Munu gervimenni standa í vegi fyrir kaupum Elons Musks á Twitter?

Að mati auð­kýf­ings­ins Elon Musk hefur Twitter ekki veitt honum nægi­lega góðar upp­lýs­ingar um fjölda gervi­menna eða botta sem fyr­ir­finn­ast á sam­fé­lags­miðl­inum. Lögmenn hans hafa sent Twitter bréf þar sem segir að Twitter hafi brotið skil­mála kaup­samn­ings.

Samvkæmt auðmannalista Forbes er Elon Musk ríkasti maður heims. Auðævi hans eru metin á rúma 223 milljarða Bandaríkjadala, Það samsvarar 29 þúsund milljörðum króna.
Samvkæmt auð­manna­lista Forbes er Elon Musk rík­asti maður heims. Auðævi hans eru metin á rúma 223 millj­arða Banda­ríkja­dala, Það sam­svarar 29 þús­und millj­örðum króna. Mynd: EPA

Mikil óvissa ríkir nú um fyr­ir­huguð kaup banda­ríska auð­kýf­ings­ins Elon Musk á sam­fé­lags­miðl­inum Twitter. Fyrr í vik­unni sak­aði hann Twitter um að standa í vegi fyrir því að hann fái upp­lýs­ingar um hversu hátt hlut­fall not­enda mið­ils­ins eru gervi­menni (e. bots). Í bréfi sem lög­menn Musks sendu Twitter og birt var á vef banda­ríska fjár­mála­eft­ir­lits­ins SEC segir að þessi skortur á upp­lýs­inga­gjöf feli í sér brot á sam­komu­lagi um kauptil­boð Musks sem stjórn Twitter sam­þykkti í apríl. Þar af leið­andi geti hann dregið sig út úr sam­komu­lag­inu, dregið kauptil­boðið til baka og hætt við allt saman.

Um miðjan maí sendi Musk frá sér tíst þar sem hann greindi frá því að kaup hans á sam­fé­lags­miðl­inum hefðu verið sett á ís. Í tíst­inu sagði hann ástæð­una vera þá að hann væri að bíða eftir gögnum sem gætu rök­stutt full­yrð­ingar Twitter um að hlut­fall gervi­menna á sam­fé­lags­miðl­inum væri innan við fimm pró­sent. Í umfjöllun New York Times segir að með áður­nefndu bréfi sem lög­menn Musks sendu Twitter á mánu­dag hafi í fyrsta sinn birst með form­legum hætti vilji Musks til þess að draga sig úr kaup­unum.

„Þetta er eitt­hvað sem hlut­hafar Twitter hafa verið að búa sig undir síð­ustu vik­urnar, augna­blikið þegar handa­hófs­kenndar vanga­veltur Musks sem hann hefur birt í tístum eru slíp­aðar niður í texta sem sendur er í form­legu bréfi,“ segir Susannah Streete í sam­tali við New York Times en hún er sér­fræð­ingur í fjár­fest­ingum og verð­bréfa­mörk­uðum hjá Hag­r­ea­ves Lansdown. Hún segir það hafa verið vitað frá upp­hafi að yfir­taka Musks myndi ekki ganga þrauta­laust fyrir sig.

Markaðsaðstæður gætu hafa dregið úr vilja Musks

Samkvæmt upp­lýs­ingum frá Twitter er salan aftur á móti á réttri leið. „Við ætlum að ljúka þessum við­skiptum sam­kvæmt kaup­samn­ingnum á fyrir fram gefnu verði og sam­kvæmt þeim skil­málum sem um var rætt,“ segir tals­kona Twitter í sam­tali við New York Times og bætir því við að fyr­ir­tækið muni halda áfram að deila nauð­syn­legum upp­lýs­ingum með Elon Musk svo að kaup­unum geti orðið.

Fyr­ir­tækið hefur skipst á upp­lýs­ingum við Musk í um það bil mánuð án vand­kvæða en sam­kvæmt ónafn­greindum heilmid­ar­mönnum New York Times hafa fyrri yfir­lýs­ingar Musks um að hann ætli sér að stofna annan sam­fé­lags­miðil vakið upp efa­semdir innan her­búða Twitter um það hvaða upp­lýs­ingar hægt sé að veita Musk. [links]

Frá því að yfir­tökutil­boð Musks var sam­þykkt hefur hluta­bréfa­verð í heim­inum fallið nokkuð. Það á einnig við um verð á bréfum í Twitter sem og í Tesla en stærsti hluti auð­æfa Musks er bund­inn í bréfum bíla­fram­leið­and­ans. Grein­endur vest­an­hafs hafa velt því fyrir sér Musk sjái mögu­lega eftir því að hafa sent inn kauptil­boð í sam­fé­lags­mið­il­inn, sökum aðstæðna á mörk­uðum, og hvort það valdi því að hann sé jafn dug­legur að lýsa efa­semdum sínum um kaupin opin­ber­lega og raun ber vitni. Hluta­bréfa­verð Twitter er nú um 40 Banda­ríkja­dalir á hvert bréf í fyr­ir­tæk­inu en kauptil­boð Musks hljóð­aði upp á 54.2 dali fyrir hvert bréf. Musk hét því þar af leið­andi að greiða sam­tals 44 millj­arða dala fyrir sam­fé­lags­mið­ill­inn, eða um 5.710 millj­arða íslenskra króna.

Fjöldi gervimenna hafi ekki átt að koma Musk á óvart

Fáir not­endur Twitter njóta við­líka vin­sælda og Elon Musk, fylgj­endur hans á sam­fé­lags­miðl­inum telja nú um stundir rúm­lega 97 millj­ónir. Ef til vill má rekja ástæð­una fyrir vin­sældum hans á miðl­unum að ein­hverju leyti til þess hversu virkur hann er. Hann tístir mjög reglu­lega og er alls ekki feim­inn við að blanda sér í umræður á sam­fé­lags­miðl­unum með öðrum not­endum.

Á meðal þeirra sem fylgja Musk og blanda sér í umræð­urnar eru þó not­endur sem sigla undir fölsku flaggi. Í umfjöllun Wall Street Journal segir til að mynda að virkni Musks á sam­fé­lags­miðl­inum virki sem seg­ull á not­endur sem sem leit­ast eftir því að dreifa upp­lýs­ingum sem ekki eru sannar og réttar. Slíkir not­endur, bæði gervi­menni og not­endur af holdi og blóði, drag­ast einmitt að Musk vegna þess hve dug­legur hann er að eiga í sam­skiptum við fólk á miðl­inum. Aðrar stór­stjörnur á borð við Barack Obama, Justin Bieber og Rihönnu tísta ekki jafn oft og senda svör til ann­arra not­enda á sam­fé­lags­miðl­unum nán­ast aldrei.

Í umfjöllun Wall Street Journal segir að það hefði ekki átt að koma Musk á óvart að mörg gervi­menni mætti finna á Twitter, enda hafi Musk kvartað yfir þeim svo árum skiptir. Í grein mið­ils­ins er einnig vísað í grein­ingu á fylgj­endum Musks á sam­fé­lags­miðl­inum sem eru sagðir vera að uppi­stöðu til gervi­menni eða óvirkir aðgangar – eða um 70 pró­sent. Til sam­an­burðar sé með­al­talið í fylgj­enda­hópum þeirra sem hafa á bil­inu 65 og 120 milljón fylgj­endur á Twitter um 41 pró­sent.

Twitter telur gervimennin vera um 5 prósent af notendum

Hvort Elon Musk ætli sér að reyna að þrýsta kaup­verð­inu niður eða að falla algjör­lega frá kaup­unum liggur ekki alveg ljóst fyrir. Grein­endur vita í það minnsta ekki alveg hvað vakir fyrir Musk og hvers vegna lög­fræð­ingar hans sendu Twitter áður­nefnt bréf.

Frá Twitter koma þær upp­lýs­ingar að fyr­ir­tækið vinni hart að því að upp­ræta gervi­menni á sam­fé­lags­miðl­inum og í viku hverri séu millj­ónir slíkra not­enda gerðir óvirkir. Það er mat fyr­ir­tæk­is­ins að innan við fimm pró­sent af þeim not­endum sem skrá sig inn dag­lega séu gervi­menni en fjöldi virkra not­enda á miðl­inum stendur í um 229 millj­ónum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár