Félög sem eiga að fjármagna einkasjúkrahús án starfsleyfis

Félög sem eru sögð eiga að fjár­magna bygg­ingu einka­sjúkra­húss og hót­els í Mos­fellsbæ eru ekki skráð með starfs­leyfi hjá hol­lenska fjár­mála­eft­ir­lit­inu eða seðla­bank­anum þar í landi. Frétta­blaðið greinir frá þessu í dag.

Henri Midd­eldorp, stjórn­ar­for­maður MCPB, sem hyggst standa að fram­kvæmd­unum, hefur sagt að þær verði fjár­magn­aðar með láni frá félag­inu Burbanks Capital, sem sé dótt­ur­fé­lag Burbanks Holding. Hann eigi meiri­hlut­ann í félag­inu. Hann hefur sagt að 50 millj­arðar króna í verk­efnið komi frá fjár­festum utan þess­ara félaga, en féð sé í eigna­stýr­ingu hjá Burbanks. Nú er komið í ljós að félagið hefur ekki leyfi til eigna­stýr­ingar.

Frétta­blaðið ræðir við upp­lýs­inga­full­trúa hjá hol­lenska fjár­mála­eft­ir­lit­inu, sem segir að allir sem veiti fjár­mála­þjón­ustu í Hollandi þurfi starfs­leyfi frá seðla­bank­anum eða fjár­mála­eft­ir­lit­inu.

Midd­eldorp segir hins vegar ekki ekki þurfi starfs­leyfi. „Þú þarft leyfi frá Seðla­bank­anum þegar þú sæk­ist eftir fé opin­ber­lega en við erum ekki að því,“ er haft eftir honum í Frétta­blað­inu. Burbanks Capital hefur þó aug­lýst eftir fjár­festum á Facebook, sem hann segir annað mál.

Kjarninn greindi hins vegar frá því í vik­unni að sótt verði um skattaí­viln­anir vegna verk­efn­is­ins hjá stjórn­völdum. Engar fram­kvæmdir verði hafnar við bygg­ingu einka­sjúkra­húss­ins fyrr en búið er að gera það. Þetta segir Gunnar Ármanns­son, stjórn­ar­maður í félag­inu MCPB.

Þá verða nöfn fjár­festa heldur ekki gerð opin­ber fyrr en umsagn­irnar verða lagðar fram. Gögn um nöfn fjár­festa og mat frá við­skipta­banka verða lögð fyrir stjórn­völd og hafa for­svars­menn sjúkra­húss­ins frest til þess fram til 1. des­em­ber 2017.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár