Inneignir og gjafabréf frá Icelandair munu gilda í innanlandsfluginu og til Grænlands

Icelandair gaf í fyrra út inn­eign­arnótur fyrir rúma 12 millj­arða íslenskra króna. Þeir sem eiga inn­eign eða gjafa­bréf munu geta bókað sér flug inn­an­lands eða til Græn­lands, eftir sam­þætt­ing­una við Air Iceland Connect.

Átt þú inneign hjá Icelandair vegna meginlandsferðar sem ekki var hægt að fara í út af heimsfaraldrinum? Þá getur þú tekið flugið innanlands í staðinn.
Átt þú inn­eign hjá Icelandair vegna meg­in­lands­ferðar sem ekki var hægt að fara í út af heims­far­aldr­inum? Þá getur þú tekið flugið inn­an­lands í stað­inn. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Þegar vöru­merki Air Iceland Connect verður lagt niður og bók­anir á inn­an­lands­flugi fær­ast inn í bók­un­ar­vél Icelandair verður hægt að nota ferða­inn­eignir og gjafa­bréf hjá Icelandair til þess að bóka inn­an­lands­flug og einnig flug til Græn­lands.

Þetta er á meðal þess sem fram kemur á upp­lýs­inga­síðu á vef Icelandair, þar sem farið er yfir hvernig breyt­ing­arnar sem fylgja sam­þætt­ingu Air Iceland Connect og Icelandair snerta við­skipta­vini félags­ins.[links]

Icelandair Group til­kynnti í morgun að frá og með 16. mars myndi vöru­merkið Air Iceland Connect heyra sög­unni til og markar það eins konar loka­hnykk á sam­þætt­ing­ar­ferli sem hófst með því að inn­an­lands­flugið rann inn í starf­semi Icelandair í mars í fyrra.

Ljóst er að margir eiga inn­eignir hjá Icelandair vegna flug­ferða sem ekki hafa verið farnar vegna COVID-19 far­ald­urs­ins. Í upp­gjöri Icelandair Group fyrir árið 2020 segir að alls hafi verið gefnar út ferða­inn­eignir fyrir 94,2 millj­ónir doll­ara í fyrra, jafn­virði rúm­lega 12 millj­arða króna, á gengi dags­ins í dag.

Þá bæt­ast við gjafa­bréf og annað flug sem fólk er búið að greiða fyrir hjá félag­inu, en alls voru seldir ónot­aðir far­miðar og inn­eignir metnar á yfir 157 millj­ónir dala um ára­mót. Það eru rúm­lega 20 millj­arðar króna.

Ekki lengur hægt að bóka til Færeyja né áfangastaða Norlandair

Á vef Air Iceland Connect hefur verið hægt að bóka flug með fær­eyska flug­fé­lag­inu Atlantic Airways til Færeyja og sömu­leiðis á áfanga­staði Nor­landair. Það verður ekki hægt að bóka þessi flug á vef Icelandair og vísar Icelandair á vefi þess­ara sam­starfs­að­ila sinna.

Nor­landair flýgur til Vopna­fjarðar, Þórs­hafnar, Gríms­eyjar, Bíldu­dals og Gjögurs. Fram kemur á vef Icelandair að félögin muni áfram vinna þétt saman og engin breyt­ing verði á þjón­ustu við far­þega frá Akur­eyr­ar­flug­velli né Reykja­vík­ur­flug­velli.

Börn munu áfram fá 50 prósent afslátt innanlands

Icelandair bendir við­skipta­vinum sínum á að börn muni áfram fá 50 pró­sent afslátt af almennum far­gjöldum inn­an­lands, en í til­kynn­ingu félags­ins frá því í morgun kom fram að vinna stæði yfir við end­ur­mat á vörum og þjón­ustu í inn­an­lands­flugi. Leyfileg þyngd á inn­rit­uðum far­angri inn­an­lands fer úr 20 kílóum upp í 23 kíló við sam­þætt­ing­una.

[adspot]

Hjá Air Iceland Connect hefur verið hægt að kaupa svo­kallað Flug­frelsi, sem eru afslátt­ar­far­gjöld fyrir þá sem ferð­ast oft. Þegar fólk kaupir Flug­frelsi er það að kaupa inn­eign upp í sex flug­leggi inn­an­lands.

Eftir yfir­færsl­una þann 16. mars verður sölu Flug­frelsis hætt og breyt­ingar verða sömu­leiðis á skil­málum og þjón­ustu Flug­kappa og Flug­fé­laga, sem eru svipuð afslátt­ar­far­gjöld fyrir ungt fólk og börn. Icelandair segir að skil­málar útstand­andi ferða­inn­eigna sem keyptar eru fyrir 16. mars verði óbreyttir.

Fleiri vildarpunktar í innanlandsflugi

Fram kemur á vef Icelandair að félagar í fríð­inda­klúbbnum Saga Club muni nú fá fleiri Vild­ar­punkta út á hvert inn­an­lands­flug en verið hefur.

Economy-far­gjöld Icelandair munu leysa far­gjöld Air Iceland Connect, sem heita Létt, Klassíkt og Fríðindi af hólmi.

Munu þeir sem ferð­ast á Economy Light inn­an­lands nú fá 500 punkta í stað 200 áður, þeir sem velja Economy Standard fá 1.000 punkta í stað 500 áður og þeir sem velja Economy Flex-far­gjöld fá 1.500 punkta í stað 1.000 áður.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár