Einn af hverjum fimm COVID-sjúklingum glímir við geðræn vandamál

Margir sem fá COVID-19 eiga á hættu að glíma við and­leg veik­indi í kjöl­farið. Stór rann­sókn sýnir að 20 pró­sent þeirra sem sýkj­ast af kór­ónu­veirunni grein­ast með geð­ræn vanda­mál innan níu­tíu daga.

Frá því að kórónuveirufaraldurinn hófst hafa margir óttast áhrif COVID-19 á geðheilsu.
Frá því að kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn hófst hafa margir ótt­ast áhrif COVID-19 á geð­heilsu. Mynd: Hvatinn.is

Um 20 pró­sent þeirra sem sýkj­ast af kór­ónu­veirunni glíma við geð­ræn vanda­mál þremur mán­uðum síðar. Kvíði, þung­lyndi og svefn­leysi eru helstu sjúk­dóm­arnir sem fólkið glímir við.

Þetta er meðal þess sem fram kemur í nið­ur­stöðum rann­sóknar vís­inda­manna við Oxford-háskóla sem birt var í lækna­vís­inda­rit­inu Lancet í vik­unni.

[adspot]

Paul Harrison, pró­fessor í geð­lækn­ingum við Oxford-háskóla, segir að frá því að far­ald­ur­inn hófst hafi margir ótt­ast að sjúk­dóm­ur­inn gæti haft lang­vinn, geð­ræn áhrif í för með sér. Hann segir rann­sókn­ina sýna að sá ótti var ekki ástæðu­laus. Læknar og aðrir vís­inda­menn um heim allan þurfi að rann­saka hvað valdi því að fólk veik­ist and­lega í kjöl­far COVID-19 og að þróa verði nýjar með­ferðir.

„Heil­brigð­is­stofn­anir þurfa að vera til­búnar að veita aðhlynn­ingu, sér­stak­lega þar sem nið­ur­stöður okkar eru lík­lega van­mat frekar en hitt,“ er haft eftir Harrison í frétt Reuters.

[links]Rann­sóknin var byggð á sjúkra­skýrslum 69 milljón Banda­ríkja­manna. Af þeim höfðu yfir 62 þús­und verið greindir með COVID-19. Vís­inda­menn­irnir telja að nið­ur­stöð­urnar megi yfir­færa á alla heims­byggð­ina.

Helsta nið­ur­staðan er sú að á innan við þremur mán­uðum eftir að hafa greinst með sjúk­dóm­inn hafði einn af hverjum fimm sjúk­lingum verið greindur með kvíða, þung­lyndi eða svefn­leysi í fyrsta skipti á ævinni. Fólk í þessum hópi var tvö­falt lík­legra til að veikj­ast and­lega en aðrir á því tíma­bili sem far­ald­ur­inn hefur geisað.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár