Vinna við breytingar á stjórnarskrá hefst á næstu vikum

Formaður Við­reisnar segir að breyt­ingar á stjórn­ar­skrá verði unnar í nánu sam­ráði við alla flokka og að það starf muni hefj­ast á næstu vikum.

Forsvarsmenn ríkisstjórnarinnar handsala stjórnarsáttmálann. Í honum er að finna ákvæði um stjórnarskrárbreytingar.
For­svars­menn rík­is­stjórn­ar­innar hand­sala stjórn­ar­sátt­mál­ann. Í honum er að finna ákvæði um stjórn­ar­skrár­breyt­ingar. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Benedikt Jóhann­es­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, segir að hann reikni með því að starf við breyt­ingar á stjórn­ar­skrá Íslands í sam­ræmi við stefnu Við­reisnar og rík­is­stjórn­ar­innar muni hefj­ast á næstu vikum. „Reynslan sýnir að það er tíma­frekt starf og erfitt og þarf að vinn­ast í nánu sam­ráði allra flokka. Ég reikna með að það hefj­ist á næstu vikum.“

Á kjör­tíma­bil­inu sem stóð yfir 2009-2013 lagði stjórn­laga­ráð, sem kosið var til af þjóð­inni, fram frum­varp um ­miklar breyt­ingar á stjórn­ar­skrá íslenska lýð­veld­is­ins. Frum­varpið var lagt fram árið 2011. Kosið var um til­lögur ráðs­ins haustið 2012 þar sem tveir af hverjum þremur sem tók þátt í kosn­ing­unum sagð­ist vilja að til­lögur ráðs­ins yrðu lagðar til grund­vallar nýrri stjórn­ar­skrá. Í til­lög­unum var meðal ann­ars að finna ákvæði um að auð­lindir yrðu þjóð­ar­eign og að til­tekið hlut­fall kosn­inga­bærra manna geti kraf­ist þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu.

Þar voru einnig til­lögur um stór­tækar breyt­ingar á íslenska kosn­inga­kerf­inu þar sem lagt var til að heim­ila aukið per­sónu­kjör og að atkvæði lands­manna myndu öll gilda jafn mik­ið, en mikið ósam­ræmi er í því vægi á milli lands­hluta í dag. Báðar til­lög­urnar voru sam­þykktar með yfir­gnæf­andi meiri­hluta í þjóð­ar­at­kvæða­greiðsl­unni í októ­ber 2012.

Þrátt fyrir það hafa þessar breyt­ingar á stjórn­ar­skrá ekki orðið að veru­leika.

[adspot]

Ekkert breyttist á síðasta kjörtímabili

Á síð­asta kjör­tíma­bili var skipuð þverpól­tísk stjórn­ar­skrár­nefnd sem skil­aði af sér nið­ur­stöðu í þremur frum­vörpum í byrjun árs í fyrra. Fyrsta var um ákvæði um auð­lind­ir nátt­úru Íslands og að þær séu þjóð­ar­eign. Annað frum­varpið um um­hverfi og nátt­úru þar sem mælt er fyr­ir um ábyrgð á vernd nátt­úru og að var­úð­ar- og lang­­tíma­­sjón­­ar­mið verði höfð að leið­ar­ljósi. Ekki náð­ist sátt um að ráð­ast í þessar breyt­ingar á síð­asta kjör­tíma­bili.

Í aðdrag­anda síð­ustu kosn­inga voru ýmsir flokkar með breyt­ingar á stjórn­ar­skrá á stefnu­skrá sinni. Þar á meðal voru bæði Björt Framtíð og Viðreisn, sem nú sitja í rík­is­stjórn. Á heima­síðu Við­reisnar,undir liðnum „Málefnin“, segir um stjórn­ar­skrár­mál:„Ná þarf sam­komu­lagi um heild­stætt, skýrt og tíma­sett ferli sem hefur að mark­miði að til verði ný stjórn­ar­skrá. Það ferli á að taka mið af til­lögum Stjórn­laga­ráðs og annarri vinnu að breyt­ingum á síð­ari stigum.“ Í póli­tískum áherslum Bjartrar fram­tíðar, eins og þær eru fram settar á heima­síðu flokks­ins, segir: „Setjum þjóð­inni nýja stjórn­ar­skrá á grunni til­lagna Stjórn­laga­ráðs, í sem mestri sátt. Vöndum okkur.“

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins, sagði hins vegar í útvarps­við­tali í aðdrag­anda kosn­inga að það væri eitt af helstu kosn­inga­málum flokks síns að ekki yrði tekin upp ný stjórn­ar­skrá á Íslandi.

Vilja ná sem bestri sátt

Stjórn­ar­skrár­mál röt­uðu þrátt fyrir það inn í stjórn­ar­sátt­mála rík­is­stjórnar Bjarna Bene­dikts­sonar. Þar segir að unnið verði að end­ur­skoðun stjórn­ar­skrár lýð­veld­is­ins Íslands á grund­velli þess viða­mikla starfs sem átt hefur sér stað und­an­farin ár. Rík­is­stjórnin muni bjóða öllum þing­flokkum á Alþingi að skipa full­trúa í þing­manna­nefnd sem muni starfa með fær­ustu sér­fræð­ingum á sviði stjórn­skip­unar að sem bestri sátt um til­lögur að breyt­ingum sem verði lagðar fram eigi síðar en árið 2019. Samkvæmt Benedikt er sú vinna nú að fara að hefj­ast.

Í stjórn­ar­sátt­mál­anum segir að það sé sér­stakt mark­mið að „breyt­inga­til­lögur fái góða kynn­ingu og umræðu fyrir fram­lagn­ingu á Alþingi og vand­aða þing­lega með­ferð sem eftir atvikum verði með opnum fundum. Hugað verði að breyt­ingum á kjör­dæma­skipan með hlið­sjón af þeirri reynslu sem feng­ist hefur af síð­ustu breyt­ingum í þeim efnum. Kosn­inga­lög­gjöf verði yfir­farin sam­hliða því starfi með það fyrir augum að hún verði ein­fald­ari og miði að meira jafn­ræði í atkvæða­vægi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár