Greiddi 42 milljónir í arð út úr rekstri meðferðarheimilis

Ríkið leggur heim­il­inu til allt rekstr­ar­féð.

Rekstr­ar­að­ili með­ferð­ar­heim­ilis á Lauga­landi í Eyja­firði fyrir börn greiddi sér 42 millj­ónir króna í arð út úr rekstr­inum, eftir að hafa stofnað einka­hluta­fé­lag um rekst­ur­inn en ríkið leggur heim­il­inu til rekstr­arfé.

Frá þessu er greint í Frétta­blað­inu í dag.

Lauga­land er einka­rekið með­ferð­ar­heim­ili fyrir ung­menni í vímu­efna­vanda og starfar sam­kvæmt rekstr­ar­samn­ingi og undir yfir­stjórn Barna­vernd­ar­stofu, sem sinnir jafn­framt eft­ir­liti með heim­il­inu. Félagið Pétur G. Brodda­son ehf., sam­nefnt eig­and­anum, var stofnað vegna rekst­urs­ins.

Í við­tali við Frétta­blaðið segir Pétur að greiðsl­urnar séu lögum sam­kvæmt og þær séu hluti af hans launum fyrir að reka með­ferð­ar­heim­ilið.

Rík­is­end­ur­skoðun hvatti á árinu 2011 vel­ferð­ar­ráðu­neytið til að taka afstöðu til einka­rek­inna með­ferð­ar­heim­ila sem rekstr­ar­forms. Þremur árum síðar skýrði ráðu­neytið Rík­is­end­ur­skoðun frá því að í burð­ar­liðnum væri stofnun til að taka að hluta til við verk­efnum einka­rek­inna með­ferð­ar­heim­ila, að því er segir í Frétta­blað­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár