Vefsíða opnuð með frásögnum um kynferðisbrot og áreiti Jóns Baldvins

Í dag verður opnuð vef­síða með vitn­is­burðum um meint kyn­ferð­is­brot og áreiti Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar í garð kvenna. Elsta sagan er frá árinu 1962 og sú yngsta frá árinu 2018.

Jón Baldvin Hallibalsson
Jón Baldvin Halli­bals­son Mynd: Skjáskot/RÚV

Í dag verður opnuð vef­síða með vitn­is­burðum um kyn­ferð­is­brot og áreiti Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar, fyrr­ver­andi ráð­herra og sendi­herra, í garð kvenna og barna.

Þetta kemur fram í frétta­til­kynn­ingu frá hóp kvenna sem sér um vef­síð­una.

Í henni kemur fram að elsta sagan sé frá árinu 1962 og sú yngsta frá árinu 2018. Sögunum var safnað saman á Facebooksíðunni #metoo Jón Baldvin Hanni­bals­son. Frá­sagn­irnar er að finna á síð­unni metoo-jon­bald­vin.blog.is. Einnig er hægt að lesa frá­sagn­irnar hér.

[box]

Heldur því fram að atvik hafi verið sviðsett

Jón Bald­vin var í við­tali í Silfr­inu á RÚV í gær þar sem hann ræddi þær ásak­anir sem settar hafa verið fram á hendur honum um kyn­ferð­is­brot. Þetta var fyrsta við­talið sem hann veitir frá því að konur stigu fram í Stund­inni í jan­úar og sök­uðu hann um kyn­ferð­is­lega áreitn­i.

Í við­tal­inu var Jón Bald­vin meðal ann­ars spurður út frá­sagnir þeirra fjögra kvenna sem stigu fram í Stund­inni þann 11. jan­úar síð­ast­lið­inn og sögðu að hann hefði áreitt þær kyn­ferð­is­lega. T­vær þeirra voru nem­endur hans í Haga­skóla en hinar tvær tengj­ast honum fjöl­skyldu- eða vina­bönd­um. Tvær aðrar konur úr fjöl­skyld­unni hafa einnig stigið fram. Frá­sagn­irnar spanna yfir fimm­tíu ár en nýjasta frá­sögnin hverf­ist um meinta kyn­ferð­is­lega áreitni sem á að hafa átt sér stað á Spáni síð­asta sum­ar. Þar segir Car­men Jóhanns­dóttir frá því að Jón Bald­vin hafi áreitt hana kyn­ferð­is­lega á heim­ili hans og Bryn­dís­ar Scharm á spán­i.

„Þegar ég stóð upp á einum tíma­punkti og fór að skenkja í glös­in, þá bara gerði kall­inn sér lítið fyrir og byrj­aði að strjúka á mér rass­inn.“ segir Car­men í við­tali við Stund­ina. Hún seg­ist hafa fros­ið, horft á hinar kon­urnar við borðið og reynt að átta sig á hvað væri að ger­ast. „Ég fékk svo mikið áfall að ég vissi ekki hvað ég ætti að gera. Ég veit ekki hvernig ég á að útskýra þetta.“ Hún sett­ist niður hjá móður sinni og vissi ekki hvað hún átti að segja. Lauf­ey, móðir henn­ar, stað­festir í sam­tali við Stund­ina að hún hafi séð Jón Bald­vin káfa á Car­men. „Ég horfði á þetta ger­ast,“ segir Lauf­ey. „Ég sagði honum við borðið að ég hefði séð hann gera þetta og að það minnsta sem hann gæti gert væri að biðja hana afsök­unar fyrir framan okk­ur. Hann hélt nú ekki.“

Jón Bald­vin rifj­aði upp þessa heim­sókn þeirra mæðgna í Silfr­in­u og full­yrti að atvikið hefði verið svið­sett. „Við erum varla fyrr sest þegar að móðir Car­menar - það var hún sem hrópar þetta upp: „Jón Bald­vin, þú ert að káfa á henni, ég sá það“. Þetta voru hennar orð,“ sagði Jón Bald­vin. „Það getur ekk­ert verið annað að baki þess­ari heim­sókn heldur en að reyna að setja þetta á svið vegna þess að þetta er ósatt. Það var engin snert­ing, ekki neitt,“ stað­hæfði hann. Hann sagði að engin önnur skýr­ing gæti verið að baki þess að Car­men og móður hennar hefðu komið í heim­sókn til þeirra á Spáni heldur en að hún hefði verið til þess gerð að koma höggi á hann. Fanney Birna spurði þá hvort hann teldi að móð­ur­inn hefði sigað dóttur sinni á hann til þess eins að geta sakað hann um kyn­ferð­is­of­beldi. Þá sagði Jón að þær ­mæðgurn­ar ­væru tengdar Aldísi dóttur hans.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár