Sanna Magdalena býður fram krafta sína fyrir næstu borgarstjórnarkosningar

Borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins ætlar að bjóða sig fram á ný fyrir flokk­inn í kom­andi kosn­ingum. „Ég við­ur­kenni að það getur verið erfitt að starfa innan veggja ráð­húss­ins þar sem við­ur­kenn­ing á vand­anum er ekki til staðar.“

Sanna Magdalena Mörtudóttir borgarfulltrúi Sósíalistaflokksins.
Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins. Mynd: Bára Huld Beck

Sanna Magda­lena Mörtu­dóttir borg­ar­full­trúi Sós­í­alista­flokks­ins hefur ákveðið að gefa kost á sér til áfram­hald­andi setu í borg­ar­stjórn Reykja­víkur.

Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu Sönnu á Facebook í dag. Sós­í­alista­flokk­ur­inn fékk 6,2 pró­sent atkvæða í síð­ustu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingum og þar af leið­andi einn mann inn.

„Vorið 2018 tók ég að mér verk­efni. Því er ekki lokið. Órétt­lætið, fátæktin og hús­næð­is­skort­ur­inn er enn til staðar. Stétta­skipt­ingin blasir við okkur og fær að við­gang­ast óáreitt af yfir­völdum. Laun for­stjóra sem starfar í fyr­ir­tæki í eigu borg­ar­innar hækkar um margar millj­ónir á einu ári, á meðan að fátæk­ustu borg­ar­búum er gert að reiða sig á mat­ar­út­hlut­anir frá góð­gerða­sam­tökum. Á meðan að stjórn­mála­fólk fær reglu­legar launa­hækk­anir áreynslu­laust, þurfa lág­launa­hópar að leggja niður störf til að fá við­ur­kenn­ingu á starfs­fram­lagi sínu. Starfs­fram­lagi sem skiptir öllu máli við að halda borg­inni gang­andi,“ skrifar hún.

Reykjavík á að vera fyrir okkur öll

Sanna segir að gjald­taka hafi fram á ótrú­leg­ustu stöðum þar sem fjár­magns­eig­endur séu und­an­þegnir því að greiða til sam­fé­lags­ins.

„Reykja­vík­ur­borg rukkar börn fyrir þjón­ustu sem á að vera gjald­frjáls. Ef börn koma frá efna­litlum heim­ilum þar sem fjöl­skyldur hafa ekki burði til að greiða reikn­inga, er inn­heimtu­fyr­ir­tækjum sigað á fjöl­skyld­urnar. Börn læra snemma að full þátt­taka innan sam­fé­lags­ins stendur þeim ekki til boða.

Reykja­vík á að vera fyrir okkur öll en hún er það ekki. Húsnæði á að standa okkur öllum til boða en sú er ekki raunin. Ég neita að búa í sam­fé­lagi þar sem brotið er á mann­rétt­indum fólks og því neitað um rétt til að búa við öruggt húsa­skjól og öruggar mann­sæm­andi aðstæður. Þess vegna held ég áfram í þeirri sós­íal­ískri bar­áttu sem ég er í.

Ég við­ur­kenni að það getur verið erfitt að starfa innan veggja ráð­húss­ins þar sem við­ur­kenn­ing á vand­anum er ekki til staðar. Í þau skipti sem reiðin hefur náð mér hef ég bitið fast á jaxl­inn og haldið tár­unum inni í aug­unum svo þau renni ekki niður á kinn,“ skrifar hún.

Þarf að hlusta á raddir og reynslu þeirra sem best þekkja til hverju sinni

Þá telur Sanna að borg­ar­búar eigi ekki að þurfa að búa við óör­yggi og þann skaða sem hljót­ist af því að ekki hafi verið gripið inn í aðstæður þar sem hægt var að grípa inn í.

„Við verðum að byggja upp gott sam­fé­lag, þar sem grunn­þörfum allra er mætt. Til þess þurfum við að hlusta á raddir og reynslu þeirra sem best þekkja til hverju sinni og ég er þakk­lát fyrir öll sam­tölin sem ég hef átt við borg­ar­búa, starfs­fólk og allt það fólk sem veit hvað þarf að bæta innan borg­ar­innar. Við verðum að byggja góðan grunn, til að tryggja að hér getum við öll átt gott líf til að vaxa og dafna,“ skrifar hún að lokum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár