Fimm til viðbótar handteknir í Brussel í aðgerðum í nótt

Cameron og Hollande fund­uðu í París í morgun vegna hryðju­verkaógnar. Búið að hand­taka 21 í Belgíu.

Bretar munu taka þátt í hern­að­ar­að­gerðum gegn Íslamska rík­inu ef David Cameron for­sæt­is­ráð­herra fær sínu fram­gengt. Hann hyggst leggja fram til­lögur fyrir þingið í næstu viku. Þá hefur hann boðið Frökkum afnot af her­stöð Breta á Kýpur. Þetta kom fram á blaða­manna­fundi Cameron og Francois Hollande Frakk­lands­for­seta, en þeir fund­uðu í París í morgun. Þeir heim­sóttu einnig Bataclan, tón­leika­stað­inn þar sem flestir lét­ust í hryðju­verka­árás­unum fyrir rúmri viku.

Hollande sagði að Frakkar ætl­uðu sér að auka við loft­árásir sínar gegn Íslamska rík­inu til þess að valda sem mestum skaða. Þá hefur flug­móð­ur­skipið Charles de Gaulle verið und­ir­búið til að taka þátt í árás­unum, en skipið er nú þegar undan ströndum Sýrlands. Frakkar ætli sér að halda áfram vinnu við að ná póli­tískri lausn í Sýrlandi, en sagði að Bashar al-Assad Sýr­lands­for­seti gæti ekki gegnt neinu hlut­verki í fram­tíð lands­ins. Hann sagði jafn­framt að það væri þörf á því að öll Evr­ópu­sam­bands­ríkin ynnu saman gegn hryðju­verkum.

Brussel enn á hæsta viðbúnaðarstigi

Sextán ein­stak­lingar voru hand­teknir í Belgíu í gær, á öðrum degi viða­mik­illa aðgerða lög­reglu og hers­ins í tengslum við hryðju­verkin í París og gruns um áætluð hryðju­verk í Brussel. Ráðist var inn á nítján staði í aðgerðum gær­kvölds­ins, en grun­aði hryðju­verka­mað­ur­inn Salah Abdeslam náð­ist ekki.

Um hádegi greindi sak­sókn­ari í Brussel frá því að fimm til við­bótar hefðu verið hand­teknir í frek­ari aðgerðum í nótt.

Enn er hæsta við­bún­að­ar­stig í gildi í Brussel, en ástandið verður end­ur­metið síð­degis. Inn­an­rík­is­ráð­herra Belgíu, Jan Jambon, segir að aðgerðum lög­reglu og hers sé ekki lokið og muni halda áfram næstu klukku­stundir og daga. Of snemmt væri að segja til um það hvort hættan á hryðju­verkum sé minni en hún var um helg­ina. Ástandið sé mjög við­kvæmt.

Allir skólar og neð­an­jarð­ar­sam­göngur í Brussel eru lok­aðar í dag, en stræt­is­vagnar ganga og sumar versl­anir og heil­brigð­is­stofn­anir eru opnar.

Eins og sjá má á með­fylgj­andi mynd Mattew Bello Garrido af Grand Place í mið­borg Brussel eru fáir á ferli.

Öllum heimsóknum til NATO aflýst

Höf­uð­stöðvar Atl­ants­hafs­banda­lags­ins (NATO) eru opnar en hluti starfs­fólks­ins var beð­inn um að vinna að heiman í dag. Þá hefur öllum heim­sóknum í höf­uð­stöðv­arnar verið aflýst, að sögn Reuters. Allar helstu stofn­anir Evr­ópu­sam­bands­ins eru líka opnar en mikil örygg­is­gæsla er alls staðar.

Á lest­ar­stöðvum í Brussel hefur verið tekið upp landamæra­eft­ir­lit á nýjan leik og ekki er hægt að kaupa lest­ar­miða úr borg­inni án þess að sýna vega­bréf.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár