Togast á um framtíð Twitter

Elon Musk, for­stjóri Tesla og SpaceX, hefur gert til­boð í sam­fé­lags­mið­il­inn Twitter sem hljóðar upp á 43 millj­arða banda­ríkja­dala. Enn er óljóst hvort kaupin gangi í gegn, en Musk ætlar sér stóra hluti með mið­il­inn nái hann yfir­ráðum.

Flestir hafa heyrt milljarðamæringsins Elon Musk getið, en hann hefur farið mikinn í tækniheiminum undanfarin ár.
Flestir hafa heyrt millj­arða­mær­ings­ins Elon Musk getið, en hann hefur farið mik­inn í tækni­heim­inum und­an­farin ár. Mynd: EPA

Millj­arða­mær­ing­ur­inn Elon Musk hefur boðið 43 millj­arða banda­ríkja­dala í sam­fé­lags­miðl­aris­ann Twitter. Upphæðin nemur rúm­lega 5,5 billjónum íslenskra króna, en Musk hefur sagt að kaupin séu ekki fjár­hags­legs eðlis, þar eð að ætl­unin sé ekki að græða á eign­ar­hald­inu, heldur ein­göngu hug­mynda­fræði­leg. Meðal ann­ars vill Musk að Twitter verði raun­veru­lega það tól mál­frels­is­ins sem hann segir því ætlað að vera.

Flestir hafa heyrt millj­arða­mær­ings­ins getið, en hann hefur farið mik­inn í tækni­heim­inum und­an­farin ár. Fyrst um sinn var hann þekkt­astur fyrir aðild sína að stofnun raf­bíla­fram­leið­and­ans Tesla, en tveimur sögum fer reyndar af því hvort hann hafi raun­veru­lega komið að stofnun þess, eða hvort hann hafi ein­fald­lega keypt sig inn í fyr­ir­tækið. Engum blöðum er þó að fletta um það að Musk er for­stjóri og stærsti eig­andi Tesla, fyr­ir­tækis sem hefur að miklu leyti leitt þróun raf­bíla og sjálf­stýr­ingar þeirra á heims­vísu. Þá er SpaceX, annað fyr­ir­tæki undir stjórn Musk, leið­andi á sviði fram­þró­unar geim­ferða fyrir almenn­ing. Bæði þessi fyr­ir­tæki velta billjónum og er Musk sjálfur met­inn á rúm­lega 260 millj­arða banda­ríkja­dala, sem er næstum tíföldun á um tveimur árum.

[adspot]Eins og áður segir hefur Musk boðið 43 millj­arða banda­ríkja­dala í Twitter, en ekki þykir nægi­lega ljóst hvernig hann hyggst fjár­magna kaupin né heldur hvort um sé að ræða und­ir­boð í sam­fé­lags­miðl­aris­ann. Musk hefur löngum verið virkur not­andi á Twitter og hefur þar yfir 82 millj­ónir fylgj­enda, en fyrr í mán­uð­inum höfðu borist fregnir af því að Musk hefði fjár­fest í Twitter og væri orð­inn einn stærstu hlut­hafa fyr­ir­tæk­is­ins með 9,2 pró­sent hlut. Honum bauðst þá sæti í stjórn fyr­ir­tæk­is­ins en afþakk­aði boðið og sagði ljóst að sam­fé­lags­mið­ill­inn gæti hvorki dafnað né þjónað til­gangi sínum í núver­andi formi.

[links]Enda ætl­aði hann sér eitt­hvað stærra. Meðal þeirra breyt­inga sem Musk vill gera á Twitter er að gera það að einka­fyr­ir­tæki og auka þar mál­frelsi, en margir, og þá sér­stak­lega ein­stak­lingar á hægri­væng stjórn­mál­anna, hafa gagn­rýnt Twitter, sem og aðra sam­fé­lags­miðl­arisa, fyrir að rit­skoða efni með því að fjar­lægja ósannar og vill­andi upp­lýs­ingar og banna not­endur sem deila þeim. Meðal þeirra sem hefur orðið fyrir barð­inu á þess­ari rit­skoðun er Donald Trump, fyrr­ver­andi Banda­ríkja­for­seti, en aðgangi hans á Twitter var end­an­lega lokað tveimur dögum eftir inn­rás stuðn­ings­manna hans í þing­hús Banda­ríkj­anna í jan­úar á síð­asta ári. Fjöl­margir hafa fangað áformum Musk, en Trump hefur þó gefið það út að hann hygg­ist ekki snúa aftur á Twitter, þar sem hann fór mik­inn á for­seta­tíð sinni, þó Musk kaupi sam­fé­lags­mið­il­inn.

Óttast afleiðingar taki Musk yfir

Stjórn Twitter íhugar nú til­boð Musk og er meðal þess sem sagt er til skoð­unar að nota svo­kall­aða eit­urpillu (e. poi­son pill) til þess að hindra kaupin, en þá eru mörk sett á það hversu stór hluti má vera í eigu hvers hlut­hafa, en um er að ræða þekkta aðferð við að bægja óæski­legum kaup­endum frá því að kaupa stóra hluti í fyr­ir­tækjum. Musk hefur komið því á fram­færi að honum þætti eðli­legt að efnt yrði til atkvæða­greiðslu um til­boðið meðal hlut­hafa. Það séu þeir sem eigi fyr­ir­tækið, ekki stjórnin. Það er þó eigi víst að það myndi skila jákvæðri nið­ur­stöðu fyrir Musk, þar sem hlut­höfum virð­ist ekki mikið til til­boðs millj­arða­mær­ings­ins komið.

Stjórn­endur og hlut­hafar eru ekki einir um efa­semdir vegna til­boðs Musk, en starfs­fólk Twitter hefur jafn­framt áhyggjur af hugs­an­legri yfir­töku Musk, sem er þekktur fyrir að vera óút­reikn­an­legur. Samkvæmt heim­ildum New York Times hefur starfs­fólkið jafn­vel haft á orði að líkt sé og að Musk hafi króað fyr­ir­tækið af úti í horni í eins konar gísla­töku. Þá þykir starfs­um­hverfið á sam­fé­lags­miðl­inum afar gott og öllum opið, á meðan sögur af meintum ras­isma innan starfs­stöðva Tesla hafa verið á kreiki um nokk­urt skeið og hefur fyr­ir­tækið meira að segja verið dæmt til að greiða fyrrum starfs­manni sínum bætur vegna slíks.

Framtíðin óljós

Stjórnin mun lík­lega verja nokkrum dögum í að yfir­fara kost­ina í stöð­unni áður en hún til­kynnir um nið­ur­stöðu sína. Verði eit­urpillu­leiðin valin kemur það í veg fyrir að Musk eða nokkur annar geti orðið meiri­hluta­eig­andi í fyr­ir­tæk­inu. Fari stjórnin aðrar leiðir til að koma í veg fyrir kaupin, svo sem með því að neita til­boð­inu með til­heyr­andi grein­ar­gerð um ástæð­urnar, svo sem efa­semdir um fjár­mögnun og sann­girni til­boðs­verðs­ins, gæti Musk hækkað til­boðið sitt eða leitað til ann­arra hlut­hafa og keypt hluta­bréfin beint af þeim.

Twitter hefur tækni­lega séð verið til sölu allt frá stofnun og nú þegar það er komið ræki­lega fram í sviðs­ljósið gæti eft­ir­spurn auk­ist og þó að einka­fjár­festar sjái kannski tak­mörkuð gróða­tæki­færi í sam­fé­lags­miðl­inum gætu tæknirisar á borð við Microsoft og Oracle, sem hafa bæði gert til­boð í rísandi sam­fé­lags­miðl­aris­ann Tiktok, haft áhuga. Í öllu falli virð­ast stórar breyt­ingar geta verið í far­vatn­inu hjá Twitter.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár