Mikill skaði af nýjum skordýrategundum

Hlýnun lofts­lags gerir nýjum mein­dýrum auð­veld­ara að lifa af á Íslandi en þau geta valdið gróðri eða jafn­vel mann­fólki skaða.

Ertuygla
Ertuygla Fiðr­ildalirfa hefur dreift sér um landið en hún leggst bæði á skóg og lúpínu. Mynd: Ivar Leidus

Ný mein­dýr nema land á Íslandi eftir því sem lofts­lag hlýnar og þau sem fyrir eru verða skæð­ari. Skor­dýrin leggj­ast á gróður lands­ins og geta valdið miklum skaða að sögn Brynju Hrafn­kels­dóttur, sér­fræð­ings hjá Landi og skógi.

Í skýrslu vís­inda­nefndar um lofts­lags­breyt­ingar frá því í fyrra er tekið fram að ný skor­dýr hafi í auknum mæli náð fót­festu á Íslandi síð­asta ára­tug. Hlýnandi lofts­lag geri bæði þeim teg­undum skor­dýra sem fyrir eru auð­veld­ara að ná frek­ari útbreiðslu og nýjum teg­undum auð­veld­ara að fóta sig. Lúsmý, til dæmis, bloss­aði upp í Kjós árið 2015 og hefur á skömmum tíma dreift sér um landið.

LúsmýTegundin hefur dreift sér víða um land á tæpum ára­tug.

„Það eru ekki bara nýjar skor­dýra­teg­undir heldur þær sem eru hérna fyrir, gömul skor­dýr sem hafa verið lengi á Íslandi, sem valda meiri skaða,“ …

Kjósa
17
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (2)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • KM
    Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Og það fyrsta árið sem ég var á elliheimili man vel eftir því þegar ég keypti mér kassettu spilara og kom með hann í sveitina ég var ekki búin að eiga tækið mitt lengi þegar stelpan hún Valgerður kalla kom niður til mín og henti tækinu í gólfið svo það mölbrotnaði og sagði að veg væri verri en blóðsugupadda
    -1
  • KM
    Kristjana Magnusdottir skrifaði
    Núna er ég hissa!kom lúsmýið virkilega fyrst upp í hvammi í Kjósinni??
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár