„Atvinnulífið hefur ekki sýnt vott af samfélagsábyrgð á miklum óvissutímum“

Formaður VR segir atvinnu­lífið hafa nýtt sér við­kvæma stöðu í sam­fé­lag­inu, Þar sem verð­bólga er há og vextir í hæstu hæðum, til að skapa sér „for­dæma­laust góð­æri á kostnað almenn­ings.“

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, telur mik­il­vægt að verka­lýðs­hreyf­ingin setji fyr­ir­vara í kjara­samn­inga um aukin kaup­mátt, lægri verð­bólgu og vaxta­stig og raun­veru­legan hvata fyrir atvinnu­lífið um að slík mark­mið náist, því síð­ustu mán­uðir hafi sýnt að ansi margt sem geti breyst á stuttum tíma. „Atvinnu­lífið hefur ekki sýnt vott af sam­fé­lags­á­byrgð á miklum óvissu­tímum heldur nýtt sér við­kvæma stöðu til að skapa sér for­dæma­laust góð­æri á kostnað almenn­ings.“

[links]Þetta kemur fram í færslu sem Ragnar Þór birti á Facebook í dag.

Þar fer hann yfir það sem hann kallar stað­reyndir um stöðu mála í yfir­stand­andi kjara­við­ræðum, sem virð­ast nú fyrst og síð­ast snú­ast um að gera skamm­tíma­samn­ing út jan­úar 2024, eða til 14 mán­aða, líkt og Starfs­greina­sam­bandið skrif­aði undir fyrir nokkrum dögum.

Ragnar spyr í færsl­unni hvað hafi gerst á síð­ustu 14 mán­uðum? „Fyrir 14 mán­uðum voru stýri­vextir 1,5% en eru í dag 6%. Fyrir 14 mán­uðum var 12 mán­aða verð­bólga 4,4% en er í dag 9,3%. Fyrir 14 mán­uðum stefndi í metaf­komu fyr­ir­tækja, í dag stefnir í enn betri afkomu.“

Í fyrra hafi hreinar vaxta­tekjur stærstu bank­anna þriggja, Lands­bank­ans, Íslands­banka og Arion banka verið 72,2 millj­arðar en í ár stefni þær í að verða yfir 102 millj­arðar króna. Í fyrra hafi verið 4,4 pró­sent hag­vöxtur en í ár stefni í að hann fari yfir 6,5 pró­sent. „Gríð­ar­leg óvissa blasir við íslenskum heim­ilum en óvissan í atvinnu­líf­inu og fjár­mála­kerf­inu snýst að mestu um hversu mikil aukn­ing verður á afkomu frá metár­inu í fyrra. Þess vegna er mik­il­vægt að verka­lýðs­hreyf­ingin setji fyr­ir­vara í kjara­samn­inga um aukin kaup­mátt, lægri verð­bólgu og vaxta­stig og raun­veru­legan hvata fyrir atvinnu­lífið um að slík mark­mið náist.“

Vilhjálmur sorgmæddur og dapur

Mikil ólga er í verka­lýðs­hreyf­ing­unni eftir að Starfs­greina­sam­bandið skrif­aði undir kjara­samn­ing fyrir flest aðild­ar­fé­lög sín sem gildir út jan­úar 2024 á laug­ar­dag.

[adspot]Vil­hjálmur Birg­is­son, for­maður Starfs­greina­sam­bands­ins, sagði í færslu á Facebook á sunnu­dag að samn­ing­ur­inn sem náð­ist við Sam­tök atvinnu­lífs­ins sé „sá lang­besti sem ég hef komið að á mínum 20 árum sem for­ystu­maður í verka­lýðs­hreyf­ing­unni, hvað verka­fólk á hinum almenna vinnu­mark­aði varð­ar“. Það sé „stað­reynd sem eng­inn getur and­mælt“.

Sólveig Anna Jóns­dóttir, for­maður Eflingar, og Ragnar Þór hafa bæði gagn­rýnt samn­ing­inn og meðal ann­ars sagt hann veikja samn­ings­stöðu verka­lýð­hreyf­ing­ar­innar gagn­vart rík­inu. VR er stærsta stétt­ar­fé­lag lands­ins og Efling það næst stærsta.

Vil­hjálmur sagði í umræddri færslu hann við­ur­kenndi það fús­lega að vera sorg­mæddur og dapur „að sjá fólk sem ég taldi vera góða vini mína stinga mig í bakið með því að segja að ég hafi nán­ast framið „glæp“ með þessum samn­ingi. Samn­ingi sem gildir í rétt rúmt ár með launa­hækk­unum til þeirra sem höllustum fæti standa á íslenskum vinnu­mark­aði, hækk­unum sem ekki eiga sér hlið­stæðu hvað verka­fólk á hinum almenna vinnu­mark­aði varð­ar.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár