Óskað eftir fundi í utanríkismálanefnd vegna stefnu Trumps

Stefna stjórn­valda er skýr, segir utan­rík­is­ráð­herra. Hags­munir barna eiga að vera í fyr­ir­rúmi.

Óskað hefur verið eftir fundi í utan­rík­is­mála­nefnd Alþingis vegna þeirra aðgerða sem banda­rísk stjórn­völd hafa gripið til, á landa­mærum Banda­ríkj­anna og Mexíkó, þar sem börn hafa verið skilin frá for­eldrum sínum á meðan réttað er í máli for­eldra þeirra. Börnin eru geymd í þar til gerðum búrum, í mörgum til­vikum.

Guð­laugur Þór Þórð­ar­son, utan­rík­is­ráð­herra, segir í við­tali við Frétta­blaðið í dag að afstaða stjórn­valda á Íslandi sé skýr. Hags­munir og rétt­indi barna eigi ávallt að vera í fyr­ir­rúmi. „Miðað við þær fréttir sem ég hef séð þá sam­ræm­ist þetta ekki þeim gildum sem við aðhyll­umst um að rétt­indi barna séu ávallt í fyr­ir­rúmi. Við erum ekki ein um þá skoðun. Til að mynda hafa allar núlif­andi for­seta­frúr Banda­ríkj­anna gagn­rýnt þetta,“ segir Guð­laugur Þór í við­tali við Frétta­blaðið.

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður Vinstri grænna og vara­for­maður utan­rík­is­mála­nefndar, segir í við­tali við Frétta­blaðið að fram­koman við börn sé fyrir neðan allar hellur. „Þetta er ómann­úð­leg fram­koma og van­virð­ing við börn, mann­rétt­indi þeirra og fjöl­skyldur í afar við­kvæmri stöðu. Að mínu mati verða banda­rísk stjórn­völd að snúa strax af þess­ari leið að nota sak­laus börn sem skipti­mynt í umræðum um bygg­ingu landamæra­veggs,“ segir Rósa.

Mikil og hörð umræða á sér staða í Banda­ríkj­unum þessi miss­erin, vegna stefnum rík­is­stjórnar Trumps og dóms­mála­ráð­herr­ans Jeff Sessions, Repúblik­ana frá Alabama. Hann hefur meðal ann­ars vitnað til bibl­í­unnar þegar er verið að rétt­læta aðskilnað barna frá for­eldrum sínum.

Samtök sál­fræð­inga og geð­lækna í Banda­ríkj­unum (APA) hafa mót­mælt þess­ari stefnu harð­lega, og hafa bent á í yfir­lýs­ingum að áhrifin af aðskiln­aði við aðstæður sem þessar, geti verið var­an­lega nei­kvæð og hættu­leg heilsu barna.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár