Trúarbragðakennarar vilja fá Múhameðsteikningar í danska grunnskóla

Danskir trú­ar­bragða­fræði­kenn­arar vilja að skop­mynd­irnar af Múhameð spá­manni, sem Jyllands-Posten birti árið 2005, verði hluti náms­efn­inu í dönskum grunn­skólum og það fyrr en síðar. Þetta kemur fram á vef danska rík­is­út­varps­ins, DR, og er haft eftir for­manni sam­bands trú­ar­bragða­fræði­kenn­ara, John Rydahl.

Rydahl segir að teikn­ing­arnar og málið allt sé til­valið efni fyrir trú­ar­bragða­fræði­kennslu, og hann undr­ast að þær hafi enn ekki dúkkað upp í skóla­bókum.

Teikn­ing­arnar hafa valdið mik­illi úlfúð síðan þær birt­ust í Jyllands-Posten árið 2005, þeim var harð­lega mót­mælt víða eftir birt­ing­una og þær hafa verið sagðar ástæður hryðju­verka.

Þessi umræða skýtur nú upp koll­inum, skömmu eftir hryðju­verkin í Kaup­manna­höfn í síð­asta mán­uði. Þau eru tengd teikn­ingum af Múhameð spá­manni líka, því talið er að hryðju­verkin hafi meðal ann­ars beinst gegn sænska teikn­ar­anum Lars Vilks, enda var hann á fundi um tján­ing­ar­frelsi í menn­ing­ar­hús­inu á Aust­ur­brú þegar ráð­ist var á fund­inn. Hann er nú í felum og seg­ist hættur að teikna skop­myndir.

Samkvæmt danska mennta­mála­ráðu­neyt­inu eru teikn­ing­arnar ekki hluti af námskrá en margir skólar velji að fjalla um málið í félags­fræði-, trú­ar­bragða­fræði- og sögu­tímum.

Skiptar skoð­anir eru þó um málið og for­maður félags sögu- og félags­fræði­kenn­ara í Danmörku er mót­fall­inn því að teikn­ing­arnar verði settar í skóla­bækur. Það geti í raun lokað á umræður um tján­ing­ar­frelsi vegna þess að í skóla­stof­unum sitji börn sem telji að teikn­ingar af Múhameð séu for­kast­an­legar. Dennis Hornhave Jacobsen segir að það sé algjör­lega rétt­læt­an­legt að fjalla um krís­una í tengslum við teikn­ing­arnar og jafn­vel sýna börnum þær, en það eigi að vera algjör­lega á valdi hvers kenn­ara að gera það.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár