Vesturlönd hunsuðu friðartillögu Rússa í Sýrlandi árið 2012

Rússar lögðu það til fyrir meira en þremur árum síðan að Bashar al-Assad Sýr­lands­for­seti færi frá völdum, og það yrði hluti af frið­ar­sam­komu­lagi í Sýrlandi.

Þetta segir Martti Aht­isa­ari, fyrrum for­seti Finn­lands og frið­ar­verð­launa­hafi Nóbels, sem tók þátt í frið­ar­um­leit­unum á þessum tíma. Hann hélt fundi með erind­rekum frá ríkj­unum fimm sem eiga fast sæti í Örygg­is­ráði Sam­ein­uðu þjóð­anna í febr­úar 2012. Hann segir í við­tali við The Guardian að sendi­herra Rússa, Vitaly Churkin, hafi lagt fram þriggja punkta plan, sem hafi meðal ann­ars inni­haldið til­lögu að því hvernig Assad gæti stigið frá völdum á ein­hverjum tíma­punkti eftir að frið­ar­við­ræður hefð­ust milli stjórn­valda og upp­reisn­ar­manna.

En Aht­isa­ari segir að Banda­ríkja­menn, Bretar og Frakkar hafi verið svo sann­færðir um að Assad væri alveg að missa völdin og stjórn hans myndi falla, að þeir hafi hunsað til­lög­una. „Þetta var tæki­færi sem tap­að­ist árið 2012,“ segir Aht­isa­ari.

Churkin sagði við Aht­isa­ari, að hans sögn, að það þyrfti að gera þrennt. "Eitt - við eigum ekki að vopna stjórn­ar­and­stöð­una. Tvö - við ættum að koma af stað við­ræðum milli and­stöð­unnar og Assad nú þegar. Þrjú - við ættum að finna leið fyrir Assad til að fara frá völdum með reisn." Churkin vill ekki ræða þetta við Guardian nú, en Aht­isa­ari segir engum blöðum um þetta að fletta. Hann hafi meira að segja farið aftur til Churkin og spurt hann aftur. Þá hafi Churkin verið nýkom­inn frá Moskvu og hann hafi virst vera að leggja til þessa lausn fyrir hönd stjórn­valda í Rúss­landi.

Rússar hafa stutt Assad og stjórn hans allan tím­ann sem borg­ara­styrj­öld hefur varað í Sýrlandi, og sagt opin­ber­lega að það að krefj­ast afsagnar hans geti ekki verið hluti af neinum frið­ar­um­leit­unum.

Full­trúar Vest­ur­veld­anna hjá Sam­ein­uðu þjóð­unum vilja ekki tjá sig um þessar full­yrð­ingar, en bentu á í sam­tali við Guardian að á þessum tíma­punkti, í febr­úar 2012, hafi þegar verið ár liðið af átökum. Assad hafi þá þegar látið myrða mik­inn fjölda manns og stóru upp­reisn­ar­hóp­arnir hefðu aldrei tekið neinum til­lögum þar sem Assad fengi að halda völdum.

Þegar Aht­isa­ari fór til New York að ræða við full­trú­ana hjá SÞ var talið að um 7.500 manns hefðu lát­ist í borg­ara­styrj­öld­inni. Í upp­hafi þessa árs höfðu yfir 220.000 manns lát­ist, og fjöld­inn eykst. Yfir ell­efu millj­ónir Sýr­lend­inga hafa þurft að yfir­gefa heim­ili sín.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár