Halldór Auðar ekki í framboði fyrir Pírata í vor

Píratar í Reykja­vík fá nýjan odd­vita fyrir næstu borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. Þórlaug Borg Ágústs­dóttir hefur til­kynnt um fram­boð..

Halldór Auðar Svansson, odd­viti Pírata í Reykja­vík hefur til­kynnt að hann muni ekki bjóða sig fram til borg­ar­stjórnar í kom­andi sveit­ar­stjórn­ar­kosn­ingum sem fram fara í lok maí 2018. Þórlaug Borg Ágústs­dóttir hefur til­kynnt um fram­boð Í odd­vita­sætið.

Í stöðu­upp­færslu á Facebook segir Halldór: „Á aðal­fundi Pírata í Reykja­vík til­kynnti ég nú rétt í þessu um erf­iða ákvörðun sem hefur verið lengi í fæð­ingu. Hún hefur - líkt og allar ákvarð­anir - sína kosti og galla en ég tel að hún sé hrein­lega sú rétta. Ákvörð­unin er sú að gefa ekki kost á mér til áfram­hald­andi setu í borg­ar­stjórn að núver­andi kjör­tíma­bili liðnu.

Ég fór alltaf inn í þessa vinnu með það fyrir augum að vera í mesta lagi tvö kjör­tíma­bil og meta eftir því sem á liði hvort ég treysti mér í tvö eða bara eitt. Ég tek hér strax fram að ég kem að sjálf­sögðu til með að taka áfram virkan þátt í gras­rót­ar­starfi Pírata. Ég er ekki að fara neitt nema úr borg­ar­stjórn en það geri ég ekki fyrr en kjör­tíma­bil­inu lýkur. Í nafni heið­ar­leika og gagn­sæis til­kynni ég þessa ákvörðun mína núna. Það eru spenn­andi tímar í vændum og ég mun miðla af minni reynslu til þeirra sem bjóða sig fram til að taka við kefl­inu.

Píratar fóru fram í Reykja­vík með frekar ein­faldar og hnit­mið­aðar áherslur sem ég tel að hafi skilað sér ágæt­lega á kjör­tíma­bil­inu. Ég hef nýtt öll tæki­færi sem ég sé til að koma þessum áherslum inn í borg­ar­kerfið með var­an­legum hætti, með því að leiða stefnu­mót­un­ar­vinnu í upp­lýs­inga­málum og þjón­ustu, og með því að koma á raf­rænni þjón­ustu­mið­stöð sem vinnur þvert á borg­ar­kerfið við að nýta nútíma­tækni til að bæta þjón­ustu­ferla borg­ar­innar - íbúum hennar og starfs­fólki til hægð­ar­auka. Einnig get ég verið stoltur af því að bók­hald borg­ar­innar hefur verið opnað bæði á gagn­virkri gátt á vefnum og með útgáfu þess í formi opinna gagna. Allt eru þetta verk­efni sem hafa notið góðs þverpóli­tísks stuðn­ings, sem er mjög mik­il­vægt upp á að þessar kerf­is­breyt­ingar verði var­an­legar. Ég hef alla trú á því að þær muni á næstu árum skila sér í miklum sýni­legum breyt­ingum á ásýnd stjórn­sýslu borg­ar­innar og öllum hennar stjórn­sýslu­ferlum.

Ég held sumsé að þessar áherslur Pírata hafi verið hár­réttar. Skilvirk upp­lýs­inga­miðlun og aðgangur að upp­lýs­ingum eru frum­for­senda fyrir slíkri aðkomu og það er einmitt þess vegna sem Píratar leggja mikla áherslu á gagn­sæi. Næstu skref munu án efa fel­ast í því að nýta þennan grunn til að opna enn frekar á aðkomu íbúa borg­ar­innar að stjórn­sýslu hennar. Við stjórn­endur hennar höfum verið að fikra okkur áfram í þá átt, meðal ann­ars með því að nýta Betri Reykja­vík til að fá fram skoð­anir almenn­ings á mennta­stefnu borg­ar­innar, sem nú er í mótun.

Sitthvað mælir með því að það verði ég sem stend áfram í brúnni til að fylgja allri þess­ari vinnu fast eftir - en málið er að það er ekki bráð­nauð­syn­legt að það verði ég. Aðal­málið er að Píratar komi sér upp góðri stefnu fyrir Reykja­vík og sveit­ar­stjórn­ar­stigið almennt og keyri hana áfram næsta vor. Það er líka mjög í anda okkar aðferða­fræði að póli­tík eigi ekki að vera flókið fag sem krefst atvinnu­mennsku heldur eigi kerfið að virka þannig að fólk geti stokkið inn í að vinna með það með til­tölu­lega lít­illi fyr­ir­höfn, sé það sæmi­lega klárt. Mín þekk­ing og reynsla munu gagn­ast þó ég verði ekki í fram­lín­unni. Að sinna því hlut­verki hefur bæði verið tölu­vert álag en ég hef líka öðl­ast gríð­ar­lega dýr­mæt reynsla. Ég er hrærður yfir því að hafa verið veitt þetta ein­staka tæki­færi og ég hef kynnst og unnið með mörgu frá­bæru fólki - bæði innan borg­ar­innar og utan hennar. Starf hins kjörna full­trúa er erfitt og snúið en þannig á það líka að vera.

Eins og áður segir er ég auð­vitað ekki alveg far­inn. Síðasta stærsta verk­efni mitt verður að tryggja að kláruð verði almenn lýð­ræð­is­stefna fyrir borg­ina. Ég held sem fyrr segir að gildi form­legrar stefnu­mót­unar sem tæki til að inn­leiða breyt­ingar verði síst van­metið. Þegar þessi verk­efni eru komin í gegn get ég gengið sáttur frá borði og mun bjóða nýja félaga vel­komna í stýr­is­húsið í vor, sem verða sam­kvæmt hefðum og reglum Pírata valdir af félags­mönnum í próf­kjöri.”

Þórlaug Borg Ágústs­dóttir hefur til­kynnt um fram­boð. Í yfir­lýs­ingu hennar segir: „Kæru félagar, ég hef tekið ákvörðun um að sækj­ast eftir 1. sæti á fram­boðs­lista Pírata fyrir borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar í Reykja­vík næsta vor.

Mitt stærsta áhuga­mál og mark­mið hefur lengi verið að breyta heim­inum og síð­ustu 5 árin hef ég gert það með Pírötum þar sem ég hef verið sjálf­boða­liði frá stofnun flokks­ins - og er enn :) Ég hef bæði starfað sem 'Pírati á plani' og var kjörin með­limur í Fram­kvæmda­ráði 2016-17, kafteinn Pírata í Reykja­vík 2014-15 og skip­aði 3. sæti á fram­boðs­lista Pírata til borg­ar­stjórnar Reykja­víkur 2014 ásamt Halldóri Auðar Svans, sem hefur ákveðið að gefa ekki kost á sér aftur.

Sem full­trúi Pírata í sveit­ar­stjórn­ar­meiri­hlut­anum hef ég setið síð­ustu ár í stjórn Faxa­flóa­hafna, er áheyrn­ar­full­trúi Pírata í Skóla- og frí­stunda­ráði og vara­maður Halldórs í Stjórn­kerfis- og lýð­ræð­is­ráði. Ég hef að baki marga stóra slagi og er mætt end­ur­nærð - og bak­veik - til leiks. Sem betur fer hef ég kom­ist að því und­an­farið að bak­veiki er eitt­hvað sem er hægt er að vinna sig fram­hjá þegar maður vinnur með höfð­inu :)

Kæru Reyk­vík­ingar, ég tel okkur standa saman á tíma­mótum og býð ykkur ein­læg­lega alla krafta mína í upp­bygg­ingu á gagn­særra og betra sam­fé­lagi.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár