Brynjar og Svandís telja sig ekki vanhæf til að kjósa um vantraust

Stjórn­ar­and­staðan vill láta kjósa um van­traust á Sigríði Andersen í dag. Er með minni­hluta nema nokkrir þing­menn stjórn­ar­innar styðji til­lög­una. Stjórn­ar­þing­menn sem tengj­ast Land­sétt­ar­mál­inu beint ætla að taka þátt. Málið allt póli­tísk ref­skák.

Brynjar Níelsson og Svandís Svavarsdóttir ætla bæði að taka þátt í atkvæðagreiðslunni þrátt fyrir tengingar við Landsréttarmálið.
Brynjar Níelsson og Svandís Svav­ars­dóttir ætla bæði að taka þátt í atkvæða­greiðsl­unni þrátt fyrir teng­ingar við Lands­rétt­ar­málið. Mynd: Samsett.

Stjórn­ar­and­staðan gerir nú sitt ítrasta til að fá það í gegn að kosið verði um van­traust á Sigríði Á. Andersen dóms­mála­ráð­herra í dag. Þetta herma heim­ildir Kjarnans. Þing­fundur mun hefj­ast klukkan 13.30. Ljóst er að riðla þarf dag­skránni eitt­hvað til að svo megi verða.

Rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir hafa sjö manna meiri­hluta á þingi nú þegar kosið verður um van­traust­s­til­lögu Sam­fylk­ing­ar­innar og Pírata á hendur Sigríði. Þing­flokkar Vinstri grænna, Sjálf­stæð­is­flokks og Fram­sóknar eru með 35 menn á þingi en stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir 28.

Munu Rósa og Andrés styðja vantraustið?

Allra augu bein­ast að þing­mönnum Vinstri grænna, þeim Rósu Björk Brynj­ólfs­dóttur og Andrési Inga Jónssyni, sem studdu ekki myndum rík­is­stjórn­ar­innar og styðja þannig ekki rík­is­stjórn­ar­sam­starfið. Samkvæmt heim­ildum Kjarnans von­ast stjórn­ar­and­stöðu­flokk­arnir til að þau tvö muni ekki leggj­ast gegn van­traust­s­til­lög­unni.

Ljóst er hins vegar að það mun ekki vera nóg, til þess að fá meiri­hluta fyrir til­ög­unni þurfa fleiri þing­menn meiri­hlut­ans að sitja hjá í atkvæða­greiðsl­unni eða styðja hana.

Jafn­vel þótt þau tvö myndu styðja van­traust­s­til­lög­una, og öll stjórn­ar­and­staðan líka, þá myndi það ekki duga til þess að fá hana sam­þykkta. Til þess þarf lík­ast til tvo stjórn­ar­þing­menn til við­bótar til að kjósa með henni. Hjá­seta mun ekki duga.

Brynjar og Svandís telja sig ekki vanhæf

Þá vekur það aug­ljós­lega athygli að tveir þing­menn rík­is­stjórn­ar­innar eru nátengdir því máli sem van­traust­s­til­lagan snýst um, þau Brynjar Níelsson og Svandís Svav­ars­dóttir. Brynjar er eig­in­maður Arn­fríðar Ein­ars­dóttur, Lands­rétt­ar­dóm­ara, sem Sigríður Á. Andersen skip­aði þrátt fyrir að vera ekki meðal þeirra sem dóm­nefnd tald­ist hæf­asta til starf­anna.

[links]Þá er Ástráður Har­alds­son fyrr­ver­andi eig­in­maður Svan­dísar og barns­faðir, en hann er einn þeirra sem hlaut ekki emb­ætti við Lands­rétt, þegar meðal ann­arra Arn­fríður var tekin fram fyrir hann, þrátt fyrir að Ástráður væri tal­inn meðal þeirra hæf­ustu til að verða Lands­rétt­ar­dóm­ari. Ástráður vann dóms­mál gegn rík­inu í Hæsta­rétti vegna brota Sigríðar á stjórn­sýslu­lögum og fékk dæmdar miska­bætur.

Bæði Brynjar og Svandís stigu til hliðar við afgreiðslu máls­ins þegar dóm­ar­arnir voru skip­aðir, en á þeim tíma sátu þau bæði í stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefnd, vegna van­hæfis og voru hvor­ugt við­stödd atkvæða­greiðsl­una þegar greitt var um þá atkvæði í þing­inu. Nú er spurn­ingin, munu þau vera fjar­ver­andi þegar kosið verður um van­traustið, sitja hjá eða kalla inn vara­menn.

Í sam­tali við Kjarnann segj­ast þau bæði ætla að taka þátt í atkvæða­greiðsl­unni nú. Brynjar seg­ist fljótt á litið enga ann­marka sjá á því og mun bara kjósa eftir sinni bestu sann­fær­ingu. „Annars hef ég bara ekk­ert velt því fyrir mér, þetta er bara nýkomið en svona fljótt á litið fynd­ist mér annað frá­leitt,“ segir Brynjar.

Svandís seg­ist einnig ætla að taka þátt í atkvæða­greiðsl­unni. „Þetta varðar ekki skipan dóm­ara í Lands­rétt heldur van­traust á ráð­herra í rík­is­stjórn sem ég á sæti í.“

Vinstri græn þurfa að styðja Sigríði

Ljóst er að málið er allt saman hið erf­ið­asta fyrir Vinstri hreyf­ing­una - grænt fram­boð. Einn fyrr­ver­andi vara­þing­maður flokks­ins og fram­kvæmda­stjóri, Drífa Snædal, sagði sig úr flokknum þegar rík­is­stjórnin var mynduð. Við það til­efni sagði Drífa að sam­starf við Sjálf­stæð­is­flokk­inn verði eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil.

„Þá verður VG í þeirri stöðu að verja sam­starfs­flokk­inn og mörkin munu sífellt fær­ast til í sam­starf­inu líkt og í ofbeld­is­sam­bandi. Þetta verður eins og að éta skít í heilt kjör­tíma­bil, ef stjórnin end­ist svo lengi. Með ákvörð­un­inni um stjórn­ar­við­ræður setti flokk­inn niður, trú­verð­ug­leik­inn laskað­ist veru­lega og vinstrið á Íslandi mun eiga erfitt upp­dráttar næstu árin og ára­tug­ina,“ sagði Drífa á Facebook-síðu vinstri grænna.

Með atkvæða­greiðsl­unni er stjórn­ar­and­staðan að setja upp nokkuð klóka póli­tíska skák. Með því að efna til hennar er stjórn­ar­and­staðan að þvinga Vinstri græn til þess að veita Sigríði Andersen póli­tískt skjól og ljá henni traust sitt og póli­tískan stuðn­ing.

Komi til þess að Hæsti­réttur, eða Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evrópu þegar þar að kemur, kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að Lands­rétt­ar­dóm­ar­arnir séu van­hæfir til að dæma við dóm­stól­inn á þeim grund­velli að Sigríður hafi staðið rangt að skip­un­inni er hún komin í afar þrönga stöðu - og rík­is­stjórn­ar­flokk­arnir, og þá helst Vinsti græn.

Sú nið­ur­staða myndi setja íslenskt dóms­kerfi í full­komið upp­nám og veikja póli­tíska stöðu allra þeirra sem að mál­inu hafa komið, og þar með talin Vinstri græn ef þau styðja Sigríði í atkvæða­greiðsl­unni nú.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár