Sagði „Jesús Kristur“ og henti sér í sjóinn

Daníel Sig­urðs­son bjarg­aði eigin lífi þegar hann synti í land þegar bátur hans fórst í Horn­ar­fjarðar­ósi fyrir 35 árum. En það hefur flest gengið honum í hag í líf­inu, að eigin sögn.

Lífsbjörg
Lífs­björg „Ég bjó að því að hafa synt sem krakki og ung­lingur í Lag­ar­fljóti,“ segir Daníel Sig­urðs­son sem bjarg­aði eigin lífi þegar hann synti í land eftir að bátur hans fórst í Horn­ar­fjarðar­ósi á dimmu ágúst­kvöldi árið 1988. Mynd: Golli

„Ég á nú svo­lítið skraut­legan feril, þannig séð. Það hefur flest gengið mér í hag. Ég var voða­lega hepp­inn með eig­in­konu, við studdum hvort annað með ráði og dáð. 

Svo bjarg­aði ég nú lífi mínu einu sinni, aðfara­nótt 28. ágúst 1988. Ég var kenn­ari við Vélskóla Íslands og naut þess að gera eitt­hvað úr löngu sum­ar­fríi sem tíðk­að­ist þá. Þá fór ég í smá­báta­út­gerð og missti bát niður í Horna­fjarðar­ósi á mjög hörðu inn­falli, þá getur mynd­ast mjög hættu­leg röst í ósnum sem maður verður að var­ast. Ég var með full­fermi og það var brot sem náði inn að bátnum að aft­an­verðu og sökkti honum. Ég náði ekki að losa björg­un­ar­bát­inn af þak­inu og bát­ur­inn stóð alveg upp á end­ann. Svo sá ég að það var eitt­hvað bogið við fest­ing­arnar og það kom síðar á dag­inn að þær voru ólög­legar.   

„Mér varð hugsað til minna nán­ustu. Mér fannst það versta að bregð­ast þeim“

Ég synti í land, það var ekki undir hálfum kíló­metra, í ískulda. Það rigndi. Ég bjó að því að hafa synt sem krakki og ung­lingur í Lag­ar­fljóti. Senni­lega réði það úrslitum að ég var far­inn að synda það yfir­vegað til að ofþreyta mig ekki, en samt ekki þannig að ég ofkæld­ist. Það var vandi en ég náði þessum ryþma. Mér varð hugsað til minna nán­ustu. Mér fannst það versta að bregð­ast þeim. 

Ég náði landi á Aust­ur­fjörutanga, örmagna, og varð svo að hlaupa um meira og minna í fimm, sex tíma til að halda á mér hita þangað til að bátur kom til veiða, þá var ég búinn að missa af þremur á undan honum. Þeir sáu mig ekki, það var svo dimmt. En Sigurður nokkur á bátnum Fáfni sá mig. Ég fann stikur í fjör­unni með end­ur­skins­merki og hann sá bjar­mann, hélt nátt­úr­lega að þetta væri draugur eða eitt­hvað, sæskrímsli. Svo áttar hann sig og keyrir 30 tonna bát­inn upp í fjör­una, reynir að henda í mig línu en hún náði ekki þannig ég þurfi að synda á móti henni. Þegar ég kom um borð bauð Sigurður mér sígar­ettu, sem ég þáði, ég var búinn að vera í bind­indi í nokkur ár en ég reykti í tvo sól­ar­hringa og hugs­aði með mér: Djöf­ull­inn, þetta skal ekki verða til þess að ég fari að reykja aftur. Svo ég hætti. 

Það var miklu stærra sunda­frek, Guð­laugur Frið­þjófs­son frá Vest­manna­eyjum. Hann var mér fyr­ir­mynd þarna. Ég sagði við sjálfan mig: Jesús Kristur, og henti mér í sjó­inn þegar bát­ur­inn seig end­an­lega undan mér.“

Kjósa
39
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Fólkið í borginni

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár