Jón Baldvin heldur því fram að atvik hafi verið sviðsett

Jón Baldvin Hanni­bals­son hafn­aði öllum ásök­unum sem nýlega hafa verið settar fram á hendur hon­um um kyn­ferð­is­brot í Silfrinu í dag. Hann til­kynnti jafn­framt að hann ætli að gefa út bók um málið.

Jón Baldvin Hannibalsson.
Jón Baldvin Hanni­bals­son. Mynd: RÚV/Skjáskot

Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra og sendiherra, var í viðtali í Silfrinu á RÚV í dag þar sem hann ræddi þær ásakanir sem settar hafa verið fram á hendur honum um kynferðisbrot. Þetta var fyrsta viðtalið sem hann veitir frá því að konur stigu fram í Stundinni í janúar og sökuðu hann um kynferðislega áreitni.

Segist hafa verið dæmdur án dóms og laga

Jón Baldvin byrj­aði við­talið á því að segja ef hann ætti að lýsa líðan sinni þá liði honum eins og hann væri þar á saka­manna­bekk. Hann sagð­ist í raun hafa verið „dæmdur, for­dæmdur án dóms og laga“ og ástæðan sé meðal ann­ars sú að fáir trúi því að svo margar sögur geti komið fram án þess að fótur sé fyrir þeim. Hann segir hins vegar að aðeins ein af ásök­unum sem bornar hafi verið upp á hann hafi orðið að ákæru. „Hún fór sinn gang í gegnum rétt­ar­kerfið. Þetta var ásökun um kyn­ferð­is­lega áreitni við unga stúlku en var síðan breytt í að særa blygð­un­ar­kennd. Ég var yfir­heyrður, það voru leidd fram gögn og vitna­leiðslur og nið­ur­staðan var að kærum var vísað frá. Þetta mál hefur síðan verið notað til að halda því fram að ég sé barn­a­níð­ingur.“

[links]Jón Baldvin vísar þar í bréf sín til Guðrúnar Harð­ar­dóttur, syst­ur­dóttir Bryn­dísar Schram, eig­in­konu Jóns Baldvins. Guðrún steig fram í við­tali hjá Nýju lífi þar sem hún greindi frá klám­fengnum bréfum fyrrum ráð­herr­ans til sín þegar hún var aðeins 16 og 17 ára gömul. Guðrún stofn­aði einnig Facebook-hóp­inn #Me too Jón Baldvin Hanni­bals­son eftir að kon­urnar stigu fram í jan­úar en í lýs­ingu á hópnum kemur fram að þar sé rætt um „upp­lifun kvenna af áreitni og/eða ofbeldi Jóns Baldvins Hanni­bals­sonar.“ Í hópnum eru hátt í 700 manns.

Spurður hvort hann teldi að bréfa­send­ing­arnar hefðu „ekki verið alvar­legar“ svar­aði Jón Baldvin: „Þessi spurn­ing er óþörf. Vegna þess að um leið og ég átt­aði mig á þessum dóm­greind­ar­bresti um leið, ég var ekk­ert að fela neitt eða fær­ast undan. Ég hef beðist afsök­unar, ég hef beðist fyr­ir­gefn­ingar. Ég skrif­aði þegar í stað afsök­un­ar­bréf til Guðrúnar. Í því bréfi kemur reyndar fram stað­reynd máls­ins, nefni­lega ég segi, ég held að ég muni þetta orð­rétt, ég veit að þú veist að ég hef aldrei snert þig, þvingað þig til neinnar kyn­ferð­is­legra afnota,“ sagði Jón Baldvin.

Hann sagð­ist ítrekað hafa beðist afsök­unar og reynt að gera yfir­bót fyrir þessi „ósæmi­legu“ skrif, án þess að hafa fengið við­brögð. Fanney Birna Jóns­dóttir, þátta­stjórn­andi Silf­urs­ins, benti honum þá á að þrátt fyrir afsök­un­ar­beiðni skuld­aði Guðrún honum ekki fyr­ir­gefn­ingu.„Ég á enga kröfu á fyr­ir­gefn­ingu en ég leit­aði eftir fyr­ir­gefn­ingu á grund­velli afsök­unar og iðr­unar,“ sagði Jón Baldvin og bætti við að hann gæti engum öðrum kennt um nema sjálfum sér. Hann hafði ollið því að stór­fjöl­skyldan klofn­aði í tvennt vegna máls­ins.

Segir atvikið á Spáni sviðsett

Í viðtalinu er Jón Baldvin einnig spurður út frásagnir þeirra fjögra kvenna sem stigu fram í Stundinni þann 11. janúar og sögðu að Jón Baldvin hefði áreitt þær kynferðislega. Tvær þeirra voru nemendur hans í Hagaskóla en hinar tvær tengjast honum fjölskyldu- eða vinaböndum. Tvær aðrar konur úr fjölskyldunni hafa einnig stigið fram. Frásagnirnar spanna yfir fimmtíu ár en nýjasta frásögnin hverfist um meinta kynferðislega áreitni sem á að hafa átt sér stað á Spáni síðasta sumar. Þar segir Carmen Jóhannsdóttir frá því að Jón Baldvin hafi áreitt hana kynferðislega á heimili hans og Bryndísar Scharm á spáni.

„Þegar ég stóð upp á einum tímapunkti og fór að skenkja í glösin, þá bara gerði kallinn sér lítið fyrir og byrjaði að strjúka á mér rassinn.“ segir Carmen í viðtali við Stundina. Hún segist hafa frosið, horft á hinar konurnar við borðið og reynt að átta sig á hvað væri að gerast. „Ég fékk svo mikið áfall að ég vissi ekki hvað ég ætti að gera. Ég veit ekki hvernig ég á að útskýra þetta.“ Hún settist niður hjá móður sinni og vissi ekki hvað hún átti að segja. Laufey, móðir hennar, staðfestir í samtali við Stundina að hún hafi séð Jón Baldvin káfa á Carmen. „Ég horfði á þetta gerast,“ segir Laufey. „Ég sagði honum við borðið að ég hefði séð hann gera þetta og að það minnsta sem hann gæti gert væri að biðja hana afsökunar fyrir framan okkur. Hann hélt nú ekki.“

Jón Baldvin rifjaði upp þessa heimsókn þeirra mæðgna í Silfrinu og fullyrðti að atvikið hafi verið sviðsett. „Við erum varla fyrr sest þegar að móðir Carmenar - það var hún sem hrópar þetta upp: „Jón Baldvin, þú ert að káfa á henni, ég sá það“. Þetta voru hennar orð,“ sagði Jón Baldvin. „Það getur ekkert verið annað að baki þessari heimsókn heldur en að reyna að setja þetta á svið vegna þess að þetta er ósatt. Það var engin snerting, ekki neitt,“ staðhæfði hann. Hann segir að engin önnur skýring geti verið að baki þess að Carmen og móður hennar hafi komið í heimsókn til þeirra á Spáni heldur að hún verið til þess gerð að koma höggi á hann. Fanney Birna spyr þá hvort hann haldi að móðurinn hafi sigað dóttur sinni á hann til þess eins að geta sakað hann um kynferðisofbeldi. Þá segir Jón að þær mæðgurnar séu tengdar Aldísi dóttur hans.

Fanney Birna spurði þá hvers konar „mastermind“ dóttir hans sé, fyrst að hún geti, eins og Jón lýsir henni veik á geði, vélað til sín allar þessar konur, fengið þær til brjóta lög með því bera upp á hann þessar sakir. Jón Baldvin svarar því með að benda á að dóttir hans hefði verið greind með geðhvarfasýki árið 1992. Hann segir fólk með þann sjúkdóm sé margt afburðagreint og það gildi einnig um hana.

Segist vera óvenju háttvís í samskiptum við konur

Fanney Birna spurði Jón Baldvin hvort hann hefði íhugað hvort að hugmyndir hans um hvar mörk liggja gætu verið aðrar en kvennanna sjálfra. Sagði hann það ekki hans að dæma en lýsti hegðun sinni í garð kvenna á eftirfarandi hátt: „Ég beri virðingu fyrir konum, sé óvenjuháttvís í samskiptum við konur og tillitssamur,“ sagði Jón Baldvin.

Jón fullyrðir síðan að tilefni þess að ásakanirnar á hendur honum hafi skotið upp kollinum aftur nú hafi verið það að stöðva útgáfu bókar sem stóð til gefa út á áttræðisafmæli Jón Baldvins með ræðum hans, ritum og greinum. Útgáfunni hefur nú verið frestað um óákveðinn tíma. Jón segir að því leyti hafi „herferð“ kvennanna tekist.

Að lokum boðaði hann útgáfu nýrrar bókar um ásakanirnar gegn honum og uppruna þeirra. Hann segir að titill bókarinnar sé „Vörn fyrir æru: hvernig fámennur öfgahópur hefur sagt réttarríkinu á Íslandi stríð á hendur“ og sagðist hér með óska eftir útgefanda að henni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Metoo

LífiðMetoo

Brota­þol­inn tekur skell­inn

Konur eru í miklum meiri­hluta þeirra sem verða fyrir kyn­ferð­is­legri áreitni karl­kyns yfir­manns á vinnu­stöðum. Drífa Snædal, tals­kona Stíga­móta, segir að slík áreitni geti orðið til þess að konur upp­lifi jafn­vel skömm og sumar hrökkl­ast úr starfi þegar ástandið er orðið óbæri­legt. Þetta ofbeldi getur haft áhrif á sjálfs­mynd og sjálfs­traust við­kom­andi konu og and­lega líðan.

10 mín. lestur

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár