Grikkir halda þjóðaratkvæðagreiðslu um neyðarlán

Alexis Tsipras, for­sæt­is­ráð­herra Grikk­lands, hefur boðað til þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu um það hvort sam­þykkja skuli eða hafna nýju sam­komu­lagi sem lán­ar­drottnar Grikkja hafa lagt fram.

Tsipras greindi frá þessu í sjón­varps­ávarpi í gríska sjón­varp­inu í kvöld, skömmu eftir að hann snéri aftur til Aþenu eftir funda­höld í Brussel með Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðnum, Seðla­banka Evrópu og fram­kvæmda­stjórn Evr­ópu­sam­bands­ins.

Tsipras sagði í ávarp­inu að til­lögur lán­ar­drottn­anna brytu í bága við evr­ópskar reglur og grund­vall­ar­rétt­indi til vinnu, jafn­réttis og virð­ingar. Þær sýndu að til­gangur sumra sem að samn­ing­unum hefðu komið væri ekki að ná góðu sam­komu­lagi fyrir alla aðila, heldur að nið­ur­lægja heila þjóð. Í sam­komu­lag­inu fælist óbæri­leg krafa um nið­ur­skurð.

Í ljósi aðstæðna muni stjórn­völd í Aþenu óska eftir nokk­urra daga fram­leng­ingu á núver­andi sam­komu­lagi, sem rennur út 30. júní næst­kom­andi. Þjóð­ar­at­kvæða­greiðslan á að fara fram sunnu­dag­inn 5. júlí.

Grísk stjórn­völd sögðu fyrr í kvöld að þau höfn­uðu til­lögum lán­ar­drottn­anna. Angela Merkel Þýska­landskansl­ari hafði áður hvatt ein­dregið til þess að grísk stjórn­völd tækju því sem hún kall­aði óvenju­lega rausn­ar­lega til­lögu. Samkvæmt sam­komu­lag­inu hefðu grísk stjórn­völd fengið 15,5 millj­arða evra í áfram­hald­andi aðstoð, þar af 1,8 millj­arða evra sem hefðu verið þeim aðgengi­legar strax. Grikkir eiga að borga 1,5 millj­arð evra til Alþjóða­gjald­eyr­is­sjóðs­ins á þriðju­dag­inn.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár