Air Iceland Connect heyrir brátt sögunni til

Unnendur íslenskrar tungu hváðu þegar heiti Flug­fé­lags Íslands var breytt í Air Iceland Connect vorið 2017. Síðar í mán­uð­inum verður inn­an­lands­flug félags­ins sam­þætt við vöru­merki Icelandair og vöru­merkið Air Iceland Connect lagt niður.

Frá og með þriðju­deg­inum 16. mars næst­kom­andi munu leiða­kerfi Air Iceland Connect og Icelandair verða að einu leiða­kerfi og sölu- og mark­aðs­starf sam­ein­ast undir vöru­merki Icelandair. Vörur og þjón­usta Icelandair, inn­an­lands sem utan, verða þannig sam­ræmdar og aðgengi­legar á einum stað á vef Icelandair. Þetta kemur fram í til­kynn­ingu frá Icelandair.

Þar segir að mark­miðið með sam­þætt­ingu félag­anna sé að tryggja sjálf­bæra fram­tíð inn­an­lands­flugs Icelandair Group sem og flugs á vest­nor­rænum mark­aðs­svæðum, og á sama tíma styrkja og ein­falda rekstur félags­ins í heild.

„Eitt öfl­ugt vöru­merki, ein­faldað bók­un­ar­ferli og sam­þættar dreifi­leiðir gera Icelandair kleift að bjóða heild­stætt vöru- og þjón­ustu­úr­val til allra áfanga­staða félags­ins, inn­an­lands sem utan, á einum stað og bæta þannig upp­lifun við­skipta­vina. Flug­rekstr­ar­leyfi félag­anna verða áfram aðskilin en eftir sam­þætt­ing­una verða inn­an­lands- og svæð­is­bundin flug á FI flug­núm­erum Icelandair. Þá stuðlar sam­þætt­ingin að veru­legum sam­legð­ar­á­hrifum í rekstri félags­ins, svo sem með sam­ein­ingu yfir­stjórnar, stoð­deilda og kerfa,“ segir í til­kynn­ingu frá Icelandair sem barst til fjöl­miðla í morgun.[links]

Sameinuðu félögin í fyrra

Vöru­merkið Air Iceland Connect var kynnt til leiks sem nýtt nafn hins rót­gróna Flug­fé­lags Íslands árið 2017, en á þeim tíma var inn­an­lands­flugið í dótt­ur­fé­lagi innan sam­stæðu Icelandair Group. Fyrir tæpu ári, þegar kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn var byrj­aður að herja á heim­inn, til­kynnti Icelandair Group að starf­semi inn­an­lands­flugs­ins og alþjóða­flugs­ins yrði sam­einuð. Þá var staða fram­kvæmda­stjóra Air Iceland Connect lögð niður, en nú er þess­ari sam­þætt­ingu sem boðuð var að ljúka að fullu og síðar í mán­uð­inum mun vöru­merki Air Iceland Connect heyra sög­unni til.

Fram kemur í til­kynn­ingu Icelandair að áfanga­staðir um allt land verði sýni­legri á heima­síðu Icelandair í gegnum eina leit, einn far­miða og teng­ingu við leiða­kerfið í Evrópu og Norður Ameríku. Einnig segir í til­kynn­ingu félags­ins að teng­ing við vöru­merki Icelandair muni „lyfta inn­lendum áfanga­stöðum upp alþjóð­lega“ þar sem vöru­merki Icelandair sé vel þekkt á lyk­il­mörk­uðum félags­ins.

Flugfrelsi hættir í sölu 16. mars

Icelandair segir að nú standi yfir vinna við end­ur­mat á vörum og þjón­ustu í inn­an­lands­flug­inu. „Eftir yfir­færsl­una þann 16. mars næst­kom­andi verður sölu Flug­frelsis hætt og breyt­ingar verða á skil­málum og þjón­ustu Flug­kappa og Flug­fé­laga. Skil­málar útstand­andi ferða­inn­eigna sem keyptar eru fyrir yfir­færsl­una eru óbreyttir en sú breyt­ing verður á að þjón­usta við við­skipta­vini fer fram í gegnum þjón­ustu­ver Icelandair. Auk þess er unnið að þróun nýrra lausna sem kynntar verða á vor­mán­uðum,“ segir í til­kynn­ing­unni.

[adspot]

Icelandair mun áfram fljúga til Akur­eyrar, Egils­staða, Ísa­fjarðar og Vest­manna­eyja. „Þá hafa Air Iceland Connect og Nor­landair átt í sam­starfi um flug til nokk­urra áfanga­staða á Íslandi til við­bótar, svo sem til Bíldu­dals og Gjögurs frá Reykja­vík, ásamt flugi til Gríms­eyjar, Vopna­fjarðar og Þórs­hafnar frá Akureyri. Hægt hefur verið að kaupa flug­miða á þessa áfanga­staði í einum miða í gegnum bók­un­ar­síðu Air Iceland Connect. Eftir sam­þætt­ingu Air Iceland Connect og Icelandair breyt­ist sam­starf Nor­landair við félagið þannig að flug á áfanga­staði Nor­landair verða ein­ungis fáan­leg á heima­síðu þeirra en ekki í gegnum bók­un­ar­síðu Icelandair. Félögin munu þó áfram vinna þétt saman og engin breyt­ing verður á þjón­ustu við far­þega frá Akur­eyr­ar­flug­velli né Reykja­vík­ur­flug­velli,“ segir í til­kynn­ingu Icelandair.

Bogi Nils segir vonir standa til að túristum í innanlandsflugi fjölgi

„Ég er sann­færður um að sam­þætt­ing félag­anna verði far­sælt skref og muni stuðla að sterkara flug­fé­lagi og betri flug­sam­göngum,“ er haft eftir Boga Nils Bogasyni for­stjóra Icelandair Group í frétta­til­kynn­ingu félags­ins.

„Íslend­ingar reiða sig á öfl­ugt inn­an­lands­flug og með þessu skrefi styrkjum við það enn frekar og ætlum okkur að bjóða sam­keppn­is­hæf verð og leggja áfram áherslu á per­sónu­lega þjón­ustu. Að því sögðu er um stórt og flókið verk­efni að ræða sem við munum taka í nokkrum skrefum. Þess vegna leggjum við mikla áherslu á góð sam­skipti við við­skipta­vini og sam­tal við helstu hag­að­ila um land allt um hvernig við þróum inn­an­lands­flugið áfram með þarfir og upp­lifun við­skipta­vina okkar í huga,“ segir Bogi.

Haft er eftir honum að til lengri tíma litið standi vonir félags­ins til þess að það tak­ist að fjölga ferða­mönnum í inn­an­lands­flugi, sökum þess að fram­boð inn­an­lands­flugs verði nú áber­andi í bók­un­ar­vélum Icelandair.

„Það myndi styrkja lyk­ilá­fanga­staði okkar um allt land og skila sér til við­skipta­vina okkar í auk­inni tíðni og betri þjón­ustu,“ segir Bogi Nils.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár