Dómari mun skera úr hvort ríkasti maður heims verði að kaupa Twitter

Twitter mun fara fram á fyrir dómi að Elon Musk standi við kaup á fyr­ir­tæk­inu. Kaupin hafa verið í upp­námi eftir að Musk vildi draga þau til baka vegna ágrein­ings um gervi­menni.

Elon Musk, ríkasti maður heims, gerði yfirtökutilboð á Twitter í apríl. Í maí fékk hann bakþanka en nú mun Twitter láta reyna á það fyrir dómstólum að hann standi við gerða samninga.
Elon Musk, rík­asti maður heims, gerði yfir­tökutil­boð á Twitter í apríl. Í maí fékk hann bak­þanka en nú mun Twitter láta reyna á það fyrir dóm­stólum að hann standi við gerða samn­inga. Mynd: EPA

Hlut­hafar í Twitter hafa sam­þykkt að halda til streitu samn­ingi við Elon Musk, rík­asta mann í heimi, um kaup á fyr­ir­tæk­inu.

Ákvörð­unin var tekin á snörpum fjar­fundi hlut­hafa í vik­unni. Næsta skref fer fram í dóm­sal í októ­ber þar sem Twitter mun krefj­ast þess að Musk standi við upp­haf­legan samn­ing um kaup á fyr­ir­tæk­inu fyrir 44 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða sem nemur 6.127 millj­örðum króna, sem er 12 millj­örðum minna en fyr­ir­tækið er metið á í dag.

Musk keypti fyrst hluta­bréf í Twitter í upp­hafi árs og í byrjun apríl var hlutur hans í fyr­ir­tæk­inu kom­inn yfir níu pró­sent og var hann þar með orð­inn meðal stærstu hlut­hafa í Twitter og bauðst að taka sæti í stjórn fyr­ir­tæk­is­ins. Hann afþakk­aði boðið og sagði ljóst að sam­fé­lags­mið­ill­inn gæti hvorki dafnað né þjónað til­gangi sínum í núver­andi formi.

„Sta­f­ræna bæj­ar­torgið­“

Í kjöl­farið gerði hann yfir­tökutil­boð upp á 44 millj­arða Banda­ríkja­dala sem stjórn Twitter hafn­aði í fyrstu en ákvað svo að ganga að. Tilboðið vakti upp margar spurn­ingar. Hvað ætlar rík­asti maður í heimi að gera við Twitter? Sjálfur hefur hann talað fyrir minni rit­skoðun og óheft tján­ing­ar­frelsi á miðl­inum og sagst ætla að taka Twitter af mark­aði.

[adspot]Eftir að til­boðið var sam­þykkt sendi Musk frá sér yfir­lýs­ingu þar sem hann líkti Twitter við „sta­f­rænt bæj­ar­torg­“. „Tján­ing­ar­frelsi er und­ir­staða virks lýð­ræðis og Twitter er staf­ræna bæj­ar­torgið þar sem tek­ist er á um mik­il­væg mál­efni sem varða fram­tíð mann­kyns,“ var haft eftir Musk í yfir­lýs­ingu sem gefin var út eftir að yfir­tökutil­boð hans var sam­þykkt. Musk sagði mögu­leika Twitter gríð­ar­stóra og að hann væri fullur til­hlökk­unar til að vinna með fyr­ir­tæk­inu og not­endum mið­ils­ins til að láta þá verða að veru­leika.

Gervimenni settu yfirtökuna í uppnám

Yfir­takan komst þó í nokkuð upp­nám í maí, áður en hlut­hafar höfðu tekið afstöðu til til­boðs­ins, þegar Musk sak­aði Twitter um að standa í vegi fyrir því að hann fengi upp­lýs­ingar um hversu hátt hlut­fall not­enda mið­ils­ins eru gervi­menni (e. bots). Í tísti sem hann sendi frá sér greindi hann frá því að kaup hans á sam­fé­lags­miðl­inum hefðu verið sett á ís þar sem hann væri að bíða eftir gögnum sem gætu rök­stutt full­yrð­ingar Twitter um að hlut­fall gervi­menna á sam­fé­lags­miðl­inum væri innan við fimm pró­sent.

[links]Þetta var í fyrsta sinn sem Musk sýndi fram á með form­legum hætti að vilja draga sig úr kaup­unum. Það voru svo sem ekki óvænt tíð­indi. „Þetta er eitt­hvað sem hlut­hafar Twitter hafa verið að búa sig undir síð­ustu vik­urn­ar, augna­blikið þegar handa­hófs­kenndar vanga­veltur Musk sem hann hefur birt í tístum eru slíp­aðar niður í texta sem sendur er í form­legu bréfi,“ sagði Susannah Streete, sér­fræð­ingur í fjár­fest­ingum og verð­bréfa­mörk­uðum hjá Hag­r­ea­ves Lansdown, í sam­tali við New York Times.

Bréfið sem hún vísar í var sent af lög­mönnum Musk til Twitter en í því segir að þessi skortur á upp­lýs­inga­gjöf feli í sér brot á sam­komu­lagi um kauptil­boð Musks sem stjórn Twitter sam­þykkti í apr­íl.

Tilboðið samþykkt í skugga uppljóstrana um öryggisbresti

Musk náði þeim áfanga í jan­úar í fyrra að verða rík­asti maður heims þegar hann tók topp­sætið af Jeff Bezos, stofn­anda Amazon. Þá voru auð­ævi hans metin á 273 millj­arða Banda­ríkja­dala, sem jafn­gildir rúmum 35.577 millj­örðum króna. Upphæðin hefur þó farið lækk­andi eftir yfir­lýs­ingar hans um yfir­töku á Twitter hófust, og eru auð­ævi hans nú metin á 219 millj­arða Banda­ríkja­dala, eða rúma 30.000 millj­arða króna.

Twitter segir Musk ekki eiga ann­arra kosta völ en að standa við gerðan samn­ing. Ákvörðun hlut­haf­anna var tekin skömmu eftir að Peiter Zatko, fyrr­ver­andi yfir­maður örygg­is­mála hjá Twitter, kom fyrir þing­nefnd öld­unga­deilda­þings Banda­ríkj­anna þar sem meintir örygg­is­gallar fyr­ir­tæk­is­ins voru til umræðu. Zatko sagði Twitter hafa afvega­leitt not­endur um hversu öruggur sam­fé­lags­mið­ill­inn er í raun og veru.

Zatko, sem var rek­inn frá Twitter í jan­úar, sagði fyr­ir­tækið vera „ára­tugi á eftir“ hvað varðar örygg­is­staðla, gögn not­enda væri ekki varð­veitt nægi­lega og að of margir starfs­menn Twitter hefðu aðgang að þeim.

Hann sagði ákvörð­un­ina um að ger­ast upp­ljóstr­ari væri ekki auð­veld. „Ég er að stofna ferli mínum og mann­orði í hættu, en ef eitt­hvað gott kemur út úr þessu eftir fimm eða tíu ár verður það allt þess virði,“ sagði Zatko í vitna­leiðsl­unum. Hann sagð­ist enn vera þeirrar skoð­unar að Twitter veiti góða þjón­ustu en skellti upp úr þegar hann var spurður hvort hann myndi kaupa mið­il­inn. „Það fer eftir verð­inu.“

Næstu skref tekin í dómsal

Með því að sam­þykkja yfir­tökutil­boðið gefa hlut­hafar Twitter stjórn fyr­ir­tæk­is­ins grænt ljós á að fara með málið fyrir dóm þar sem þess verður kraf­ist að Musk gangi að kaup­unum. Lög­fræð­ingum Musk verður heim­ilt að nýta vitn­is­burð Zatko við rétt­ar­höldin þar sem upp­lýs­ingar um gervi­menni gætu komið að gagni.

Rétt­ar­höldin fara fram í Delaware og hefj­ast í októ­ber. Það verður því í höndum dóm­ara að ákveða hvort Musk beri að taka yfir Twitter á upp­settu verði, 44 millj­örðum Banda­ríkja­dala.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

musk

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár