Orkufyrirtæki sem styrkti Ólaf Ragnar er í sendinefnd hans í Víetnam

Fyr­ir­tækið Arctic Green Energy, áður Orka Energy, er í við­skipta­nefnd for­seta Íslands í opin­berri heim­sókn til Víetnam í næsta mán­uði. Fyr­ir­tækið styrkti Ólaf Ragnar um 200 þús­und krónur í síð­ustu for­seta­kosn­ingum. Ólafur Ragnar hefur stutt dug­lega við bakið á Orku Energy á liðnum árum og marg­sinnis fundað með fyr­ir­tæk­inu og for­svars­mönnum þess.

Styrkveitandi í viðskiptasendinefnd
Styrk­veit­andi í við­skipta­sendi­nefnd Arctic Green Energy, áður Orka Energy, er í við­skipta­sendi­nefnd for­seta Íslands, Ólafs Ragnars Gríms­sonar, í opin­berri heim­sókn til Víetnam í næsta mán­uði.

Orku­fyr­ir­tækið Arctic Green Energy, áður Orka Energy, er hluti af við­skipta­sendi­nefnd for­seta Íslands, Ólafs Ragnars Gríms­sonar, í opin­berri heim­sókn hans til Víetnam í næsta mán­uði. Áætlað er að und­ir­ritun samn­ings fyr­ir­tæk­is­ins við víetnam­skt fyr­ir­tæki verði hluti af dag­skrá for­seta­emb­ætt­is­ins í land­inu. Þetta kemur fram í drögum að dag­skrá heim­sóknar for­set­ans sem for­seta­emb­ættið skipu­leggur. For­svars­maður Arctic Green Energy er Haukur Harð­ar­son, sem tals­vert hefur verið til umfjöll­unar í fjöl­miðlum út af máli Illuga Gunn­ars­sonar. 

Orka Energy styrkti fram­boð Ólafs Ragnars um 200 þús­und krónur í for­seta­kosn­ing­unum um sum­arið 2012. Félagið var eitt af níu fyr­ir­tækjum sem það gerði. Arctic Green Energy, áður Orka Energy, er fyrst og fremst með starf­semi í Asíu, sér­stak­lega í Kína, og er Haukur Harð­ar­son búsettur í borg­inni Hanoi í Víetnam.

Mikill stuðningur

For­set­inn hefur stutt vel við bakið á Orku Energy á liðnum árum líkt og fjallað er um heima­síðu for­setamb­ætt­is­ins þar sem greint er frá fundum for­set­ans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár