Björgólfur Thor metinn á 275 milljarða króna og meðal hundrað ríkustu manna Bretlands

Björgólfur Thor Björg­ólfs­son er í 92. sæti yfir rík­ustu menn Bret­lands. Auður hans dregst saman um 16 millj­arða króna milli ára en það hefur ein­ungis þau áhrif að hann fellur um eitt sæti á list­anum.

Björgólfur Thor Björg­ólfs­son fjár­festir er í 92. sæti yfir rík­ustu menn Bret­lands sam­kvæmt nýbirtum lista The Sunday Times. Alls er auður hans í lok síð­asta árs var met­inn á 1.563 millj­ónir punda, eða 275 millj­arða króna.

Björgólfur Thor fellur um eitt sæti á list­anum milli ára. Árið 2018 sat hann í 91. sæti og eignir hans voru metnar á 91 milljón pundum meira en í lok síð­asta árs. Þær hafa því dreg­ist saman um 16 millj­arða króna milli ára.

Björgólfur Thor er því, sam­kvæmt list­anum, á meðal 100 rík­ustu íbúa Bret­lands, en hann hefur búið í London árum saman. Hann er eini Íslend­ing­ur­inn sem nær að vera á meðal þeirra 100 rík­ustu enda almennt talið að hann sé rík­asti Íslend­ing­ur­inn.

Björgólfur Thor birt­ist einnig á lista tíma­rits­ins Forbes yfir rík­ustu menn heims fyrr á þessu ári. Þar sat hann í 1.063 sæti og fór upp um nokkur sæti á milli ára

[adspot]Í umfjöll­un ­Forbes ­sagði að ­Björgólf­ur Thor, sem er 53 ára, eigi hlut í pólska fjar­­skipta­­fyr­ir­tæk­in­u Play en það er á meðal stærstu far­síma­fyr­ir­tækja Pól­lands. Til­kynnt var um það sum­arið 2017 að Novator, fjár­fest­inga­fé­lag Björg­ólfs Thors, ætl­aði að selja tæp­lega helm­ings­hlut í Play, sem þá var metið á 261 millj­arð króna. Í umfjöll­un ­Forbes kom einnig fram að Björgólfur eigi einnig hluti í WOM frá Síle.

Með þorra sinna umsvifa erlendis en hefur beitt sér á Íslandi

Í umfjöllun Sunday Times um Björgólf Thor er saga hans und­an­farin ár rakin. Þar er meðal ann­ars fjallað um að langafi hans, Thor Jensen, og faðir hans, Björgólfur Guð­munds­son, hafi báðir orðið gjald­þrota, sá síð­ar­nefndi árið 2009.

Auður Björg­ólfs Thors er aðal­lega í gegnum eignir sem fjár­fest­ing­ar­fé­lagið Novator, sem hann á meiri­hluta í.

Björgólfur efn­að­ist fyrst á því að selja bjór­verk­smiðju í Rúss­landi en fjár­festi svo mikið í lyfja- og fjar­skipta­iðn­að­inum auk þess að kaupa ráð­andi hlut í Lands­banka Íslands ásamt föður sínum og við­skipta­fé­laga þeirra. Fjár­mála­hrunið 2008 setti veldi hans í hættu.

Í ágúst 2014 var til­­­­kynnt að skulda­­­­upp­­­­­­­gjöri Björg­­­­ólfs Thors væri lokið og að hann hefði greitt kröf­u­höfum sín­um, að mestu stórum alþjóð­­­­legum bönk­­­­um, sam­tals um 1.200 millj­­­­arða króna. Það upp­­­­­­­gjör tryggði honum mik­inn auð þar sem hann, og Novator, fengu að halda góðum eign­­­­ar­hluta í Actavis að því loknu, sem hefur síðan verið seld­ur. Sá eign­­­­ar­hluti hefur gert Björgólf Thor og aðra eig­endur Nota­vor mjög efn­aða á ný. ­Björgólfur Thor gaf árið 2015 út bók um fall sitt og end­­­­ur­komu. Kjarn­inn birti umfjöllun um bók­ina skömmu eftir að hún kom út.

[links]Björgólfur Thor, og sam­starfs­menn hans í Novator, þeir Birgir Már Ragn­ars­son og Andri Sveins­son, hafa farið mik­inn í fjár­fest­ingum síð­ast­lið­inn rúman ára­tug, að mestu ann­ars staðar en á Íslandi. Á meðal fjár­fest­inga sem nefndar eru í umfjöllun Sunday Times eru í fjár­mála­fyr­ir­tæk­inu Stripe, heim­send­ing­ar­þjón­ust­unni Deliveroo og hjól­reiða­sýnd­ar­veru­leika­fyr­ir­tæk­inu Zwift.

Novator er þó líka með umsvif hér­lend­is, og er meðal ann­ars stór hlut­hafi í fjar­skipta­fyr­ir­tæk­inu Nova. Þá tók Björgólfur Thor þátt í skulda­bréfa­út­boði WOW air í sept­em­ber 2018, nokkrum mán­uðum áður en að flug­fé­lagið fór í þrot, en í gegnum eigin félag.

Fyrir helgi var svo opin­berað að Novator hefði fjár­magnað mik­inn tap­rekstur útgáfu­fé­lags DV og tengdra miðla frá haustinu 2017 með því að lána því vaxta­laust að minnsta kosti 745 millj­ónir króna án vaxta. Árum saman var reynt að halda því leyndu hver borg­aði þann brúsa og það opin­ber­að­ist ekki fyrr en að Sam­keppn­is­eft­ir­litið krafð­ist upp­lýs­ing­anna þegar það fjall­aði um sam­runa útgáfu­fé­lags DV, Frjálsrar fjöl­miðl­unar, og Torgs ehf., útgáfu­fé­lags Frétta­blaðs­ins og tengdra miðla.

Hægt er að lesa ítar­lega frétta­skýr­ingu Kjarnans um málið hér.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár