Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra segir að til lengri tíma þurfi að skoða hugmyndir um að skattleggja þá sem hafa í raun hagnast á kórónuveirukreppunni. „Það er að greina það í fyrsta lagi hverjir hafa hagnast á þessari stöðu. Síðan finnst mér að sjálfsögðu eðlilegt að farið verði yfir þá tekjuöflunarmöguleika sem þar eru fyrir hendi.“
Þetta kom fram í svari hennar við óundirbúinni fyrirspurn Loga Einarssonar, formanns Samfylkingarinnar, á Alþingi í dag.
Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn hefur lagt til að einstaklingar og fyrirtæki sem högnuðust vegna þeirra efnahagsaðstæðna sem sköpuðust í kórónuveirufaraldrinum greiði tímabundinn skatt, nokkurs konar samstöðuskatt, til að vinna gegn ójöfnuði sem af þeirri þróun hlýst. Sá ójöfnuður felur í sér að þær takmarkanir sem ráðist hefur verið í til að hemja faraldurinn hafa bitnað mest á yngra fólki og lágtekjufólki, sem hafa fyrir vikið setið eftir í kaupmætti á meðan að fjöldi einstaklinga sem hafa haldið vinnu hafa aukið sinn kaupmátt og fyrirtæki sem hafa ekki þurft að loka hagnast vel á aðstæðunum.
„Of margir sem hafa það skítt“
Logi sagði í fyrirspurn sinni að ráðherrar neituðu að horfast í augu við veruleikann sem við blasi hérlendis þegar þeir væru sífellt að vitna í meðaltöl um auknar ráðstöfunartekjur. Þar benti hann sérstaklega á orð Bjarna Benediktssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, í viðtölum þar sem hann talaði um hærri ráðstöfunartekjur heimila.
[adspot]Það gefi að mati Loga skakka mynd af vanda dagsins þar sem um 25 þúsund einstaklingar glími við atvinnuleysi, að stærstum hluta ungt fólk og fólk á lágum tekjum. Þessi vísvitandi bjögun á veruleikanum sé síðan endurtekin í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar til næstu ára. „Það eru of margir sem hafa það skítt,“ sagði Logi.
[links]Fjármálaráð birti umsögn um þá áætlun nýverið og í henni var sérstaklega bent á hættuna á því að lesa of mikið úr meðaltölum. „Sumar afleiðingar samdráttarins koma niður á flestum heimilum, s.s. hækkandi almennt verðlag, en atvinnuleysi kemur einungis niður á þeim sem fyrir því verða. Í framlagðri fjármálaáætlun er ítarleg umfjöllun um stöðu heimilanna þar sem byggt er á meðaltölum. Meðaltöl segja þó lítið þegar frávikin eru stór,“ segir í umsögn Fjármálaráðs.
Logi sagði að aðgerð eins og samstöðuskattar ætti að geta fallið vel í kramið hjá flokkum sem vilja berjast gegn ójöfnuði og spurði í kjölfarið hvort að Katrín áformaði að ráðast í einhverjar slíkar aðgerðir eða „hvort hún telji það kannski pólitískt ómögulegt í núverandi ríkisstjórn.“
Katrín svaraði því til að hugmyndir um að skattleggja þá sem hefðu hagnast á kreppunni væri eitthvað sem hún teldi að þyrfti að skoða til lengri tíma. Þegar greint hefði verið hverjir hefðu hagnast á stöðunni væri „að sjálfsögðu eðlilegt að farið verði yfir þá tekjuöflunarmöguleika sem þar eru fyrir hendi.“
Veistu meira? Láttu okkur vita
Það tókst ekki að sækja formið. Reyndu aftur eftir augnablik.



















































Athugasemdir