Sigmundur segist ekki hafa fullyrt um lögbrot í máli Víglundar

Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son for­sæt­is­ráð­herra seg­ist aldrei hafa full­yrt að lög hafi verið brotin í sam­hengi við end­ur­reisn banka­kerf­is­ins, heldur hafi hann full­yrt að menn hafi „tekið rangar og skað­legar póli­tískar ákvarð­anir“ og kastað miklum verð­mætum á glæ þegar bank­arnir voru end­ur­reistir. Hann sagði póli­tíska and­stæð­inga hafa reynt að leiða umræð­una að meintum lög­brotum vegna þess að þeir treystu sér ekki í umræðu um það sem málið snérist um, þessar röngu pólítísku ákvarð­anir.

Þetta sagði Sig­mundur Davíð í óund­ir­búnum fyr­ir­spurn­ar­tíma á Alþingi í dag.

Árni Páll Árnason, for­maður Sam­fylk­ing­ar­innar, og Róbert Marshall, for­maður Bjartar fram­tíðar, spurðu hann báðir um skýrslu Brynjars Níels­sonar á þing­inu í dag. Skýrslan fjallar um ásak­anir Víg­lundar Þor­steins­sonar um að ráð­herrar, emb­ætt­is­menn og banka­menn hafi gerst sekir um stór­felld og marg­vís­leg lög­brot þegar lán ein­stak­linga og fyr­ir­tækja voru flutt úr gömlu bönk­unum í þá nýju. Hann tal­aði um svik og blekk­ingar í þessu sam­bandi.

Brynjar Níelsson skil­aði skýrslu sinni vegna máls­ins til stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis í gær. Hann segir úti­lokað að taka undir ásak­anir Víg­lundar um svik og blekk­ingar, og að hann finni engin merki um lög­brot. Eðlilegt sé þó að lagaum­gjörðin á Íslandi verði skoðuð sem og ferlið við end­ur­reisn bank­anna.

Þegar ásak­an­irnar komu fram síð­ast í jan­úar sagði Sig­mundur Davíð að ásak­anir Víg­lundar væru „við fyrstu sýn býsna slá­andi.“ Jafn­framt sagði hann að „þessi gögn virð­ast stað­festa það sem okkur grun­aði áður og varð að mjög heitu póli­tísku máli á sínum tíma.“

Hann sagði aug­ljóst að gögn Víg­lundar kall­aði á frek­ari athugun og að þau gefi það sterk­lega til kynna að menn hafi gengið mjög langt í að snúa við nið­ur­stöðu sem komin var, sem hefði verið miklu hag­stæð­ari almenn­ingi, í þeim eina til­gangi að þókn­ast kröfu­höfum bank­anna. Sig­mundur sagði einnig að menn hafi fundið leiðir til þess að fara fram­hjá neyð­ar­lög­unum, og boð­aði rann­sókn á mál­inu.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár