Forsætisráðherra lagði línurnar um að Sigríður ætti að hætta

Rík­is­stjórn­ar­sam­starf Vinstri grænna, Fram­sókn­ar­flokks­ins og Sjálf­stæð­is­flokks­ins var í húfi.

Katrín Jak­obs­dóttir, for­sæt­is­ráð­herra, lagði lín­urnar um það að Sigríður Á. Andersen myndi hætta sem dóms­mála­ráð­herra, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Hún kom sjón­ar­miðum sínum, um að dóms­mála­ráð­herra yrði að axla ábyrgð á þeirri óvissu sem upp væri komin í dóms­kerf­inu eftir dóm Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evrópu í Lands­rétt­ar­mál­inu, skýrt á fram­færi við for­menn sam­starfs­flokk­anna í rík­is­stjórn, Sigurð Inga Jóhanns­son, for­mann Fram­sókn­ar­flokks­ins, og Bjarna Bene­dikts­son, for­mann Sjálf­stæð­is­flokks­ins, á fundi for­mann­anna í morgun, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Eftir sem áður var ekki end­an­lega ljóst, að Sigríður Á. Andersen myndi segja af sér, fyrr en hún gerði það sjálf á blaða­mann­fundi í dóms­mála­ráðu­neyt­inu, sem hófst klukkan 14:30.

Rík­is­ráðs­fundur hefur nú verið boð­aður á morgun klukkan 16:00 þar sem nýr dóms­mála­ráð­herra mun verða skip­aður. Bjarni Bene­dikts­son hefur talað fyrir því að tvennt komi til greina, þegar kemur að því að skipa nýjan dóms­mála­ráð­herra.

Annars vegar að ein­hver þeirra sem er nú þegar í rík­is­stjórn muni taka við dóms­mála­ráðu­neyt­inu, sam­hliða öðrum störfum, eða að nýr ráð­herra komi úr þing­flokki Sjálf­stæð­is­flokks­ins.

Hann kom þessum sjón­ar­miðum á fram­færi í sam­tölum við blaða­menn, eftir þing­flokks­fundi á Alþingi, eftir blaða­manna­fund Sigríðar.

Á þeim tíma­punkti - það er þegar blaða­manna­fund­ur­inn fór fram - kom til greina að slíta rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu ef Sigríður myndi ekki segja af sér og axla ábyrgð á þeirri stöðu sem upp væri komin í starfi Lands­réttar, eftir nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins, sam­kvæmt heim­ildum Kjarnans.

Innan raða Vinstri grænna var það staðan sem uppi var: rík­is­stjórn­ar­sam­starfið var í húfi ef Sigríður myndi ekki segja af sér og hætta sem ráð­herra.

Starf Lands­réttar er í upp­námi eftir dóm Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins og hefur dóms­upp­kvaðn­ingum verið frestað ótíma­bundið, meðan næstu skref eru metin. Dómarar við rétt­inn tóku ákvörðun um þetta í gær.

Katrín Jak­obs­dóttir og Bjarni Bene­dikts­son hafa bæði sagt að það sé sjálf­sagt að vísa mál­inu til æðsta dóms­stigs Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins, og fá end­an­lega nið­ur­stöðu í málið þar, vegna þess að mikið sé í húfi.

Katrín sagði eftir að Sigríður hafði sagt af sér, að það væri mik­il­vægt að eyða óvissu um dóms­kerfið í land­inu, og að skapa þyrfti vinnu­frið um það sem framundan væri í þeirri vinnu.

Samkvæmt nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins braut Ísland gegn 6. grein mann­rétt­inda­sátt­mála Evr­ópu sem fjallar um rétt til rétt­látrar máls­með­ferðar fyrir dómi í máli gegn manni sem dæmdur var í 17 mán­aða fang­elsi í Lands­rétti. Ástæðan er sú að mað­ur­inn fékk ekki rétt­láta máls­með­ferð fyrir Lands­rétti vegna þess að Arn­fríður Ein­ars­dótt­ir, sem er dóm­ari við rétt­inn, hafi ekki verið skipuð í hann með lög­mætum hætt­i.

Íslensk stjórn­völd eru harð­lega gagn­rýnd í nið­ur­stöð­unni, en málið snýst um það hvernig 15 dóm­arar við rétt­inn voru skip­aðir í hann.

Í nið­ur­stöð­unni segir meðal ann­ars: „Ferlið varð til þess að valda skaða á því trausti sem dóm­stóll í lýð­ræð­is­legu sam­fé­lagi þarf að vekja hjá almenn­ingi og braut í bága við það grund­vall­ar­at­riði að dóm­stóll sé lög­legur, eina af meg­in­reglum rétt­ar­rík­is­ins.“

Kjarninn hefur fjallað ítar­lega um málið frá því það kom upp, og birti meðal ann­ars ítar­lega frétta­skýr­ingu um málið í gær, þar sem farið var yfir helstu álita­mál og for­sög­una.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár