Eðlilegt að fara yfir endurreisn bankakerfis

Brynjar Níelsson sér þess ekki merki að við end­ur­reisn bank­anna þriggja hafi verið beitt svikum og blekk­ingum eða að farið hafi verið á svig við lög. Þrátt fyrir það segir hann eðli­legt að skoðað verði, að minnsta kosti að ein­hverju leyti, hvort veiga­miklar ákvarð­anir hafi í öllum til­vikum verið eðli­legar á þeim tíma sem þær voru teknar og hvort mál­efna­leg sjón­ar­mið hafi alltaf legið þar að baki.

Þetta kemur fram í skýrslu hans til stjórn­skip­unar- og eft­ir­lits­nefndar Alþingis vegna erindis Víg­lundar Þor­steins­sonar, en Víglundur hefur haldið því fram að svikum og blekk­ingum hafi verið beitt við end­ur­reisn banka­kerf­is­ins og útlend­ingar hafi hagn­ast um hund­ruð millj­arða á því.

Brynjar segir nauð­syn­legt og eðli­legt að skoða allt ferlið við end­ur­reisn banka­kerf­is­ins og aðgerðir við end­ur­skipu­lag­ingu skulda fyr­ir­tækja og ein­stak­linga í því skyni að styrkja lagaum­gjörð­ina og skýra form­reglur stjórn­sýsl­unnar. Einhver kostn­aður muni fylgja end­ur­skoðun og yfir­ferð af þessu tagi en hún er engu að síður nauð­syn­leg að mati Brynjars.

Gögn Víglundar ófullnægjandi


Þá segir Brynjar í skýrsl­unni að gerð hennar hafi tekið lengri tíma en áætlað var, fyrst og fremst vegna þess að gögnin sem fylgdu erindi Víg­lundar til Alþingis hafi verið ófull­nægj­andi. „Því var ekki hægt að leggja mat á þær full­yrð­ingar og ásak­anir sem þar komu fram, án þess að afla frek­ari gagna, fara yfir lög, reglur og stjórn­sýslu­á­kvarð­anir sem tengd­ust mál­efn­inu og ræða við ýmsa sem voru með einum eða öðrum hætti þátt­tak­endur í atburða­rásinni og aðra sem miðlað gátu af þekk­ingu sinni.“

Þá segir Brynjar að full­yrða megi þegar horft sé til baka að margt hefði mátt gera betur, en hvað sem því líði verði ekki hjá því horft að tek­ist hafi að end­ur­reisa banka­kerfið „og greiðslu­miðlun féll ekki niður einn ein­asta dag. Hér stóðu stjórn­mála­menn, emb­ætt­is­menn og sér­fræð­ingar frá haustinu 2008 frammi fyrir nán­ast óvinn­andi verk­efni við for­dæma­lausar aðstæður. Það verk­efni var, þrátt fyrir allt, leyst af hendi og ástæða er til að fagna því.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár