Mynd: EPA

Þegar súrefnið þrýtur

Það er búið að taka fleiri fjölda­grafir. Yngra fólk er að sýkj­ast alvar­legar núna en í fyrstu bylgj­unni. Fyrstu bylgj­unni sem var svo skæð að vís­inda­menn sögðu að hjarð­ó­næmi hefði mynd­ast í borg­inni. Það var rangt.

Í haust voru birtar nið­ur­stöður mótefna­rann­sóknar í borg­inni Manaus á Amazon-svæð­inu í Brasilíu sem vöktu mikla athygli. Samkvæmt þeim höfðu um 76 pró­sent íbú­anna lík­lega sýkst af kór­ónu­veirunni og hjarð­ó­næmi því náð. Nið­ur­staðan var síðar birt í vís­inda­tíma­rit­inu Science. Fólkið í Manaus og nágrenni varp­aði önd­inni léttar. Far­ald­ur­inn hafði verið sér­lega skæður fyrstu mán­uði árs­ins og í apríl þurfti að grafa fjölda­grafir – þær fyrstu vegna far­ald­urs­ins í Brasilíu.

Frétta­skeyti báru með sér hversu hrika­legt ástandið var: Lík lágu á götum úti, því yfir­völd höfðu ekki við að sækja lík þeirra sem lét­ust á heim­ilum sínum. Þeim var svo safnað saman, sett í kistur úr pappa, og raðað hlið við hlið í fjölda­gröfum. Þetta var svaka­legt. En þetta gekk nokkuð hratt yfir. Í júní var dán­ar­tíðnin á svæð­inu komin í það horf sem hún var fyrir tíð kór­ónu­veirunnar.

Hjarð­ó­næmi „lék stóran þátt“ í að far­ald­ur­inn gekk niður, sagði í rann­sókn­inni sem bar tit­il­inn: Hjarð­ó­næmi gegn COVID-19 á Amazon-svæði Brasilíu. Ester Sabino, vís­inda­maður við Háskól­ann í São Paulo, segir að tit­ill­inn hafi verið mis­tök. „Við áttum ekki von á annarri bylgju,“ segir hún.

Önnur bylgjan, sem hófst í des­em­ber og stendur enn, er enn skæð­ari en sú fyrsta. Vanbúin sjúkra­húsin í Amazon eru yfir­full og þar er súr­efni sum­staðar á þrotum. Fólk stendur í bið­röðum á bens­ín­stöðvum til að kaupa súr­efni handa hel­sjúkum ást­vinum sínum. Manaus er afskekkt og þar sem önnur bylgjan kom aftan að fólki barst neyð­aróp til stjórn­valda lands­ins of seint. Sjúk­lingar voru þegar kafn­aðir vegna skorts á súr­efni.

Heilbrigisstarfsmaður tekur COVID-próf af manneskju sem lést í heimahúsi í Manaus.
Heil­brig­is­starfs­maður tekur COVID-próf af mann­eskju sem lést í heima­húsi í Manaus.

Fregnir af hjarð­ó­næmi voru því annað hvort veru­lega ýktar eða að slíkt ónæmi margra hafði ein­fald­lega enga þýð­ingu. Ný og skæð­ari afbrigði veirunnar voru komin á kreik og vel kann að vera að það ónæmi sem fólk mynd­aði í fyrstu bylgj­unni dugi ein­fald­lega ekki gegn þeim.

Við þurfum hjálp

Þegar heil­brigð­is­kerfið í Manaus hrundi vegna álags á fyrstu mán­uðum síð­asta árs og fjölda­grafir voru grafnar sendi borg­ar­stjór­inn út neyð­ar­kall til leið­toga þjóða heims­ins. „Við erum að gera okkur besta en ég segir ykkur satt, það dugar ekki gegn þess­ari óværu,“ sagði Arthur Virgílio Neto í mynd­bandi sem hann sendi frá sér í maí. „Við getum ekki þagað. Við þurfum alla þá hjálp sem við getum fengið.“

Rúmlega tvær millj­ónir manna búa í Manaus sem oft er kölluð „gáttin að regn­skóg­unum“. Hún er höf­uð­borg Amazon-svæðis Brasilíu og þjón­ustu­mið­stöð margra smá­þorpa við og inni í regn­skóg­inum. „Í þetta skiptið er ástandið jafn­vel verra,“ segir Virgílio nú, níu mán­uðum síðar.

Um 200 manns deyja vegna COVID-19 í borginni á hverjum degi.
Um 200 manns deyja vegna COVID-19 í borg­inni á hverjum degi.

Undir það taka heil­brigð­is­starfs­menn sem hafa þurft að horfa upp á sjúk­linga kafna í sjúkra­rúmum sínum, ef þeir hafa þá kom­ist svo langt, þar sem súr­efni til að létta þeim öndun er ekki til að dreifa. Og aftur er farið að taka fjölda­grafir. Um 180-200 lét­ust dag­lega í borg­inni á tíma­bili í jan­úar, meira en sex sinnum fleiri en í venju­legu árferði.

Einhver hjálp hefur borist og súr­efni verið flogið til borg­ar­innar en aðstoð hefur einnig borist úr óvæntri átt: Frá nágranna­rík­inu Venes­ú­ela. Þaðan komu í síð­ustu viku flutn­inga­bílar með súr­efn­iskúta. Þeir höfðu skrölt í gegnum tor­færa vegi regn­skóg­anna í að minnsta kosti fjóra daga áður en til Manaus var komið. Gjöfin er hápóli­tísk. Forseti Venes­ú­ela, Nicolas Maduro, hefur fengið lof fyrir fram­takið og það sagt nið­ur­lægj­andi fyrir erkió­vin hans, Jair Bol­son­aro, for­seta Brasilíu. Þeir eru á sitt­hvorum enda hins póli­tíska lit­rófs en er báðum kennt um þá neyð og mis­skipt­ingu sem ríkir í löndum þeirra.

Mann­úð­ar­sam­tökin Læknar án landamæra hafa sent teymi heil­brigð­is­starfs­fólks til afskekkt­ustu svæða Amazon. Þau segja að læknar þeirra hafi ekki getað sent sjúk­linga úr þorp­unum til borg­ar­innar Manaus þar sem sjúkra­húsin þar séu yfir­full. Ótímabær dauðs­föll hafa orðið í þorp­unum af þessum sökum.

Á afskekktum búsvæðum var fyrstu vik­urnar í jan­úar ekk­ert súr­efni að hafa en ein­hverjar birgðir hafa síðan verið fluttar þangað með þyrlum. Fyrir marga hefur súr­efnið komið of seint. Læknar án landamæra sem og önnur hjálp­ar­sam­tök segja að í það minnsta þrjá­tíu COVID-sjúk­lingar hafi dáið á innan við viku vegna skorts á súr­efni. Margir þeirra voru innan við fimm­tugt. Samtökin ætla að höfða mál gegn stjórn­völdum vegna van­rækslu.

Sprenging

Upp­sveiflu far­ald­urs­ins í Amazon-ríki Brasilíu hefur verið líkt við spreng­ingu. Og hún hefur valdið bæði óvissu og miklum áhyggjum ann­ars staðar í heim­inum. Allir vita hversu slæm fyrsta bylgjan var í Manaus og margir vissu að þar átti að hafa náðst hið umtal­aða hjarð­ó­næmi. Fólk spyr: Hvernig gat þetta þá gerst aftur?

Ein skýr­ingin gæti falist í nýju afbrigði kór­ónu­veirunnar. Ýmislegt styður þá kenn­ingu.

Þegar önnur bylgjan hóf að rísa hratt í des­em­ber og lama heil­brigð­is­kerfið á stuttum tíma, var fólk sem kom á sjúkra­húsin veik­ara en í þeirri fyrstu. Það hefur ýtt undir kenn­ingar um að nýtt afbrigði eigi þar sök og að flestir séu að smit­ast af því nú. Talið er að það sé meira smit­andi en flest önnur en sumir ótt­ast einnig að það sé hættu­legra. Það er t.d. skoðun Noaldo Lucena, sér­fræð­ings í smit­sjúk­dómum, á stofnun hita­belt­is­sjúk­dóma í Manaus. „Þetta er ekki til­finn­ing mín. Þetta er stað­reynd,“ sagði hann nýverið í við­tali við Washington Post.

Fólk bíður í röð eftir að fá súrefni á kúta. Margir þurfa sjálfir að verða sér úti um súrefni fyrir veika ættingja sína.
Fólk bíður í röð eftir að fá súr­efni á kúta. Margir þurfa sjálfir að verða sér úti um súr­efni fyrir veika ætt­ingja sína.

Aðrir hafa bent á að vegna ótíma­bærra frétta um að hjarð­ó­næmi hefði náðst hefði fólk upp­lifað falskt öryggi og haldið sín jól og komið saman í des­em­ber án þess að gæta að sótt­vörnum.

Vís­inda­menn frá Bret­landi og Brasilíu lögðu saman krafta sína og rýndu í stöð­una og rit­uðu grein í lækna­tíma­ritið Lancet í síð­ustu viku. Í henni draga þeir fram fjóra þætti sem mögu­lega gætu útskýrt spreng­ing­una í far­aldr­inum í Manaus á síð­ustu vikum.

Sá mögu­leiki er að þeirra mati fyrir hendi að þeir sem gerðu rann­sókn­ina í sumar, og komust að þeirri nið­ur­stöðu að um 76 pró­sent íbúa borg­ar­innar hefðu þegar sýkst, hefðu hrein­lega ofmetið sýk­ing­ar­hlut­fallið út frá þeim tak­mörk­uðu gögnum sem þeir öfl­uðu. Þannig er vel mögu­legt að hjarð­ó­næmi hafi alls ekki verið náð.

Er mótefnið að dofna?

Annar mögu­leiki er að mótefni þeirra sem sýkt­ust í fyrstu bylgj­unni hafi dofnað mikið og ekki lengur veitt þeim vörn við end­ur­sýk­ingu. Þetta telja vís­inda­menn­irnir þó ekki að fullu geta skýrt þá hröðu og miklu upp­sveiflu sem varð í far­aldr­inum.

Tveir aðrir mögu­leikar sem vís­inda­menn­irnir til­taka tengj­ast, þ.e. að ónæmi af fyrri afbrigðum gagn­ist ekki gegn nýju afbrigði veirunnar og að fólk sé því að sýkj­ast aftur. Í fjórða lagi segja þeir mögu­legt að önnur bylgjan skýrist af því hversu mjög svo smit­andi hið nýja afbrigði sé, mun meira en það eða þau sem ollu fyrstu bylgj­unni í Amazon.

Hið nýja brasil­íska afbrigði hefur ekki verið rann­sakað eins mikið og það breska og suð­ur­a­fríska en öll þrjú afbrigðin eru þó talin hafa svip­aða eig­in­leika, þ.e. að vera meira smit­andi en önnur. Ný rann­sókn sýnir að yfir 85 pró­sent fólks sem sýkst hefur í Manaus í jan­úar hafði smit­ast af hinu nýja afbrigði.

Jair Bolsonaro, forseti Brasilíu, var lengi á þeirri skoðun að engra aðgerða væri þörf gegn COVID-19.
Jair Bol­son­aro, for­seti Brasilíu, var lengi á þeirri skoðun að engra aðgerða væri þörf gegn COVID-19.

Bol­son­aro, sem sjálfur hefur fengið COVID-19, hefur brugð­ist þjóð sinni ítrekað í far­aldr­inum. Hann var seinn til aðgerða til að hefta útbreiðslu en hafði – og hefur víst enn – ofur trú á gagn­semi malar­íu­lyfs­ins hydroxychloroquine til að vinna gegn sýk­ing­unni.

Brasil­íski flug­her­inn seg­ist hafa farið í 45 flug­ferðir til Amazon-svæð­is­ins í jan­úar með súr­efni, aðal­lega til Manaus. Sigla átti svo með súr­efnið til enn afskekkt­ari bæja og þorpa inni í skóg­inum. Sú aðstoð virð­ist annað hvort hafa komið of seint eða ekki dugað til ef marka má frá­sagnir heil­brigð­is­starfs­fólks og aðstand­enda sjúkra og lát­inna.

Met í dauðsföllum

Hvergi í heim­inum, að Banda­ríkj­unum und­an­skildum, hefur far­ald­ur­inn fellt jafn marga og í Brasilíu eða yfir 215 þús­und manns.

Lækn­arnir í Manaus eru búnir að fá nóg af afsök­unum hans. „Þetta er alltaf ein­hverjum öðrum að kenna,“ segir Marcus Vinícius Lacerda, sér­fræð­ingur á stofnun hita­belt­is­sjúk­dóma í borg­inni. „Fyrst var þetta borg­ar­stjór­anum að kenna. Eða þetta var rík­is­stjór­anum að kenna. Það var þeim að kenna því þeir not­uðu ekki chloroquine. For­set­inn hefur alltaf góðar skýr­ingar á því hvers vegna fólk er að deyja.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið undanfarið ár