„Arfaslæm hugmynd“ að vista flóttafólk á afmörkuðu brottvísunarsvæði

Ekki eru allir par­sáttir við vanga­veltur dóms­mála­ráð­herra um að koma fólki fyrir á afmörk­uðu svæði eftir að ákveðið hefur verið að vísa því úr landi.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra.
Áslaug Arna Sig­ur­björns­dóttir dóms­mála­ráð­herra. Mynd: Bára Huld Beck

„Hér viðrar dóms­mála­ráð­herra arfa­slæma hug­mynd um lokuð svæði fyrir flótta­fólk sem bíður brott­vís­unar.“ Þetta segir Andrés Ingi Jónsson, þing­maður utan flokka, á Facebook í dag en þarna vísar hann í orð Áslaugar Örnu Sig­ur­björns­dóttur dóms­mála­ráð­herra í óund­ir­búnum fyr­ir­spurna­tíma á Alþingi í dag.

Þar viðr­aði hún þá hug­mynd að vista fólk á afmörk­uðu svæði eftir að ákveðið hefur verið að vísa því af landi brott, til að koma í veg fyrir að það týn­ist hér á landi. Til þess þyrfti laga­breyt­ingu en verk­lagið við fram­kvæmd brott­vís­ana væri nú til skoð­unar.

Andrés Ingi bendir á að þessi leið hafi verið prófuð í Danmörku og ekki gefið góða raun. „Danska rík­is­stjórnin ákvað á síð­asta ári að loka búð­unum í Sjæls­mark, þar sem flótta­fólk hefur þurft að búa við ómann­úð­legar aðstæður mán­uðum og jafn­vel árum saman. Ástandið í búð­unum hefur verið smán­ar­blettur á dönsku sam­fé­lagi, sér­stak­lega sú slæma staða sem börn hafa búið við, og til marks um þá mann­fjand­sam­legu útlend­inga­stefnu sem of lengi hefur verið rekin þar í landi. Helst er deilt um að sé ekki löngu búið að loka búð­unum,“ skrifar hann.

Á sama tíma viðri íslenski dóms­mála­ráð­herr­ann hug­myndir um að koma slíkum flótta­manna­búðum á lagg­irnar. „Þetta væri risa­vaxið skref í kol­vit­lausa átt - og svo sann­ar­lega ekki eitt­hvað sem rík­is­stjórn gerir ef henni er alvara með að tryggja betur hags­muni barna sem hingað koma í leit að skjóli,“ skrifar þing­mað­ur­inn.

Spurði út í eftirlitið

Þor­steinn Sæmunds­son, þing­maður Mið­flokks­ins, spurði Áslaugu Örnu hvernig eft­ir­liti væri háttað og hvort leitað væri að fólki sem til stæði að vísa brott af land­inu en hefði látið sig hverfa.

Vísaði hann í svar rík­is­lög­reglu­stjóra við fyr­ir­spurn Morg­un­blaðs­ins um ein­stak­linga á skrá sem ekki hafa fund­ist þegar vísa átti þeim úr landi und­an­farin tvö ár. „Samkvæmt svari rík­is­lög­reglu­stjóra er um 64 ein­stak­linga að ræða, hvort tveggja er að þetta eru umsækj­endur um alþjóð­lega vernd og aðrir sem vísað hefur átt úr landi vegna ólög­legra dvalar á Íslandi.

„Lög­reglan virð­ist ekki hafa eft­ir­lit með þessum hópi og það hefur flogið fyrir að hér á landi dvelj­ist að stað­aldri hópur fólks sem hefur komið hingað ólög­lega, þá er ég ekki að tala um fólk í hæl­is­leit eða slíku heldur aðra aðila. Í fram­haldi af því verður maður að spyrja hæstv. ráð­herra hvernig því eft­ir­liti sé háttað og hvort í athugun sé að form­binda það eða auka með ein­hverjum hætti. Af þeim ástæðum sem ég hef rakið er full ástæða til að fylgj­ast með þessu grannt og gera ráð­staf­anir til þess að hér verði brag­ar­bót á,“ sagði Þor­steinn.

Tilkynningarskylda á aðilum sem á að brottvísa

Áslaug Arna svar­aði og sagði að við stoð­deild rík­is­lög­reglu­stjóra ynnu tíu manns og að þar væri ákveðið verk­lag sem hún hefði nýlega farið yfir með þeim. „Fyrst og fremst er ákveðin til­kynn­ing­ar­skylda á aðilum sem á að brott­vísa og hafa ekki farið sjálfir úr landi. Ef hún bregst kemur annað verk­lag í kjöl­farið,“ sagði hún.

Þor­steinn sagð­ist vera engu nær um það hvort ráð­herra væri ljóst hvernig þessum málum væri farið.

„Ég vil líka nefna annan vinkil. Fólki í þessum kring­um­stæðum er hætt­ara við man­sali, við því að verið sé að hýru­draga það og svo fram­vegis. Þess vegna spyr ég ráð­herra aftur hvort ekki standi til að gera gang­skör í að efla eft­ir­lit þannig að þessir aðilar séu ekki á þennan ólög­lega hátt á Íslandi,“ sagði þing­mað­ur­inn.

„Það gerist þá ekki að aðilar séu týndir í samfélaginu“

Áslaug Arna svar­aði í annað sinn og sagði að skoða þyrfti ákveðin úrræði í þessu sam­hengi. „Það hafa verið umræður í Evr­ópu­löndum um ákveðin úrræði, að hafa fólk á ákveðnu svæði, sem við höfum til dæmis ekki fram­fylgt með breyt­ingum á okkar lögum. Það er víða í lönd­unum í kringum okkur þar sem þessu er háttað þannig að aðilar eru á ákveðnu svæði eftir að þeir fá til dæmis neitun frá báðum stjórn­sýslu­stigum til að það sé hægt að fram­kvæma þetta með auð­veld­ari hætti. Það ger­ist þá ekki að aðilar séu týndir í sam­fé­lag­inu og ekki sé hægt að fram­fylgja ákvörð­unum. Það eru laga­breyt­ingar sem þyrfti að ráð­ast í en ann­ars erum við að skoða verk­lagið í heild sinni í þessu eins og öðru,“ sagði hún.

Þá end­aði hún mál sitt á að segja að þau væru enn fremur að skoða hvað þau gætu gert betur varð­andi skipu­lagða brota­starf­semi og man­sal og að þau sætu nú yfir því með öllum lög­reglu­emb­ætt­unum.

Áslaug Arna búin að gefa „okkur smjörþefinn af því sem koma skal“

Þór­hildur Sunna Ævars­dóttir, þing­maður Pírata, gerði athuga­semdir við mál­flutn­ing dóms­mála­ráð­herra á Facebook í dag. „Þegar for­sæt­is­ráð­herra sagði í stefnu­ræðu sinni að end­ur­skoða ætti hags­muna­mat flótta­barna hugs­aði ég, hvað þýðir það í alvöru Katrín? Nú er dóms­mála­ráð­herra búin að gefa okkur smjör­þef­inn af því sem koma skal. Geymum flótta­börn í fanga­búðum!“ skrifar hún.

„En við skulum ekki kalla það fanga­búðir, VG gæti fund­ist það aðeins of óþægi­legt – köllum það frekar „afmörkuð brott­vís­un­ar­svæði“ – miklu meira pent.“

Fyrrverandi þingmaður VG spyr á hvaða vegferð flokkurinn sé

Þing­maður Vinstri grænna, Kolbeinn Ótt­ars­son Proppé, tjáði sig einnig um málið á sam­fé­lags­miðlum í dag en hann sagði þetta vera frá­leita hug­mynd og benti hann á að hana væri ekki að finna á þing­mála­skrá ráð­herr­ans, í ætl­unum fjár­laga eða fjár­mála­á­ætl­unar. „Fari svo að slík hug­mynd komi fram í tengslum við þessa end­ur­skoðun á verk­lagi mun ég aldrei sam­þykkja slíkt,“ skrifar hann.

Rósa Björk Brynj­ólfs­dóttir, þing­maður utan flokka og fyrr­ver­andi VG-liði, segir á Twitter að það séu djúp von­brigðin verið sé að „íhuga þennan ómann­eskju­lega mögu­leika að safna saman á einn stað fólki sem ákveðið hefur verið að vísa burt“. Hún spyr enn fremur á hvaða veg­ferð rík­is­stjórn – leidd af VG – sé á þegar kemur að mál­efnum flótta­fólks og hæl­is­leit­enda.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

hælisleitendur

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár