Mynd: EPA

Baráttan um bóluefnin býður hættunni heim – um allan heim

Þegar fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins hót­aði að setja hömlur á útflutn­ing bólu­efna sem fram­leidd eru innan þess afhjúpað­ist það sem margir höfðu spáð: Þótt þjóðir hafi lýst yfir vilja til að dreifa bólu­efnum jafnt hugsar hver um sig þegar á reynir.

Lyfja­fyr­ir­tækin sem tóku höndum saman við líf­tækni­fyr­ir­tæki og rann­sókn­ar­stofn­anir í upp­hafi kór­ónu­veiru­far­ald­urs­ins við þróun bólu­efna hafa ekki bein­línis haft upp­örvandi fréttir að færa und­an­farið. Eftir að hafa hvert á fætur öðru til­kynnt um vís­inda­lega sann­aða fram­úr­skar­andi virkni bólu­efna sinna og metn­að­ar­fullar dreif­ing­ar­á­ætl­anir á síð­ustu mán­uðum árs­ins 2020 urðu þau að draga í land í byrjun árs­ins 2021, árs­ins sem átti að marka stór­kost­leg þátta­skil í bar­átt­unni gegn far­aldr­inum.

Hrá­efna­skortur, tor­færur í dreifi­leiðum og fleira er sagt skýra taf­irnar og þá stað­reynd að fyr­ir­tækin hafa orðið að fækka bólu­efna­skömmtum til þeirra ríkja sem samið höfðu um kaup á drop­unum dýr­mætu. Fyrst til­kynnti Pfizer að tafir yrðu á afhend­ingu. Þá Moderna og loks AstraZeneca. En þá fékk fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins nóg.

Eftir að hafa til­kynnt með stolti að „tími Evrópu“ væri runn­inn upp er fyrstu skammtar bólu­efnis voru gefnir íbúum innan sam­bands­ins í des­em­ber, var sann­ar­lega kom­inn annar tónn í for­seta fram­kvæmda­stjórn­ar­innar, Ursulu von der Leyen, er sænska lyfja­fyr­ir­tækið AstraZeneca, boð­aði tafir. Leyen krafð­ist þess að fyr­ir­tækið stæði við samn­ing sinn við ESB.

Í ljós kom að skiln­ingur aðila á inni­haldi samn­ings­ins er mis­jafn og þeir lög­fræð­ingar sem rýnt hafa í hann eftir að hann var birtur á dög­unum eru ekki heldur á sama máli þegar kemur að spurn­ing­unni um hvort fyr­ir­tækið hafi brotið gegn honum. Leyen segir þetta ekki eins og í kjöt­búð­inni í hverf­inu þar sem sá sem fyrstur komi fái for­gang að bestu bit­unum og vís­aði þar til þess að afhend­ing til Bret­lands hefði ekki raskast með sama hætti og til ESB.

Harðlega hefur verið gagn­rýnt hversu langan tíma tók ESB að klára samn­inga við lyfja­fyr­ir­tækin. Það gerð­ist í ágúst hvað AstraZeneca varðar en mörgum vikum fyrr hafði fyr­ir­tækið gengið til samn­inga við Bretland og fleiri ríki. Sama var uppi á ten­ingnum varð­andi samn­inga við Moderna og Pfizer. Ekki var gengið frá þeim fyrr en í nóv­em­ber.

Þetta á sér ýmsar skýr­ingar sem sumir hafa þó hrist höf­uðið yfir. Þannig er talið að samn­inga­nefnd ESB hafi verið umhugað um að ná niður verðum og tryggja að lyfja­fyr­ir­tækin – ekki sam­bandið – yrði ábyrgt fyrir áhrifum mögu­legra auka­verk­ana bólu­efn­anna. Á meðan ein­stök ríki gengu hratt og örugg­lega til samn­inga og pönt­uðu risa send­ingar ákvað samn­inga­nefnd ESB að „prútta eins og hún væri á útsölu­torgi“ á meðan versti veiru­far­aldur í meira en heila öld er að ganga yfir heims­byggð­ina, líkt og það er orðað í frétta­skýr­ingu Spiegel um samn­inga­við­ræð­urnar.

Fólk þyrptist út á götur í Pakistan og krafðist jafnari dreifingu bóluefna um heiminn.
Fólk þyrpt­ist út á götur í Pakistan og krafð­ist jafn­ari dreif­ingu bólu­efna um heim­inn.

Stjórn ESB hafði von­ast til að fá 80 millj­ónir skammta af bólu­efni AstraZeneca fyrir mars­lok en fyr­ir­tækið sagð­ist lík­lega aðeins geta afhent um 31 milljón. Himinn og haf er vissu­lega þarna á milli en reiði Leyen og félaga beind­ist sér­stak­lega að AstraZeneca, ekki öðrum lyfja­fram­leið­endum, vegna þess að ESB greiddi hund­ruð millj­óna evra fyr­ir­fram til fyr­ir­tæk­is­ins, áður en mark­aðs­leyfi lyfja­stofn­ana höfðu verið veitt, til að hraða fram­leiðslu­ferl­inu.

„Evrópa hefur sett millj­arða í að hjálpa til við að þróa fyrstu bólu­efni heims­ins gegn COVID-19,“ skrif­aði Leyen á Twitter. „Evrópa“ hafi þannig lagt sitt af mörkum og nú vildi hún fá eitt­hvað fyrir sinn snúð, ef svo má að orði kom­ast. Þá hefur ESB bent á að Pfizer hafi ekki getað afhent alla þá skammta sem til stóð hafi fyr­ir­tækið ólíkt AstraZeneca, fækkað skömmtum í send­ingum til allra jafnt – þannig var skömmtum sem Íslend­ingar fengu fækkað hlut­falls­lega jafn mikið og þeim sem Norðmenn fengu og svo fram­vegis.

Fyrirskipuðu skoðun í lyfjaverksmiðju

Svo langt gekk deilan við AstraZeneca að belgísk heil­brigð­is­yf­ir­völd sendu að beðni stjórnar ESB full­trúa inn í verk­smiðju fyr­ir­tæk­is­ins í land­inu til að ganga úr skugga um að full­yrð­ing þess um hrá­efna­skort ætti við rök að styðj­ast.

ESB hót­aði svo að setja útflutn­ings­bann á bólu­efni sem fram­leidd eru innan þess. AstraZeneca svar­aði fyrir sig en ákvað að lokum að heita því að afhenda níu milljón skammta til við­bótar á næstu vikum. Málið er langt í frá leyst að fullu þó að stór­kost­legu við­skipta­stríði vegna bólu­efn­anna hafi verið afstýrt. Að minnsta kosti í bili.

En hvað varð til þess að AstraZeneca taldi sig ekki geta afhent bólu­efnið eins og um var samið? Ein skýr­ingin felst í töfum í fram­leiðsl­unni, töfum sem þó má alltaf vænta í svo flóknu og við­kvæmu ferli.

Fram­leiðsl­unni á bólu­efni fyr­ir­tæk­is­ins má gróf­lega skipta í tvö skref: Að fram­leiða hið eig­in­lega efni og að koma því í litlu með­alaglösin, pakka þeim og dreifa. Hvort þess­ara skrefa getur tekið sex­tíu daga. Seinna skrefið er að sögn AstraZeneca ekki vanda­mál en hins vegar hefur fyr­ir­tækið átt í basli með að fram­leiða hið mikla magn bólu­efnis í verk­smiðjum sínum á meg­in­landi Evrópu sem stefnt var að.

Mismunandi uppskera

Bóluefni AstraZeneca, sem þróað var af vís­inda­mönnum við Oxford-háskóla, nýtir tækni þar sem svo­kall­aðar aden­óv­eirur eru nýttar sem gena­ferjur fyrir hluta af erfða­efni veirunnar. Þær veirur geta hvorki fjölgað sér né valdið sjúk­dómi en vekja ónæm­is­svar sem ver svo bólu­setta gegn sýk­ingu af völdum COVID-19.

„Í fram­leiðsl­unni er það svo, að við erum með frumu­ræktir sem eru mjög stórar, 1.000-2.000 lítrar í hverri rækt,“ sagði Pascal Soriot, for­stjóri AstraZeneca, beð­inn um að útskýra hvað hafi farið úrskeiðis. „Við sprautum veirunni eða öllu heldur veiru­ferj­unni, sem síðan er uppi­staðan í bólu­efn­inu, í þessar ræktir. Frum­urnar í rækt­inni fram­leiða síðan bólu­efnið. Þetta er líf­tækni­leg fram­leiðsla,“ segir hann í við­tali við ítalska blaðið La Republica. „Sumar af þessum frumu­ræktum gefa meira af sér en aðrar. Sér­stak­lega í evr­ópsku verk­smiðj­unum, þá höfum við lent í því að ákveðin verk­smiðja gaf miklu minna af sér heldur en vænt­ingar stóðu til.“

Svipuð vandræði víðar

Munurinn á magn­inu sem hægt er að fram­leiða af bólu­efn­inu, þ.e. veiru­ferj­unni, úr einni rækt getur verið mis­mik­ill – allt að þre­faldur. „Sú verk­smiðja sem hefur gefið mest af sér gaf þrefalt meira magn úr hverri rækt en sú sem gaf minnst,“ bætti hann við.

Fyr­ir­tækið hefur lent í svip­uðum vand­ræðum í öðrum löndum, m.a. Bret­landi. En þar sem Bretar skrif­uðu undir samn­ing við fyr­ir­tækið mun fyrr en ESB hafi tím­inn unnið með þeim og hægt að kom­ast hjá töfum á afhend­ingu af þeim sökum.

Útför í Manaus í Brasilíu. Í borginni hefur þriðja bylgja faraldursins valdið fári og opna hefur þurft fjöldagrafir.
Útför í Manaus í Brasilíu. Í borg­inni hefur þriðja bylgja far­ald­urs­ins valdið fári og opna hefur þurft fjölda­grafir.

Bólu­efnið sjálft er enn sem komið er fram­leitt á tveimur stöðum innan ESB; í Hollandi og Belgíu. Það er svo flutt til Þýska­lands og Ítalíu – og bráð­lega einnig til Spánar – þar sem sam­starfs­að­ilar AstraZeneca setja það í dropa­glösin og pakka þeim til dreif­ingar. AstraZeneca ætlar sér að fram­leiða allt að þrjá millj­arða skammta fyrir árs­lok. Bólu­efnið fékk mark­aðs­leyfi hjá Evrópsku lyfja­stofn­un­inni í jan­úar.

Banda­ríska lyfja­fyr­ir­tækið Pfizer, sem fram­leiðir bólu­efni sem þróað var af vís­inda­mönnum þýska líf­tækni­fyr­ir­tæk­is­ins BioNtech, hefur einnig lent í vand­ræðum og orðið að til­kynna um tafir á afhend­ingu. Pfizer seg­ist nú vera á réttri leið í fram­leiðsl­unni eftir end­ur­skipu­lagn­ingu. Þannig heitir það því nú að afhenta 75 millj­ónir auka­skammta til ESB á öðrum árs­fjórð­ungi. Þetta er sagt mögu­legt vegna þess að ný verk­smiðja í Þýska­landi er að hefja fram­leiðslu bólu­efn­is­ins.

Í mörgum löndum heims hefur ekki einn einasti skammtur af bóluefni verið gefinn. Í Suður-Afríku er bólusetning hafin.
Í mörgum löndum heims hefur ekki einn ein­asti skammtur af bólu­efni verið gef­inn. Í Suður-Afríku er bólu­setn­ing hafin.

Ár er síðan far­ald­ur­inn braust út í Evrópu. Íbúar álf­unnar eru orðnir lang­þreyttir, pirraðir og örvænt­ing­ar­fullir. Þeir vilja fá bólu­setn­ingu strax svo að hag­kerfið og sam­fé­lagið geti jafnað sig sem fyrst. Pirr­ing­ur­inn bein­ist að stjórn­mála­mönn­unum. Og þeir finna ræki­lega fyrir þrýst­ingnum.

En Evr­ópu­búar og aðrir Vest­ur­landa­búar eru ekki þeir einu sem þrá að fá bólu­setn­ingu og eygja þannig von um bjart­ari tíð. Að lífið geti orðið „eðli­legt“ á ný. En það eru þó aðeins þeir sem hafa fjár­magnið – eru í þeirri stöðu að geta setið til borðs með samn­inga­nefndum lyfj­arisa og lagt inn risa­stórar pant­anir á bólu­efnum. Þetta valda­ó­jafn­vægi milli hins vest­ræna heims og ann­arra jarð­ar­búa átti sam­starfs­vett­vang­ur­inn COVAX að tækla. Með honum átti að tryggja jafna dreif­ingu bólu­efn­anna – hann átti að sjá til þess að útbelgdir vasar af pen­ingum stýrðu ekki ferð­inni í bar­átt­unni gegn far­aldr­inum.

Dæmi fortíðar

Sú hug­mynd kom ekki eins og þruma úr heið­skíru lofti. Að sam­starf­inu var farið að áður en nokk­urt bólu­efni var þróað – og í raun áður en að sá mögu­leiki að hægt yrði að verj­ast far­aldr­inum yfir höfuð með bólu­setn­ingu varð raun­sær. Tveir far­aldrar síð­ustu ára­tuga sýndu að for­rétt­inda­staða Vest­ur­landa var mis­notuð. Það gerð­ist í HIV-far­aldr­inum. Þegar lyf komu á markað, rán­dýr lyf, liðu fleiri ár áður en það varð aðgengi­legt á við­ráð­an­legu verði fyrir fátæk ríki. Þetta var svo aftur staðan er svínaflensan braust út árið 2009. Þrátt fyrir góð fyr­ir­heit um jafna útdeil­ingu bólu­efnis sem þróað var gegn þeirri veiru tryggðu vest­ur­veldin sér for­gang og bólu­efnið var ekki í boði fyrir aðra fyrr en far­ald­ur­inn var yfir­stað­inn.

Í þetta skiptið átti að gera þetta rétt. Rétt­lát­ara. Sam­ein­ast um dreif­ing­una, heims­byggð­inni allri til hags­bóta og heilla. COVAX-sam­komu­lagið átti að hjálpa til og tugir ríkja skrif­uðu undir.

Bangladess, eiitt fátækasta ríki heims, mun fá bóluefni í gegnum COVAX. Fyrstu skammtar eiga að berast í lok febrúar.
Bangla­dess, eiitt fátæk­asta ríki heims, mun fá bólu­efni í gegnum COVAX. Fyrstu skammtar eiga að ber­ast í lok febr­úar.

Sam­ein­uðu þjóð­irnar segj­ast nú vinna með flug­fé­lögum og flutn­inga­fyr­ir­tækjum að því tryggja „örugga og tím­an­lega afhend­ingu“ bólu­efna gegn COVID-19, „til allra heims­horna“. En það gagnar lítið á meðan farm­ur­inn sem á að flytja er ekki til­tækur. Hann er ekki til­tækur því Vest­ur­löndin hafa tryggt sér bróð­ur­part­inn af bólu­efnum margra fyr­ir­tækja – hamstrað eins og þau eigi lífið að leysa. Slík hræðslu­kaup gætu haft skelfi­legar afleið­ingar og kostað fjölda manns­lífa. Þau gætu einnig haft nei­kvæð áhrif á hag­kerfi heims­ins, alþjóða­hag­kerfið sem byggir m.a. á ódýrri hrá­efna­fram­leiðslu í löndum Afríku og Asíu.

Fordæmalausir tímar

Í des­em­ber færðu stjórn­völd í Kanada þær fréttir að þau hygð­ust gefa nokkrar millj­ónir skammta af bólu­efnum sem þau hefðu tryggt þjóð sinni til fátæk­ari ríkja. Þetta var til­kynnt með pompi og prakt á fjar­fundi sem full­trúar Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar, sem fer fyrir bólu­efna­sam­komu­lag­inu COVAX, voru ásamt fleirum við­staddir. Blaða­mönnum var einnig boðið að sitja fund­inn og einn þeirra spurði hvort að skammt­arnir færu þegar í stað til fátæku land­anna eða hvort til stæði að bólu­setja meiri­hluta Kanada­manna fyrst?

Sú sem kynnti áformin setti hljóða um stund. Sagði svo hik­andi að fólk yrði að skilja að það væru for­dæma­lausir tímar. Meira vildi hún ekki segja um tíma­lín­una.

COVAX-sam­komu­lagið, sem sett var á lagg­irnar í apríl, átti að tryggja sam­stöðu um jafna dreif­ingu tveggja millj­arða skammta af bólu­efnum fyrir lok árs­ins 2021. „Enginn er öruggur fyrr en allir eru öruggir“ var slag­orð sam­komu­lags­ins.

Þetta hljóm­aði allt svo vel. Þar til babb kom í bát­inn í fram­leiðslu bólu­efn­anna og áform vest­ur­veld­anna um bólu­setn­ingar rösk­uð­ust. Áður en það varð ljóst höfðu líka stjórn­völd ein­stakra ríkja og ríkja­sam­banda, s.s. Kanada, Bretland og Evr­ópu­sam­bandið, ákveðið að reiða sig ekki ein­göngu á COVAX heldur að semja sjálf­stætt við lyfja­fyr­ir­tækin. Þannig hefur sextán pró­sentum mann­kyns verið tryggð um 60 pró­sent af fáan­legum bólu­efnum. Og minna er þá til skipt­anna í tengslum við COVAX. Að auki hefur kapp­hlaupið við samn­inga­borðið orðið til þess að verð bólu­efna hefur hækkað.

Metn­að­ar­fullar bólu­setn­inga­her­ferðir eru til staðar á mörgum Vest­ur­land­anna. Stefnt er til dæmis að því að bólu­setn­ingu um 70 pró­sent íbúa innan ESB fyrir sum­ar­lok. Ísraelar eru svo algjör­lega sér á báti. Samn­ingur við Pfizer mun tryggja Ísraelum hrað­leið að hjarð­ó­næmi. Svipaður samn­ingur gæti orðið að veru­leika milli fyr­ir­tæk­is­ins og íslenskra stjórn­valda.

Á sama tíma hefur ekki einn ein­asti skammtur bólu­efna verið gef­inn í fjöl­mörgum löndum og ef fram heldur sem horfir er ekki útlit fyrir að hjarð­ó­næmi náist meðal hund­raða millj­óna íbúa þeirra fyrr en í fyrsta lagi árið 2023.

Lang­flestar þjóðir sem þegar hafa fengið bólu­efni hafa for­gangs­raðað í sínum her­ferðum og bólu­sett við­kvæma hópa og fram­línu­fólk fyrst. „En það er ekki rétt­læt­an­legt að ungir og heil­brigðir full­orðnir ein­stak­lingar í ríkum löndum verði bólu­settir áður en heil­brigð­is­starfs­menn og eldra fólk í fátækum löndum er bólu­sett,“ sagði Tedros Adhanom Ghebr­eyesus, fram­kvæmda­stjóri Alþjóða heil­brigð­is­mála­stofn­un­ar­innar í harð­orðu ávarpi um miðjan jan­úar.

Hann hefur ástæðu til að ótt­ast að slík verði raunin og tók sem dæmi að 39 millj­ónir skammtar hefðu verið gefnir í 49 efn­aðri ríkjum heims. „Aðeins 25 skammtar hafa verið gefnir í einu fátæk­asta landi heims. Ekki 25 millj­ónir, ekki 25 þús­und. Bara 25.“ Enn sem komið er hefur ekki einum ein­asta skammti af bólu­efni verið dreift í tengslum við COVAX.

Kráareigendur í Amsterdam mótmæla hörðum sóttvarnaaðgerðum í borginni.
Krá­ar­eig­endur í Amster­dam mót­mæla hörðum sótt­varna­að­gerðum í borg­inni.

Til skamms tíma gæti hjarð­ó­næmi í ein­staka ríkjum ýtt við hag­kerfum þeirra. Þar væri hægt að hefja venju­legt líf á ný – svo langt sem það nær í heimi þar sem far­aldur geisar. Þessi ríki gætu samið sín á milli um heim­ildir til ferða­laga og komið ferða­þjón­ustu í gang á ný, að minnsta kosti að ein­hverju leyti. Útlit er fyrir að þetta muni ger­ast innan ESB og Schengen á næst­unni.

En á sama tíma gæti svo farið að meiri­hluti jarð­ar­búa, sem býr á fátæk­ari svæðum, yrði enn að fást við skelfi­legar afleið­ingar far­ald­urs­ins með til­heyr­andi höftum, álagi á þegar við­kvæm heil­brigðis- og vel­ferð­ar­kerfi og dauðs­föllum. Hinir fátæku yrðu fátæk­ari.

Þessi staða myndi svo aftur bjóða hætt­unni heim fyrir alla heims­byggð­ina. Í fyrsta lagi, ef far­ald­ur­inn heldur áfram að geisa af krafti mun veiran halda áfram að stökk­breyt­ast og hættan eykst á því að meira smit­andi og jafn­vel skað­legri afbrigði verði til. Slíkar stökk­breyt­ingar geta ógnað þeirri vernd sem bólu­setn­ing veitir.

Droparnir dýrmætu eru ekki á allra færi.
Drop­arnir dýr­mætu eru ekki á allra færi.

Þá sýnir ný rann­sókn að heims­bú­skap­ur­inn gæti orðið fyrir miklu fram­leiðslutapi ef þró­un­ar­lönd verða ekki bólu­sett fyrir COVID-19 á sama tíma og rík­ari lönd. Hér á landi gæti tapið numið allt að 3,7 pró­sentum af lands­fram­leiðslu. Samkvæmt rann­sókn­inni er jöfn dreif­ing bólu­efna um allan heim ekki ein­ungis sið­ferð­is­leg skylda heims­byggð­ar­innar, heldur gæti hún komið í veg fyrir meiri­háttar fram­leiðslutap sem ætti sér stað vegna rösk­unar á fram­leiðslu­keðju ýmissar vöru og þjón­ustu.

Sigurður Guð­munds­son, fyrr­ver­andi land­læknir, sagð­ist í við­tali við RÚV í vik­unni efast um rétt­mæti þess að Íslend­ingar og aðrar rík­ari þjóðir ham­stri bólu­efni á meðan fátæk­ari þjóðir bíði í örvænt­ingu. Hann sagði mik­il­vægt að gæta jafn­aðar og að hætta væri á að far­ald­ur­inn færi aftur á stað ef sumum löndum yrði ekki sinnt. „Nú heyrum við það að ríku þjóð­irnar eru að sanka að sér bólu­efnum. Þessi umræða hefur verið mjög áber­andi hér - að við höfum ein­hvern guðs­gef­inn rétt á því að vera á undan öllum öðrum þjóðum. En er það alveg sið­ferð­is­lega hafið yfir allan vafa að við eigum það?“

„Þrýst­ing­ur­inn á stjórn­völd er gríð­ar­legur,“ hefur Spiegel eftir Krishna Uda­yaku­mar, for­stjóra banda­rísku rann­sókn­ar­stofn­un­ar­innar Duke Global Health Innovation Center. Hann segir skilj­an­legt að Evr­ópu­sam­bandið, svo dæmi sé tekið, vilji tryggja bólu­setn­ingu íbúa innan þess. Sam­bandið hafi það sem til þurfi til að kom­ast fremst í röð­ina. „En á sama tíma verða leið­togar að gera sér grein fyrir hvaða afleið­ingar slíkar aðgerðir munu hafa á ríki þeirra.“

Fyrir nokkrum dögum birtu for­svars­menn COVAX fyrstu áætlun um dreif­ingu bólu­efna sam­kvæmt sam­komu­lag­inu. Hún gerir ráð fyrir að nægi­lega mörgum skömmtum verði dreift til tuga landa til að bólu­setja yfir 3 pró­sent íbúa hvers og eins þeirra fyrir mitt ár, fyrst við­kvæma hópa og fram­línu­fólk. Í fyrsta sinn hefur verið birt áætlun um hversu marga skammta af þeim 337 millj­ónum sem til er að dreifa hvert og eitt ríki fær.

Fyrstu skömmt­unum á að dreifa í lok febr­úar. Þegar kemur að stærð hverrar send­ingar fer það eftir íbúa­fjölda hvers lands fyrir sig. Þannig mun Indland fá 97,2 millj­ónir skammta fyrir mitt ár ef allt gengur að óskum og Pakistan 17,2 millj­ónir, svo dæmi séu tekin.

En COVAX mun einnig tryggja ríkum löndum hlut­falls­lega jafn marga skammta á tíma­bil­inu. Þannig mun Suður-Kórea fá 2,6 millj­ónir skammta og Kanada 1,9 millj­ónir. Ekkert land í heimi hefur tryggt sér með beinum samn­ingum við lyfja­fyr­ir­tæki fleiri skammta af bólu­efni en Kanada. Þeir myndu reyndar nægja til að bólu­setja alla þjóð­ina fimm sinnum.

Nokkur önnur ríki, sem þegar hafa samið beint við lyfja­fyr­ir­tækin um umtals­vert magn bólu­efna, hafa afþakkað sinn hlut af kök­unni sem COVAX býður.

Enn er óvíst hvort hægt verði að standa við dreif­ing­ar­á­ætl­un­ina. Það mun stjórn­ast af aðgengi að bólu­efnum. Hins vegar er nauð­syn­legt að leggja ein­hverjar línur svo að þau lönd sem von eiga á skömmtum, geti hafið und­ir­bún­ing bólu­setn­inga.

Á að minnka bilið

Frederik Kristen­sen, aðstoð­ar­for­stjóri CEPI, sam­starfs­vett­vangs innan WHO sem heldur utan um COVAX, segir mik­il­vægt að þetta skref hafi verið stigið – á tíma þar sem ný afbrigði veirunnar eru að stinga upp koll­inum og valda óvissu og á sama tíma og rík­ari þjóðir hafa raðað sér fremst í bið­röð­ina eftir bólu­efnum. „Við erum að fær­ast nær því að leið­rétta ójafn­vægið á heimskort­inu þar sem enn sem komið er er ekki búið að bólu­setja eina ein­ustu mann­eskju í tekju­lægri ríkjum á meðan rík­ari lönd hafa hafið fjölda­bólu­setn­ingar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár