Baldvin Þorsteinsson eignast erlenda útgerð Samherja sem metin er á 55 milljarða króna

Sonur Þor­steins Más Bald­vins­sonar hefur keypt hol­lenskt dótt­ur­fé­lag Samherja Holding sem heldur utan um erlenda útgerð­ar­starf­semi Sam­herj­a­sam­stæð­unnar. Áður hafði hann, ásamt systur sinni og frændsysk­inum, eign­ast Samherja á Íslandi.

Þorsteinn Már Baldvinsson er forstjóri Samherja og sonur hans, Baldvin Þorsteinsson.
Þor­steinn Már Bald­vins­son er for­stjóri Samherja og sonur hans, Baldvin Þor­steins­son. Mynd: Skjáskot/RÚV

Baldvin Þor­steins­son, sonur Þor­steins Más Bald­vins­sonar, hefur keypt hol­lenska félagið Öldu Seafood af Samherja Holding. Frá þessu er greint í Morg­un­blað­inu í dag. Þar er haft eftir Þor­steini Má að ástæðan fyrir söl­unni séu kyn­slóða­skipti sem átt hafi sér stað innan Samherja, og að salan á Öldu sé eðli­legt fram­hald af því. „Við telj­um að fé­lagið sé vel komið í hans hönd­um og þeirra stjórn­enda sem hafa starfað þar.“

Alda Seafood heldur utan um erlenda starf­semi Sam­herj­a­sam­stæð­unnar, fyr­ir­tæki á sviði veiða, vinnslu og sölu sjáv­ar­af­urða í Evr­ópu og Norð­ur­-Am­er­íku. Fjár­fest­inga­fé­lagið Sæból til­heyrir líka Öldu. Það félag á tvö dótt­­­­ur­­­­fé­lög, Esju Shipping Ltd. og Esju Seafood Ltd. sem bæði eru með heim­il­is­­­­festi á Kýp­­­­ur. Þau félög héldu meðal ann­­­­ars utan um veiðar Sam­herja í Namib­­­­íu, þar sem sam­­­­stæðan og stjórn­­­­endur hennar eru nú grun­aðir um að hafa greitt mútur til að kom­­­­ast yfir ódýran kvóta.

Auk þess á Sæból þrjú dótt­ur­fé­lög í Færeyjum, þar á meðal Spf Tindhólm.

Alda Seafood er því risa­stórt félag. Bókfært virði þess í lok síð­asta árs var 361 milljón evrur, eða tæp­lega 55 millj­arðar króna á gengi dags­ins í dag. Í frétt Morg­un­blaðs­ins er ekki greint frá því á hvaða verði Baldvin keypti Öldu Seafood né hvernig kaupin voru fjár­mögnuð.

[adspot]Utan Öldu var stærsta eign Samherja Holding, sem er að uppi­stöðu í eigu Þor­steins Más, Helgu S. Guð­­­munds­dóttur fyrr­ver­andi eig­in­­­konu hans og Krist­jáns Vil­helms­­­­­son­­­­­ar, útgerð­­­­ar­­­­stjóra Sam­herj­­­­a­­­­sam­­­­stæð­unn­­­­ar, 32,79 pró­sent hlutur í Eimskip. Samkvæmt til­kynn­ingu á heima­síðu Samherja hefur sá hlutur verið færður í eign­ar­halds­fé­lagið Seley ehf. sem er í eigu sömu aðila og hafa átt Samherja Holding.

Með söl­unni á Öldu hefur sjáv­ar­út­vegs­hluta Sam­herj­a­sam­stæð­unnar að mestu verið komið til barna stofn­enda fyr­ir­tæk­is­ins. Og nær allar eignir Samherji Holding, félags­ins sem er til rann­sóknar í Namibíu og á Íslandi vegna gruns um mútu­greiðslur, pen­inga­þvætti og skatta­snið­göngu, hafa verið færðar annað.

Miklar tilfærslur á síðustu árum

Á árinu 2018 gerð­ist það að Sam­herja var skipt upp í tvö fyr­ir­tæki. Það var sam­­­­þykkt 11. maí 2018 á hlut­hafa­fundi og skipt­ingin látin miða við 30. sept­­­­em­ber 2017.

Eftir það var þorri inn­­­­­­­­­­­lendrar starf­­­­­­sem­i Sam­herja og starf­­­­­­semi fyr­ir­tæk­is­ins í Fær­eyj­um undir hatti Sam­herja hf. en önnur erlend starf­­­­­­sem­i og hluti af fjár­­­­­­­­­fest­ing­­­­­ar­­­­­starf­­­­­semi á Íslandi í félag­inu Sam­herji Holding ehf. Stærsta eign síð­ar­nefnda félags­ins var dótt­ur­fé­lagið Alda Seafood, sem nú hefur verið seld til Baldvins Þor­steins­sonar sem leitt hefur þá starf­semi und­an­farin ár.

Þetta er enn eitt skrefið sem stigið hefur verið í átt að því að færa eign­ar­hald á Sam­herj­a­sam­stæð­unni til barna stofn­enda fyr­ir­tæk­is­ins, frænd­anna Þor­steins Más og Krist­jáns.

Saman áttu þessi tvö félög, Sam­herji hf. og Sam­herji Holding, eigið fé upp á um 160 millj­arða króna um síð­ustu ára­mót. Þor­steinn Már er for­stjóri bæði Sam­herja hf. og Sam­herja Holding.

Til­kynnt var um það um miðjan maí 2020 að þeir, ásamt Helgu, væru að færa stóran hluta af eign­­ar­haldi á Sam­herja hf., sem heldur utan um inn­lendu starf­sem­ina, til barna sinna. Stærsti eig­andi þess félags er K&B ehf. Bald­vin á 49 pró­sent hlut í K&B ehf. en Katla systir hans 48,9 pró­sent. Faðir þeirra á svo 2,1 pró­sent hlut.

Hall­­dór Örn, Krist­ján Bjarni og Katrín Krist­jáns­­börn, eiga sam­an­lagt með um 41,5 pró­­sent hluta­fjár í Samherja en ekk­ert þeirra meira en 8,5 pró­sent hlut hvert. Þar á eftir kemur félagið Bliki ehf. með 11,9 pró­­­sent hlut, sem er líka í eigu Sam­herj­a­fjöl­skyld­unnar.

Fram­­sal hluta­bréfa for­eldr­anna í Samherja hf. til barn­anna fór ann­ars vegar þannig fram að um fyr­ir­fram­greiddan arf var að ræða, og hins vegar um sölu milli félaga að ræða.

Ráðuneytið lét saksóknara vita

Bald­vin, sem á nú eignir sem metnar eru á tugi millj­arða króna, er með lög­heim­ili í Hollandi, þar sem hann býr og leiðir alþjóð­lega starf­semi Sam­herja. Þar af leið­andi er hann skil­greindur sem erlendur sam­kvæmt íslenskum lögum og því ber að til­kynna hana til stjórn­valda. Kjarn­inn greindi frá því sum­arið 2020 að fjár­­­fest­ing K&B ehf. í Sam­herja hafi verið til­­kynnt til atvinn­u­­vega­ráðu­­neyt­is­ins átta dögum áður en að Kveik­­ur, Stund­in, Wikileaks og Al Jazeera opin­ber­uðu margra mán­aða rann­­sókn­­ar­vinnu sem sýndi fram á meintar mút­u­greiðsl­­ur, pen­inga­þvætti og skatta­snið­­göngu Sam­herj­­a­­sam­­stæð­unnar í tengslum við veiðar hennar í Namib­­íu.

[adspot]Starfs­­maður atvinn­u­­vega­ráðu­­neyt­is­ins hringdi tví­­­vegis í Ólaf Þór Hauks­­son hér­­aðs­sak­­sókn­­ara, ann­­ars vegar 18. des­em­ber og hins vegar 20. des­em­ber 2019, til að gera honum við­vart um að ráðu­­neyt­inu hefði borist til­­kynn­ing um að erlendur aðili, Bald­vin, hefði keypt hlut­inn í Sam­herja.

Í skjali um sam­­skiptin kom fram að ástæða þess að haft var sam­­band við við hér­­aðs­sak­­sókn­­ara var að ráðu­­neyt­inu væri „kunn­ugt um að það félag sem til­­kynn­ingin við­kemur og aðal­­eig­andi þess og for­­stjóri eru til rann­­sóknar hjá emb­ætti hér­­aðs­sak­­sókn­­ara.“

Í til­kynn­ingu Sam­herja um að stofn­endur fyr­ir­tæk­is­ins væru að láta eign­ar­hluti renna til barna sinna kom fram að stjórn Sam­herja hefði fyrst verið til­kynnt um áformin sum­arið 2019.

Fyr­ir­tækið hefur hafnað því að tengsl væru á milli þess að til­kynnt væri um eig­enda­breyt­ing­­arnar og umfjöll­unar um athæfi Sam­herja í Namib­­íu. ­

Rannsókn á Íslandi langt komin

Rannsókn hér­aðs­sak­sókn­ara á meintum lög­brotum Sam­herj­a­sam­stæð­unnar og lyk­il­fólks innan hennar hefur staðið yfir síðan í lok árs 2019. Auk þess er málið í rann­­sókn og ákæru­­með­­­ferð í Namib­­íu. Átta manns hið minnsta hafa fengið rétt­­­­­ar­­­­­stöðu sak­­­­­born­ings við yfir­­­­­heyrslur hjá emb­ætt­i hér­­aðs­sak­­sókn­­ara vegna máls­ins. Þeirra á meðal er Þor­steinn Már.

Aðrir sem kall­aðir hafa verið inn til yfir­­heyrslu og fengið stöðu sak­­born­ings við hana eru Ingólfur Pét­­­ur­s­­­son, fyrr­ver­andi fjár­­­­­mála­­­stjóri Sam­herja í Namib­íu, Ingvar Júl­í­us­­­son, fjár­­­­­mála­­­stjóri Sam­herja á Kýp­­­ur, Arna McClure, yfir­­­lög­fræð­ingur Sam­herja og ræð­is­­­maður Kýpur á Íslandi, Egill Helgi Árna­­­son, fram­­­kvæmda­­­stjóri Sam­herja í Namib­­­íu, Aðal­­­­­steinn Helga­­­son, fyrr­ver­andi fram­­­kvæmda­­­stjóri Sam­herja í Namib­­­íu, Jón Óttar Ólafs­­­son, ráð­gjafi og fyrr­ver­andi rann­­­sókn­­­ar­lög­­­reglu­­­maður sem starfað hefur fyrir Sam­herja árum sam­an­, og upp­­­­­ljóstr­­­ar­inn Jóhannes Stef­áns­­­son.

Hér­­­lendis hófst rann­­sókn eftir að Kveikur og Stundin opin­ber­uðu að grunur væri á að Sam­herji hefði greitt mút­­­­­ur, meðal ann­­­ars til hátt­­­settra stjórn­­­­­mála­­­manna, til að kom­­­ast yfir fisk­veið­i­­kvóta í Namibíu og Angóla. Á sama tíma voru birtar upp­­­lýs­ingar sem bentu til þess að Sam­herji væri mög­u­­­lega að stunda stór­­­fellda skatta­snið­­­göngu og pen­inga­þvætt­i.

Í umfjöllun Stund­­­ar­innar um rann­­sókn­ina í nóv­em­ber var haft eftir Ólafi Þór Hauks­­syni hér­­aðs­sak­­sókn­­ara að rann­­­sóknin á Íslandi væri langt kom­in.

Segjast ekki líða „spillingu af neinu tagi“

Þau brot sem grunur er um að hafi verið framin í Sam­herj­­­a­­­mál­inu varða 109. og 264. grein almennra hegn­ing­­­ar­laga um mút­­­­­ur. Í fyrr­­­nefndu grein­inni segir að hver sem gef­­­ur, lofar eða býður opin­berum starfs­­­manni, gjöf eða annan ávinn­ing, sem hann á ekki til­­­­­kall til, í þágu hans eða ann­­­arra, til að fá hann til að gera eitt­hvað eða láta eitt­hvað ógert sem teng­ist opin­berum skyldum hans skal sæta fang­elsi allt að fimm árum eða sektum ef máls­bætur eru fyrir hendi. „Sömu refs­ingu skal sá sæta sem beinir slíku að erlendum opin­berum starfs­­­manni, erlendum kvið­­­dóm­anda, erlendum gerð­­­ar­­­manni, manni sem á sæti á erlendu full­­­trú­a­­­þingi sem hefur stjórn­­­­­sýslu með hönd­um, starfs­­­manni alþjóða­­­stofn­un­­­ar, manni sem á sæti á þingi slíkrar stofn­unar eða á opin­beru lög­­­gjaf­­­ar­­­þingi í erlendu ríki, dóm­­­ara sem á sæti í alþjóð­­­legum dóm­stóli eða starfs­­manni við slíkan dóm­stól, í því skyni að fá hann til að gera eitt­hvað eða láta eitt­hvað ógert sem teng­ist opin­berum skyldum hans.“

[links]Í 264. grein segir að hver sem tekur við, nýtir eða aflar sér eða öðrum ávinn­ings af broti á hegn­ing­­­ar­lögum eða af refsi­verðu broti á öðrum lög­­­um, eða umbreytir slíkum ávinn­ingi, flytur hann, send­ir, geym­ir, aðstoðar við afhend­ingu hans, leynir honum eða upp­­­lýs­ingum um upp­­­runa hans, eðli, stað­­­setn­ingu eða ráð­­­stöfun ávinn­ings skuli sæta fang­elsi allt að sex árum.

Þá eru einnig til rann­­­sóknar meint brot á ákvæðum kafla XXXVI í almennum hegn­ing­­­ar­lög­um, sem fjalla um auð­g­un­­­ar­brot. Við brotum á ákvæðum þess kafla liggur fang­els­is­refs­ing sem getur verið allt að þrjú til sex ár.

Í nýbirtum árs­reikn­ingi Sam­herja Holding er að finna svo­kall­aða ófjár­hags­lega upp­lýs­inga­gjöf, sem er óend­ur­skoðuð. Þar er meðal ann­ars fjallað um við­skiptasið­ferði og sagt að hjá Samherja sé mik­il­vægt að unnið sé af heil­indum og „við líðum ekki spill­ingu af neinu tag­i.“

Þar segir að undir spill­inum falli „mútu­greiðsl­ur, fyr­ir­greiðslur og ávinn­ingur af sér­hverju tagi í skiptum fyrir óeðli­leg áhrif á ákvarð­ana­töku. Þá er pen­inga­þvætti ekki liðið af neinu tagi og er Sam­herji Holding stað­ráðið í að fara eftir gild­andi lögum gegn pen­inga­þvætti og fjár­mögnun hryðju­verka og munum grípa til við­eig­andi ráð­staf­ana til að koma í veg fyrir og koma auga á ólög­mætar greiðsl­ur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár