Sigurður Ingi telur „mjög álitlegt“ að byggja nýjan Landspítala annars staðar

For­sæt­is­ráð­herra telur mjög álit­legt að byggja nýjan spít­ala á Víf­ils­stöðum. Hann segir þó að verið sé að vinna sam­kvæmt stefnu­mörkun Alþingis, sem gerir ráð fyrir upp­bygg­ingu við Hring­braut.

Sigurður Ingi Jóhannsson
Sigurður Ingi Jóhanns­son Mynd: Birgir Þór Harðarson

Sigurður Ingi Jóhanns­son for­sæt­is­ráð­herra segir að að sínu mati væri það „mjög álit­legt að byggja nýjan Land­spít­ala ann­ars staðar, t.d. á Víf­ils­stöðum.“ Þetta segir hann í svari við fyr­ir­spurn frá Stein­grími J. Sig­fús­syni, þing­manni Vinstri grænna.

Stein­grímur J. spurði Sigurð Inga hvar hann áliti heppi­leg­ast að nýr Land­spít­ali rísi og hvaða for­sendur væru einkum fyrir þeirri afstöðu. Sigurður Ingi svar­aði þess­ari spurn­ingu ekki, en sagði aðeins að „fyrir liggur stefnu­mörkun Alþingis um end­ur­nýjun og upp­bygg­ingu Land­spít­ala, sbr. þings­á­lyktun nr. 45/143. Unnið er sam­kvæmt þeirri stefnu­mörkun.“

Stein­grímur J. spurði svo að ef ráð­herra teldi það koma til greina að reisa nýjan spít­ala ann­ars staðar en við Hring­braut, líkt og for­veri hans Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, hvaða stað­setn­ing það væri þá og með hvaða rökum. Sigurður Ingi sagði aðeins að það væri að hans mati mjög álit­legt að byggja nýjan spít­ala ann­ars staðar, til dæmis á Víf­ils­stöðum. Hann rök­studdi þá skoðun sína ekki.

Sig­mundur Davíð kom að minnsta kosti tví­vegis fram með þá hug­mynd að byggja nýjan Land­spít­ala ann­ars staðar en við Hring­braut eins og Alþingi hefur sam­þykkt. Í mars síð­ast­liðnum stakk hann upp á því að Víf­ils­staðir yrðu fyrir val­inu.

Kristján Þór Júl­í­us­son heil­brigð­is­ráð­herra gagn­rýndi Fram­sókn­ar­flokk­inn harð­lega fyrir vinnu­brögðin sem við­höfð voru þá, en hann heyrði fyrst af hug­myndum for­sæt­is­ráð­herra í fjöl­miðlum. Hann hefur sagt að það sé alveg öruggt að Land­spít­al­inn verði við Hring­braut. Alþingi hafi tekið þá ákvörðun með lögum árið 2010, og svo aftur með lögum 2013. Árið 2014 var svo gerð sér­stök ályktun, sem Sigurður Ingi vís­aði í í svari sínu nú. Auk þess hefur Kristján Þór sagt að upp­bygg­ing Land­spít­ala við Hring­braut sé þegar hafin.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár