment_10146" align="alignnone" width="4928"] Mörgum er enn í fersku minni þegar uppi varð fótur og fit í Stokk­hólmi þegar ótt­ast var að rúss­neskur kaf­bátur hefði sést í skerja­garð­inum fyrir utan höf­uð­borg­ina.[/caption]

Pútín þarf að sýna klærnar


Ýmsir sér­fræð­ingar sem þekkja vel til Rúss­lands og stjórn­mála þar í landi telja að stór­karla­legar yfir­lýs­ingar rúss­neskra stjórn­valda, með for­set­ann í far­ar­broddi, séu fyrst og fremst til „heima­brúks.“ Pútín bæði þurfi og vilji sýna rúss­neskum almenn­ingi að hann sé karl í krap­inu og yfir­lýs­ing­arnar und­an­farið séu fyrst og fremst til þess gerðar að styrkja ímynd hans heima fyrir.

Sænski herinn leitar á orustuskipum, tundurspillum og þyrlum auk þess sem meira en 200 manns leita.
Sænski her­inn leitar á orustu­skipum, tund­ur­spillum og þyrlum auk þess sem meira en 200 manns leita.

Margir Rússar sakna þeirra tíma þegar Sov­ét­ríkin og Banda­ríkin voru nefnd í sömu andránni sem heims­veldin tvö. Eftir tíma­bil umróts og nið­ur­læg­ingar (að sumra mati) sé nauð­syn­legt að Rússar skynji að landið sé risið úr öskustónni og að þeir skynji jafn­framt að það sé hinn sterki leið­togi Vladimír Pútín sem eigi heið­ur­inn af því verki. Pútín vilji jafn­framt gera leið­togum Vest­ur­landa, fyrst og fremst NATO, það ljóst að þau skuli ekki skipta sér af því sem for­set­inn kallar rúss­nesk mál­efni og vísar þar til ástands­ins í Úkraínu. Blaða­konan og stjórn­mála­skýr­and­inn Julia Latynina segir í grein í blað­inu Novaja Gaseta að allt þetta bram­bolt, hót­anir og her­æf­ingar, séu „íburð­ar­mikil svið­setn­ing“ ætluð til að skjóta Vest­ur­landa­búum skelk í bringu.

Rússar eiga ekkert svar við kjarnorkuskildi NATO


Danski hern­að­ar­sér­fræð­ing­ur­inn Johannes Riby Nordby segir að á und­an­förnum árum hafi Rússar dreg­ist aftur úr í hern­að­ar­tækn­inni og þeirra eina svar við því hafi verið kjarn­orku­vopn. Þannig hafi hald­ist ákveðið jafn­vægi, kjarn­orku­skjöld­ur­inn svo­nefndi slái nú vopnin úr höndum Rússa sem eigi ekk­ert svar við honum. Þetta sé Rússum mæta­vel ljóst og þess vegna slái þeir nú um sig með stór­yrðum og hót­unum. Það hafi iðu­lega dugað vel þótt ekki hafi alltaf verið miklar inn­stæður fyrir þeim hót­unum. „Við verðum bara að vona og treysta því að þetta sé enn einn storm­ur­inn í vatns­glasi,“ sagði danski hern­að­ar­sér­fræð­ing­ur­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár