Eigandi smálánafyrirtækja tvísaga um eignarhaldið

Óskar Þorgils Stef­áns­son, sem seg­ist hafa keypt smá­lána­fyr­ir­tækin Hrað­pen­inga, 1909 og Múla, í sept­em­ber 2013 sagði við Kjarnann í jan­úar 2014 að fyr­ir­tækin væru í eigu kýp­versks skúffu­fé­lags sem hann hefði ekki leyfi til að upp­lýsa um hver ætti. Hann er því tví­saga um eign­ar­haldið á fyr­ir­tækj­unum. Aðspurður segir hann ástæðu þess að hann hafi sagt Kjarn­anum ósatt þá að kaupin hafi verið á við­kvæmum tíma­punkti þegar fyr­ir­spurn hans barst.

Svar barst aldrei


Kjarninn hafði sam­band við Óskar Þorgils í jan­úar 2014 til að spyrja hann út í eign­ar­hald á Hrað­pen­ingum, 1909 og Múla. Þá sagði hann að eig­andi fyr­ir­tækj­anna þriggja væri kýp­verska fyr­ir­tækið Jumdon Finance sem hefði eign­ast það árið 2011.

[quote font="0" align="right"]Aðspurður hverjir væru eig­endur Jumdon Finance sagði Óskar Þorgils að hann ætl­aði að setja sig í sam­band við stjórn­ar­menn félags­ins og óska eftir leyfi til að segja frá því hverjir end­an­legir eig­endur þess væru. Svar við spurn­ing­unni barst hins vegar aldrei þrátt fyrir ítrek­aðar fyr­ir­spurnir frá Kjarn­anum.[/quote]

Aðspurður hverjir væru eig­endur Jumdon Finance sagði Óskar Þorgils að hann ætl­aði að setja sig í sam­band við stjórn­ar­menn félags­ins og óska eftir leyfi til að segja frá því hverjir end­an­legir eig­endur þess væru. Svar við spurn­ing­unni barst hins vegar aldrei þrátt fyrir ítrek­aðar fyr­ir­spurnir frá Kjarn­anum.

Þetta var ekki í fyrsta sinn sem Óskar Þorgils hafði vikið sér undan því að svara því hverjir væru eig­endur Jumdon Finance. Í maí 2013 svar­aði hann fyr­ir­spurn Við­skipta­blaðs­ins um málið á þann veg að hann hefði „ ítrekað reynt að ná sam­bandi við stjórn félags­ins á Kýpur til að fá nýj­ustu hluta­skrá félags­ins en án árang­urs. Verð í sam­bandi þegar stjórn félags­ins hefur svarað mér.“

Morg­un­blaðið hefur fjallað tölu­vert um smá­lána­fyr­ir­tækin í sunnu­dags­út­gáfu sinni und­an­farnar vikur. Um síð­ustu helgi birt­ist umfjöllun um að eig­endur Jumdon Finance væru „ótil­greindir útlend­ingar.“ Þar var haft eftir Óskari Þorgils að hann hefði keypt félagið Neyt­enda­lán ehf., sem var stofnað árið 2013 og er nú hattur yfir Hrað­pen­inga, 1909 og Múla, af Jumdon Finance í sept­em­ber 2013.

Félagið hefur ekki skilað gildum árs­reikn­ingi og eign­ar­hald þess kemur ekki fram í gagna­grunni Creditinfo. Þar er hins vegar kemur þar fram að Óskar Þorgils sé próf­kúru­hafi þess og annar stjórn­ar­maður. Í frétt Morg­un­blaðs­ins um mál­efni félags­ins kemur hins vegar fram að eig­end­urnir séu „ótil­greindir útlend­ingar“.

Kaupin voru á viðkvæmum tímapunkti


Sú full­yrð­ing, að Óskar Þorgils hafi keypt Neyt­enda­lán ehf. í sept­em­ber 2013, stang­ast algjör­lega á við það sem hann sagði við Kjarnann í jan­úar 2014, þegar hann sagði að Jumdon Finance væri eig­andi Hrað­pen­inga, 1909 og Múla. Kjarninn bar þetta mis­ræmi upp á Óskar Þorgils og í tölvu­pósti seg­ist hann hafa keypt Neyt­enda­lán af Jumdon Finance í sept­em­ber 2013 en „af marg­vís­legum ástæðum hafði end­an­legt kaup­verð ekki verið greitt og salan var ekki frá­gengin að fullu fyrr en í febr­úar 2014. Á þessum við­kvæma tíma­punkti var ég ekki í aðstöðu til að upp­lýsa þig né aðra um stöðu mála. Eins og þú bendir rétti­lega á fékkstu aldrei algjör­lega skýr svör frá mér og það helg­ast af þessu. Ég bið þig vel­virð­ingar á þessu og vona að þetta skýri málið.“

[quote font="0" align="right"]Óskar Þorgils vildi ekki svara spurn­ingum um hver væri eig­andi Jumdon Finance, sem hann seg­ist hafa keypt fyr­ir­tækið Neyt­enda­lán af í sept­em­ber 2013, þar sem að fyr­ir­tækið væri ekki á hans vegum.[/quote]

Óskar Þorgils vildi ekki svara spurn­ingum um hver væri eig­andi Jumdon Finance, sem hann seg­ist hafa keypt fyr­ir­tækið Neyt­enda­lán af í sept­em­ber 2013, þar sem að fyr­ir­tækið væri ekki á hans vegum. Hann sagð­ist hins vegar ætla að koma fyr­ir­spurn Kjarnans á fram­færi við Jumdon Finance og að hann vænti þess að for­svars­menn fyr­ir­tæk­is­ins myndu verða í sam­bandi í kjöl­farið. Ekkert hefur heyrst frá for­svars­mönnum Jumdon Finance.

Eftirlitsstofnanir vita ekkert um eignarhaldið


Þegar Kjarninn fjall­aði um starf­semi og eign­ar­hald smá­lána­fyr­ir­tækja fyrir ári síðan var leitað eftir því hjá Fjár­mála­eft­ir­lit­inu, sem ann­ast eft­ir­lit með þeim lögum sem smá­lána­fyr­ir­tæki starfa eftir, hvort það byggi yfir upp­lýs­ingum um hverjir væru end­an­legir eig­endur Hrað­pen­inga, Múla og 1909. Í svari frá eft­ir­lit­inu kom fram að það búi ekki yfir slíkum upp­lýs­ingum.

Kjarninn setti sig líka i sam­band við Fyr­ir­tækja­skrá Rík­is­skatt­stjóra í sömu erinda­gjörðum. Þar feng­ust sömu svör: stofn­unin bjó ekki yfir upp­lýs­ingum um eig­endur fyr­ir­tækj­anna.

Mikill hagnaður


Rekstur smá­lá­fyr­ir­tækj­anna þriggja virð­ist hafa verið nokkuð ábata­samur und­an­farin ár. 1909 ehf. hagn­að­ist um 136 millj­ónir króna árin 2012 og 2013 og Múla hefur hafn­ast um 99 millj­ónir króna á sama tíma­bili.

Hrað­pen­ingar, elsta félagið í sam­stæð­unni og það sem er lík­ast til með mestu umsvifin, hefur ekki skilað árs­reikn­ingi fyrir árið 2012. Árið 2011 nam hagn­aður þess hins vegar 34,8 millj­ónir króna og árið áður hafði félagið hagn­ast um 14,9 millj­ónir króna.

Fjárfestir frá Slóvakíu á hina smálánablokkina


Neyt­enda­lána­blokk­inn er önnur tveggja smá­lána­fyr­ir­tækja­blokka hér­lendis. Hin, sem á smá­lána­fyr­ir­tæki Kredia og Smálán, er í eigu Mario Magela. Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans keypti Magela félögin af Leifi Alex­ander Har­alds­syni í des­em­ber 2013. Breyt­ingin á eign­ar­hald­inu var hins vegar fyrst skráð inn hjá fyr­ir­tækja­skrá 23. sept­em­ber 2014.

Megela er með víð­tæka starf­semi, meðal ann­ars með smá­lán, í Tékk­landi og Slóvakíu. Þar rekur hann til að mynda smá­lána­síð­una www.kredia.cz, sem byggir á íslensku fyr­ir­mynd­inni.

[caption id="attachment_9754" align="alignnone" width="635"] Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans keypti Magela félögin af Leifi Alex­ander Har­alds­syni í des­em­ber 2013. Breyt­ingin á eign­ar­hald­inu var hins vegar fyrst skráð inn hjá fyr­ir­tækja­skrá 23. sept­em­ber 2014.[/caption]

Keypti hlut í eiganda Inkasso


Kjarninn greindi frá því í jan­úar síð­ast­liðnum að Magela hefði átt hlut í félagi sem hét DCG ehf. Það félag var hins vegar á þeim tíma skráð að fullu í eigu Leifs Alex­and­ers Har­alds­sonar og hafði þá nýverið einnig keypt inn­heimtu­fyr­ir­tækið Inkasso, sem meðal hafði séð um inn­heimtu fyrir smá­lána­starf­semi. DCG ehf. átti á þeim tíma einnig Hópkaup, Heimkaup, SpotOn og ýmis­legt annað.

Samkvæmt upplýsingum Kjarnans keypti Magela félögin af Leifi Alexander Haraldssyni í desember 2013. Breytingin á eignarhaldinu var hins vegar fyrst skráð inn hjá fyrirtækjaskrá 23. september 2014.
Samkvæmt upp­lýs­ingum Kjarnans keypti Magela félögin af Leifi Alex­ander Har­alds­syni í des­em­ber 2013. Breyt­ingin á eign­ar­hald­inu var hins vegar fyrst skráð inn hjá fyr­ir­tækja­skrá 23. sept­em­ber 2014.

Frá því í sept­em­ber er Magela hins vegar einn skráður eig­andi Kredia og Smálána. Inkasso er enn í eigu DCG ehf., sem heitir í dag Kaptura Eign­ar­hald og Rekstur ehf. Það félag er í 100 pró­sent eigu Leifs Alex­and­ers Har­alds­sonar.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár