Fimmti hver íbúi Kaupmannahafnar er fyllibytta

Margir Danir hafa sjálf­sagt hrokkið við þegar ofan­greind fyr­ir­sögn blasti við, með stóru letri í Berl­ingske, einu virtasta dag­blaði Dan­merkur á dög­unum. En dag­setn­ingin var ekki 1. apríl heldur 4. jan­úar og umfjöllun blaðs­ins ekk­ert ára­móta­grín.

Þegar komið er inn í danska mat­vöru­verslun fer ekki fram hjá við­skipta­vin­inum að áfengi, einkum létt­vín og bjór, er mik­il­væg sölu­vara. Eftir því sem versl­an­irnar eru stærri því meira pláss taka hinar „ljúfu veigar“ ekki síst í kringum hátíðir. Í stórri verslun skammt frá heim­ili þessa pistla­höf­undar voru um nýliðin jól og ára­mót stórar stæður af létt­víni og bjór á miðju gólfi, allt auð­vitað á sér­stöku til­boðs­verði, margar teg­undir. Þá er ekki verið að tala um ein­hvern smá­af­slátt heldur iðu­lega rúm­lega helm­ings afslátt frá hinu dag­lega verði sem þó þykir lágt í sam­an­burði við mörg önnur lönd. Og guða­veig­arnar staldra stutt við í búð­inni; þegar fylgst er með þeim sem út fara má iðu­lega sjá fólk með marga kassa af létt­víni (hér eru oft­ast 6 flöskur í kassa) sama gildir um bjór­inn. Enda eru inn­kaupa­kerrur stór­mark­aða bæði stórar og sterk­byggðar.

Minna drukkið í vinnunni


Í umfjöllun Berl­ingske (sem aðrir miðlar hafa síðan tekið upp og fylgt eftir) kemur fram að áfeng­is­neysla Dana hefur minnkað á síð­ustu árum. Bjór­drykkja á vinnu­stöðum hefur minnkað umtals­vert og ekki þykir lengur sjálf­sagt að boðið sé uppá snafs af Gammel dansk þegar ein­hver vinnu­fé­lag­inn á afmæli. Fyrir þremur árum lagði starfs­fólk Carlsberg verk­smiðj­anna niður vinnu hluta úr degi til að mót­mæla hertum reglum fyr­ir­tæk­is­ins, þær kváðu á um að þeir sem ynnu hjá fyr­ir­tæk­inu mættu ein­ungis drekka bjór í matar-og kaffi­tímum. „Kjara­rýrnun“ sagði starfs­fólkið.

[caption id="attachment_16344" align="aligncenter" width="1024"] Starfs­menn Carlsberg mót­mæla hertum reglum fyr­ir­tæk­is­ins varð­andi bjór­drykkju á vinnu­tíma.[/caption]

Carlsberg workers strike over drinking policy
Carlsberg workers strike over drink­ing policy

Þrátt fyrir að áfeng­is­neyslan hafi minnkað eru Danir þeirra þjóða Evrópu sem inn­byrða mest áfengi, um 11.5 lítra á mann af hreinum vín­anda (jafn­gildir 40 flöskum af Vodka sagði Berl­ingske) á ári hverju. Margir telja reyndar að þessi tala sé alltof lág, þegar neyslan sé reiknuð út gleym­ist nefni­lega eitt: landamæra­búð­irnar þýsku.

Sannkölluð stórinnkaup


Það er sér­kenni­leg sjón sem ætíð blasir við á bíla­stæðum stórra þýskra versl­ana skammt frá dönsku landa­mær­unum, hinum svo­nefndu landamæra­versl­unum. Stærðar inn­kaupa­vagnar hlaðnir áfengi og þar má sjá margan hleðslu­sér­fræð­ing­inn að störfum, allir með sama mark­mið í huga: að koma sem mestu fyrir í bílnum og hámarka þannig ágóð­ann af versl­un­ar­ferð­inni. Geysi­mikið magn áfengis og bjórs fer með þessum hætti til Dan­merkur (og reyndar fleiri landa) og það sem þarna er keypt er ekki með í opin­berum tölum um áfeng­is­neyslu. Og munar um minna.

Danska þjóðarsálin


Til skamms tíma hafa Danir lítið gefið fyrir það álit ann­arra að þeir drekki of mikið. Hafa talið það hluta af hinni dönsku þjóð­ar­sál að „hygge sig“ enda af mörgum taldir skemmti­legri heim að sækja en grann­arnir hinum megin við Eyr­ar­sund að ekki sé nú minnst á Norð­menn­ina. Tuborg og Carlsberg, ásamt Gammel Dansk og Ála­borg­ar­áka­víti (ásamt smør­rebrauð­inu) eru þannig hluti þjóð­arsál­ar­innar segja sumir. Og fót­bolti myndu ein­hverjir bæta við!

Fimmti hver Kaupmannahafnarbúi drykkjurútur


Þegar dag­blaðið Berl­ingske greindi frá viða­mik­illi könnun á drykkju­venjum íbúa höf­uð­borgar Dan­merkur undir þess­ari fyr­ir­sögn hrukku margir við. Könnunin, sem var gerð á vegum Heilsu­gæsl­unnar Í Kaup­manna­höfn, stóð yfir um nokkura ára skeið. Nið­ur­stöð­urnar eru slá­andi: nær fimmti hver íbúi borg­ar­innar eldri en 16 ára telst, eða telur sig háðan áfengi og sjö­undi til átt­undi hver íbúi er ofdrykkju­maður sam­kvæmt skil­grein­ingu heil­brigð­is­yf­ir­valda.

[quote font="0" align="right"]Þrjú þús­und dauðs­föll árlega eru bein­línis rakin til óhóf­legrar áfeng­is­neyslu og kostn­aður sam­fé­lags­ins skiptir hund­ruðum millj­óna á ári.[/quote]

Það vekur líka athygli, og áhyggjur, að á sjö­unda hverju heim­ili þar sem börn búa, býr ein­stak­lingur sem drekkur í óhófi. Þetta eru, að mati heil­brigð­is­yf­ir­valda, ugg­væn­legar upp­lýs­ingar og vand­inn mun meiri en fyr­ir­fram var talið. Hliðstæð könnun hefur ekki farið fram ann­ars staðar í land­inu en heil­brigð­is­yf­ir­völd telja sig vita að ástandið sé þar víð­ast hvar skárra en í höf­uð­borg­inni.

Augu Dana að opnast og hvað er til ráða?


Heilsu­gæslan í Kaup­manna­höfn hefur um margra ára skeið boðið upp á nám­skeið sem hjálpa fólki að takast á við áfeng­is­vand­ann en fram til þessa hefur áhugi á slíku verið fremur dræmur. Ýmislegt bendir til þess að þetta sé að breyt­ast. Æ oftar er í fjöl­miðlum fjallað um skað­semi óhóf­legrar áfeng­is­neyslu og tölur um afleið­ing­arnar tala sínu máli. Þrjú þús­und dauðs­föll árlega eru bein­línis rakin til óhóf­legrar áfeng­is­neyslu og kostn­aður sam­fé­lags­ins skiptir hund­ruðum millj­óna á ári.

Heilsu­gæsla og læknar fá nú marg­falt fleiri fyr­ir­spurnir en áður um slík nám­skeið, hvaða fræðsla og mögu­leikar séu í boði fyrir þá sem vilja gera eitt­hvað í sínum málum o.s.frv. Fræðslu­yf­ir­völd boða líka aukna fræðslu fyrir kenn­ara, á grunn-og leik­skóla­stigi, til að þeir verði betur færir til að ræða við for­eldra um þessi mál.

Í tengslum við áður­nefnda könnun og umfjöllun ræddu blaða­menn Berl­ingske við fjöl­marga sem tengj­ast heil­brigð­is­málum og einnig stjórn­mála­menn. Allir við­mæl­endur blaðs­ins voru sam­mála um að Danir verði að bregð­ast við, fræðsla og opin umræða sé rétta, og eina leiðin, til að ná árangri. Blaðinu verði hins­vegar ekki snúið við á einum degi, það sem blasi við sé sann­kallað lang­tíma­verk­efni.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár