Vilja að ársreikningar séu allir líka á íslensku

Frumvarp hefur verið lagt fram til sam­ráðs sem felur í sér að þau íslensku fyr­ir­tæki sem skila árs­reikn­ingum á ensku skuli láta þýða þá á íslensku. Mik­il­vægt sé að upp­lýs­ingar séu „á tungu­máli sem meg­in­þorri þjóð­ar­innar skilur.“

Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra.
Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þórdís Kolbrún Reyk­fjörð Gylfa­dóttir, ferða­mála-, iðn­aðar- og nýsköp­un­ar­ráð­herra, hefur lagt fram frum­varp til kynn­ingar í sam­ráðs­gátt stjórn­valda sem í felst að öll íslensk félög sem skila árs­reikn­ingi á ensku þurfi að láta þýða hann á íslensku.

Í skýr­ingum með frum­varps­drög­unum segir að með því sé opnað fyrir þann „mögu­leika að öll félög sem mik­ils­verða hags­muni hafi að gæta vegna erlendrar fjár­mögn­unar eða við­skipta­sam­banda geti samið árs­reikn­ing á ensku en þá skuli árs­reikn­ing­ur­inn þýddur á íslensku og hann vera birtur hjá árs­reikn­inga­skrá bæði ensku og íslensku.“

Það sé mik­il­vægt að árs­reikn­ingar séu birtir hjá árs­reikn­inga­skrá þannig að við­skipta­lífið og aðrir sem þurfi að reiða sig á fjár­hags­upp­lýs­ingar félaga hafi „greiðan aðgang að þeim upp­lýs­ingum og að upp­lýs­ing­arnar séu á tungu­máli sem meg­in­þorri þjóð­ar­innar skilur.“

Samráð í gegnum sam­ráðs­gátt stjórn­valda stendur yfir til 6. sept­em­ber næst­kom­andi. Verði frum­varpið að lögum er stefnt að því að það öðlist þegar gildi og komi til fram­kvæmda fyrir reikn­ingsár sem hefst 1. jan­úar 2017 eða síðar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár