Gylfi: „Við þurfum ekki að láta sérhagsmunaöflin sigra“

Formaður banka­ráðs Seðla­banka Íslands tekur undir orð seðla­banka­stjóra um að Íslandi sé að miklu leyti stjórnað af hags­muna­hópum. Skýrt dæmi um slíkan hóp sé útgerðin.

Gylfi Magn­ús­son, for­maður banka­ráðs Seðla­banka Íslands og for­seta við­skipta­fræði­deildar Háskóla Íslands, deilir áhyggjum Ásgeirs Jóns­sonar seðla­banka­stjóra um að hags­muna­hópar stýri að miklu leyti málum hér­lendis.

Þar með sé ekki sagt að við eigum að sætta okkur við þá stöðu. „Þetta er raun­veru­legt vanda­mál og við þurfum ekki að láta sér­hags­muna­öflin sigra alltaf, þó að það sé oft­ast til­hneig­ing til þess. Þau eru oft­ast ein­beitt­ari heldur en þeir sem eru að verja almennu hags­mun­ina. Og oft miklir fjár­munir undir sem menn geta lagt í að fá til dæmis ein­hverjar breyt­ingar á reglu­verki í gegn sem þjóna hags­munum eins hóps, en ekki hins breiða fjölda.“

Þetta kom fram í við­tali við Gylfa í Kast­ljósi í kvöld.

Útgerðin mjög skýrt dæmi

Ásgeir sagði í við­tali við Stundina í síð­ustu viku að Íslandi væri „að miklu leyti stjórnað af hags­muna­hópum og það er meiri háttar mál að lenda uppi á kant við þá“.

[adspot]Orð hans hafa vakið mikla athygli og meðal ann­ars kall­aði Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra eftir því að dæmi yrðu nefnd um hvaða hópa væri að ræða í umræðum um málið á Alþingi fyrr í vik­unni.

Aðspurður um hvaða hags­muna­hópar þetta séu helst segir Gylfi erfitt að telja þá alla upp. Það sé þó ekki annað hægt en að horfa sér­stak­lega til útgerð­ar­innar og bar­átt­unnar um auð­linda­gjaldið í þessum efnum. „Það er auð­vitað mjög skýrt dæmi um mjög harka­lega sér­hags­muna­bar­áttu.“

Hefur áhyggjur af fjölmiðlum

Gylfi sagði það eilífð­ar­verk­efni að takast á við þessa stöðu. Ýmislegt væri hins vegar hægt að gera til að hjálpa til í bar­átt­unni við þessa stefnu.

[links]Þar mætti nefna opið og gagn­sætt sam­fé­lag með sterkum fjöl­miðlum sem gæti gert það erf­ið­ara fyrir sér­hags­muna­hópa að kom­ast upp með sitt þannig að aðrir frétti ekki af því. Það ásamt sterku lýð­ræðis- og dóms­kerfi. „Við höfum áhyggjur af því að við séum að drag­ast aftur úr hinum Norð­ur­lönd­unum hvað varðar fjöl­miðla­frelsi.“

Þar vísar Gylfi til þess að í efsta sæti vísi­töl­u Blaða­manna án landamæra um fjöl­miðla­frelsi, fimmta árið í röð, er Noregur. Finn­land er í öðru sæti, Dan­mörk í þriðja sæti og Sví­þjóð í fjórða sæti.

Ísland situr hins vegar í 16. sæti á lista sam­tak­anna og fellur um eitt sæti á milli ára. Alls hefur Ísland fallið um sex sæti frá 2017.

Athygli vekur að í öllum þessum ríkjum er umfangs­mik­ill rík­is­stuðn­ingur við einka­rekna fjöl­miðla.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Efnhagsmál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár