Elon Musk er orðinn ríkasti maður heims

For­stjóri raf­bíla­fram­leið­and­ans Tesla tók við af Jeff Bezos sem rík­asti maður heims­ins í dag. Enginn hefur kom­ist jafn­hratt í hóp þeirra rík­ustu og Musk, en hluta­bréfa­verð í Tesla hefur rúm­lega nífald­ast á einu ári.

Elon Musk, forstjóri Tesla
Elon Musk, for­stjóri Tesla Mynd: EPA

Elon Musk, stofn­andi og for­stjóri raf­bíla­fram­leið­and­ans Tesla, varð í dag rík­asti maður heims­ins eftir að hluta­bréfa­verð í fyr­ir­tæk­inu hans hækk­aði um meira en fjögur pró­sent í dag. Musk er met­inn á 185 millj­arða Banda­ríkja­dala, sem jafn­gildir 23 þús­und millj­örðum íslenskra króna. Það er um það bil níföld lands­fram­leiðsla Íslands árið 2019.

Musk tekur topp­sætið af Jeff Bezos, stofn­anda Amazon, en hann er met­inn á um 184 millj­arða Banda­ríkja­dala og hefur trónað á toppi lista hinna rík­ustu síðan árið 2017. Ástæðuna má fyrst og fremst þakka hluta­bréfa­verði Tesla, en sam­kvæmt umfjöllun CBNC um málið rúm­lega nífald­að­ist hún á síð­asta ári.

[links]Kjarninn hefur áður fjallað um mikla og hraða hækkun hluta­bréfa­verðs Tesla, en ýmsir grein­ing­ar­að­ilar telja að fyr­ir­tækið sé í miðri hluta­bréfa­bólu.

Bíla­fram­leið­and­inn hefur þó skilað góðri rekstr­ar­nið­ur­stöðu á und­an­förnum árs­fjórð­ungs­upp­gjörum, en hún er að miklu leyti fram­selj­an­legum meng­un­ar­kvótum að þakka. Hluta­bréfa­verðið hefur haldið áfram að hækka á síð­ustu dögum, en í dag nam hækk­unin um fjórum pró­sentum.[adspot]

Enginn hefur klifið jafn­hratt upp lista þeirra rík­ustu í heimi og Musk, en hann var „aðeins“ met­inn á 27 millj­arða Banda­ríkja­dala fyrir ári síðan. Á 12 mán­uðum hefur virði hans því auk­ist um 150 millj­arða Banda­ríkja­dala, sem er meira en fjár­hæðin sem Bill Gates, stofn­andi Microsoft og fyrrum rík­asti maður heims, er met­inn á.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár