Stöðug endurnýjun heilans alla ævi

Með hækk­andi lífaldri vakna spurn­ingar um getu fólks til að takast á við háan aldur. Hvernig er hugur okkar í stakk búinn til að takast á við þær áskor­anir. Dr. Henning Kirk, sér­fræð­ingur í öldr­un­ar­lækn­ingum, svar­aði þessum spurn­ingum á mál­þingi á dög­unum

Dr. Henning Kirk
Dr. Henning Kirk Mynd: Atli Rúnar Halldórsson

„Hugsaðu með þér þegar þú vaknar á morgn­anna að lífið hefur lengst um 6 klukku­stundir. Á fjög­urra ára fresti getum við bætt við einu ári miðað við fólk sem var uppi fyrir 150 árum,“ segir Dr. Henning Kirk, danskur sér­fræð­ingur í öldr­un­ar­lækn­ingum. Hann hélt erindi undir yfir­skrift­inni Lengra líf - Meiri gáfur á mál­þingi um áskor­anir fyrir vinnu­mark­að­inn vegna hækk­andi lífald­urs sem haldið var þann 26. apríl á Grand Hótel á vegum aðila vinnu­mark­að­ar­ins og líf­eyr­is­sjóð­anna. Hann leit­að­ist við að svara spurn­ingum á borð við hvort hæfni heil­ans haldi í við lengri lífaldur. Hann spurði sig hrein­lega hvort heil­inn geti fylgt eftir þessum hækk­andi lífaldri.

Fordómar einkenna umræðu um háan aldur

Dr. Kirk segir að ákveðnir for­dómar hafi ein­kennt háan aldur og að margir hafi nei­kvæð við­horf til ell­inna. „Ég vil þó halda því fram að hár aldur bjóði einnig upp á ýmis góð tæki­færi og að hann sé ekki ein­ungis nei­kvæður,“ segir hann og telur að það séu kostir og gallar við hækk­andi lífaldur þjóða. Það sé þó allt of mikið ein­blínt á slæmu hlið­arnar, því þær jákvæðu séu líka mjög margar.

Það verður að virkja heilann

„Við höldum áfram að end­ur­nýj­ast alla ævi. End­ur­nýjun heil­ans er alltaf í gangi,“ segir dr. Kirk. Nýjar tauga­frumur mynd­ast fram eftir aldri en hann segir þó að þær mynd­ist ekki af sjálfu sér. Það verði að virkja heil­ann og hann bætir að for­vitni hjálpi þar til. Hann vill einnig leggja áherslu á það að heil­inn sé hluti af lík­am­anum og því sé lík­am­leg hreyf­ing góð fyrir heil­ann. Það sé mik­il­vægt að blóð­flæðið sé gott og að það sé vel hægt þrátt fyrir hækk­andi aldur. Hann segir einnig að húmor og gott skap sé jákvætt og gott og síðan en ekki síst góður svefn. Með því að sofa vel þá séum við að vinna úr upp­lýs­ingum dags­ins.

Önnur ráð til að örva heil­ann er að hlusta á tón­list og að leika sér með tungu­málið, segir Dr. Kirk. Að æfa sig að tala önnur tungu­mál æfir heil­ann og gerir okkur gott. Hann segir að tón­listin upp­fylli þarfir heil­ans, hún örvi fólk lík­am­lega og and­lega. Sér­stak­lega sé gott að vera í and­lega góðu formi og það sé hægt með ýmsum leiðum.

Margir kostir þess að eldast

Helstu kostir þess að eld­ast eru aukin þekk­ing, reynsla, hæfi­leikar, yfir­sýn og sam­skipta­hæfni, að mati Dr. Kirks. „Við höldum áfram að slípa sam­skipta­hæfn­ina eftir því sem við eld­umst.“ Svo ber að nefna sam­kennd­ina en hana telur hann aukast með aldr­inum. 

Góðu frétt­irnar, að mati Dr. Kirk, eru þær að sam­kvæmt rann­sóknum hafi elli­glöp farið minnk­andi í okkar heims­hluta síðan árið 1980. Hann segir að gam­alt fólk fram­tíð­ar­innar muni því vera með betri heila­starf­semi en gam­alt fólk í dag.

Aldurinn sjálfur er ekki vandamál

„Aldur er ekki vanda­mál,“ segir hann. Hann telur að ef fólk eigi við vanda­mál að stríða í líf­inu þá geti það hugs­an­lega auk­ist með aldr­inum en ald­ur­inn sjálfur búi ekki til vanda­málið. Að lokum bendir hann á að mik­il­vægt sé að end­ur­mennta sig og að halda sér ferskum. Fórdómum beri að mæta með upp­lýs­ingu og fræðslu og að allir þurfi að taka höndum saman.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár