Stjórn dómstólasýslunnar klofin í afstöðu til sameiningar dómstóla

Tveir af fimm stjórn­ar­mönnum dóm­stóla­sýsl­unnar eru á þeirri skoðun að fyr­ir­huguð sam­ein­ing hér­aðs­dóm­stól­anna muni leiða til þess að sjálf­stæði dóm­stóla veik­ist. Frumvarp dóms­mála­ráð­herra sé ekki til þess fallið að styrkja dóm­stóla lands­ins.

Dómsmál
Dómsmál Frumvarp dóms­mála­ráð­herra miðar að því að sam­eina alla hér­aðs­dóm­stóla lands­ins í einn. Mynd úr safni. Mynd: Bára Huld Beck

Tveir stjórn­ar­menn í dóm­stóla­sýsl­unni, Hervör Þor­valds­dóttir for­seti Lands­réttar og Halldór Björns­son dóm­ari við Hér­aðs­dóm Vest­fjarða, leggj­ast gegn frum­varpi dóms­mála­ráð­herra um sam­ein­ingu allra hér­aðs­dóm­stóla lands­ins í einn hér­aðs­dóm­stól.

Þetta kemur fram í stuttri athuga­semd sem þau Hervör og Halldór hafa sent inn til Alþingis, en þar segir að afstaða þeirra tveggja sé að þær breyt­ingar sem gert sé ráð fyrir í frum­varp­inu og lúta að sam­ein­ingu dóm­stól­anna séu ekki til þess fallnar að styrkja dóm­stóla lands­ins eins og mark­mið frum­varps­ins hljóti að vera.

„Þvert á móti teljum við að frum­varpið muni leiða til þess að draga úr sjálf­stæði þeirra. Við leyfum okkur að vísa til athuga­semda dóm­stjóra á lands­byggð­inni og jafn­framt að taka undir þau sjón­ar­mið sem þar koma fram,“ segir í umsögn þeirra Halldórs og Hervarar.

Þrír á móti tveimur

Dóm­stóla­sýslan lætur þess getið í sinni umsögn um þing­málið að innan fimm manna stjórnar dóm­stóla­sýsl­unnar séu skiptar skoð­anir um frum­varpið, en að meiri­hlut­inn sé þó sam­mála efn­is­legri útfærslu frum­varps­ins um sam­ein­ingu dóm­stól­anna og styðji breyt­ing­arnar sem í því fel­ast.

Auk þeirra Halldórs og Hervarar sitja þau Sigurður Tómas Magn­ús­son hæsta­rétt­ar­dóm­ari, Lilja Björk Sig­ur­jóns­son gæða­stjóri og Lúðvík Örn Stein­ars­son lög­maður í stjórn dóm­stóla­sýsl­unnar.

Þau þrjú eru þannig sam­mála því að sam­eina dóm­stól­anna með þeim hætti sem boðað er í frum­varpi dóms­mála­ráð­herra, en Hervör og Halldór ekki.

Sameiningin feli í sér varanlega hækkun kostnaðar

Í umsögn dóm­stóla­sýsl­unnar um frum­varpið segir að öðru leyti að stofn­unin sé ósam­mála því mati ráðu­neyt­is­ins að kostn­aður vegna frum­varps­ins rúmist innan ramma gild­andi fjár­laga.

Dóm­stóla­sýslan telur að fjár­fest­ingar- og rekstr­ar­kostn­aður vegna sam­ein­ing­ar­innar muni nema um 220 millj­ónum króna á fjög­urra ára tíma­bili og áætlar einnig að var­an­leg hækkun kostn­aðar komi til með að nema um 21 milljón króna á ári.

„Dóm­stóla­sýslan hefur gert grein fyrir auk­inni útgjalda­þörf á mál­efna­sviði dóm­stóla við und­ir­bún­ing fjár­mála­á­ætl­unar fyrir tíma­bilið 2023-2027 og á ný fyrir tíma­bilið 2024-2028. Útgjalda­þörfin teng­ist m.a. þróun á innri kerfum dóm­stól­anna vegna staf­rænna umbóta hjá dóm­stól­unum og þörf fyrir tækni­þjón­ustu og tækni­þekk­ingu hjá dóm­stóla­sýsl­unni og dóm­stól­unum. Þessar umbætur eru nauð­syn­leg for­senda þess að ná fram áður­nefndum ávinn­ingi af sam­ein­ingu hér­aðs­dóm­stól­anna. Með hlið­sjón af fram­an­sögðu varar dóm­stóla­sýslan við því að ráð­ist verði í sam­ein­ingu hér­aðs­dóm­stól­anna á þeirri for­sendu að sam­ein­ingin verði að fullu fjár­mögnuð innan ramma gild­andi fjár­laga,“ segir í umsögn dóm­stóla­sýsl­unnar.

Stofn­unin setur einnig fyr­ir­vara við að lögin taki gildi 1. ágúst 2024 og segir afar hæpið að hægt verði að ljúka þeim mikla og vand­aða und­ir­bún­ingi sem þurfi að fara fram við sam­ein­ingu dóm­stól­anna fyrir þann tíma. Dóm­stóla­sýslan leggur því til að tíma­setn­ingin verði færð aftur um eitt ár, og dóm­stól­arnir átta verði sam­ein­aðir í einn frá 1. ágúst 2025. 

Kjósa
3
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár