„Fráleit hugmynd og kemur ekki til greina“

Þing­maður Vinstri grænna hvetur aðra þing­menn til þess að berj­ast fyrir því að fólk sem hingað sækir fái sann­gjarna, rétt­láta og mann­úð­lega máls­með­ferð. Hún segir hug­mynd dóms­mála­ráð­herra um að vista flótta­fólk á afmörk­uðu svæði frá­leita.

Bjarkey Olsen Gunnarsdóttir, þingmaður VG.
Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­maður VG. Mynd: Bára Huld Beck

Bjarkey Olsen Gunn­ars­dóttir, þing­maður Vinstri grænna, segir að hún muni berj­ast fyrir því að fólk sem hingað sækir fái sann­gjarna, rétt­láta og mann­úð­lega máls­með­ferð. Hún von­ast til þess að aðrir þing­menn, og sér­stak­lega þeir sem hafa tjáð sig um orð Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra um þá hug­mynd að vista fólk á afmörk­uðu svæði eftir að ákveðið hefur verið að vísa því af landi brott, muni standa með sér í því. Þing­mað­ur­inn segir að hug­myndin sé frá­leit og að hún komi ekki til greina.

Þetta kom fram í máli Bjarkeyjar undir liðnum störf þings­ins á Alþingi í dag.

Hún sagði jafn­framt að það sem um ræðir væri að sjálf­sögðu ekk­ert annað en flótta­manna­búðir eða jafn­vel bara fang­elsi og að ekki kæmi til greina að setja slíkt á lagg­irnar af hálfu þing­flokks Vinstri grænna.

„Eins og ráð­herr­ann sagði þyrfti laga­breyt­ingu til að slíkt yrði að raun­veru­leika og ég leyfi mér að full­yrða að slíkt frum­varp kæm­ist ekki í gegnum minn þing­flokk, enda er slíkt mál hvergi að finna á þing­mála­skrá ráð­herr­ans og ekk­ert sem hún sagði gefur til kynna að það eigi að hrinda slíku í fram­kvæmd. Þótt þing­mála­skrár séu oft upp­færðar með til­liti til stöð­unnar í sam­fé­lag­inu myndi afstaða Vinstri grænna ekki breyt­ast ef slíkt mál birt­ist þar,“ sagði hún.

Djúp vonbrigði

[links]Fjöl­margir þing­menn gagn­rýndu orð dóms­mála­ráð­herra á sam­fé­lags­miðlum í gær. Andrés Ingi Jónsson, þing­maður utan flokka, sagði meðal ann­ars að hug­myndin væri arfa­slæm.

Þór­hildur Sunna Ævars­dótt­ir, þing­maður Pírata, gerði athuga­semdir við mál­flutn­ing dóms­mála­ráð­herra á Face­book í gær. „Þegar for­sæt­is­ráð­herra sagði í stefnu­ræðu sinni að end­ur­skoða ætti hags­muna­mat flótta­barna hugs­aði ég, hvað þýðir það í alvöru Katrín? Nú er dóms­mála­ráð­herra búin að gefa okkur smjör­þef­inn af því sem koma skal. Geymum flótta­börn í fanga­búð­u­m!“ skrif­aði hún á Facebook.

„En við skulum ekki kalla það fanga­búð­ir, VG gæti fund­ist það aðeins of óþægi­legt – köllum það frekar „af­mörkuð brott­vís­un­ar­svæði“ – miklu meira pent.“

Rósa Björk Brynj­ólfs­dótt­ir, þing­maður utan flokka og fyrr­ver­andi VG-liði, sagði á Twitter í gær að það væru djúp von­brigðin verið væri að „íhuga þennan ómann­eskju­lega mögu­leika að safna saman á einn stað fólki sem ákveðið hefur verið að vísa burt“. Hún spurði enn fremur á hvaða veg­ferð rík­is­stjórn – leidd af VG – væri þegar kemur að mál­efnum flótta­fólks og hæl­is­leit­enda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár