Magnús Þór er látinn

Magnús Þór Haf­steins­son, fyrr­ver­andi þing­maður og sjó­maður, lést eftir að bátur hans sökk út af Pat­reks­firði í gær.

Magnús Þór Haf­steins­son, fyrr­ver­andi þing­maður og rit­stjóri, var sá sem lést þegar bátur hans sökk úti fyrir Pat­reks­firði í gær. Hann var 61 árs og lætur eftir sig fjórar dætur.  

Magnús Þór var mennt­aður búfræð­ingur og lauk cand. mag-prófi í fisk­eldis- og rekstr­ar­fræðum auk cand.scient-prófi í fiski­fræði í Noregi. Magnús Þór starf­aði við ýmis­legt tengdu land­bún­aði og sjáv­ar­út­vegi. Til dæmis stund­aði hann rann­sóknir við Veiði­mála­stofnun og sinnti kennslu við Sjáv­ar­út­vegs­há­skóla Noregs í Tromsö. Á tíma­bili vann Magnús Þór við blaða­mennsku – rit­stýrði ýmsum miðlum og var frétta­rit­ari RÚV í Noregi. 

Magnús Þór sett­ist á þing fyrir Frjáls­lynda flokk­inn árin 2003-2007 og var í nokkur ár þing­flokks­for­maður hans. Hann gekkst síðar til liðs við Flokk fólks­ins en hann var odd­viti hans í Norð­vest­ur­kjör­dæmi fyrir alþing­is­kosn­ing­arnar 2017.

Kjósa
12
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár