Óeðlilegt augnaráð vakti ótta um banvænan sjúkdóm

Bænd­urnir á Bergs­stöðum, þar sem riða var stað­fest nýverið, eru vand­aðir og til „mik­illar fyr­ir­myndar í öllum aðbún­aði,“ segir Sig­ur­borg Daða­dóttir yfir­dýra­læknir. „Þeir þekkja sín dýr það vel að þeir komu strax auga á að ekki var allt eins og það átti að vera.“

Leiddar til slátrunar
Leiddar til slátr­unar Aflífa þarf allt fé á Bergs­stöðum vegna riðusmits­ins sem þar hefur verið stað­fest. Mynd: Shutterstock

Ekki gilda sér­stakar reglur um aflífun lembdra áa, ekki frekar en ann­arra feng­inna dýra, segir Sig­ur­borg Daða­dóttir yfir­dýra­læknir spurð út í örlög alls þess sauð­fjár og óbor­inna lamba sem til stendur að aflífa af bænum Bergs­stöðum í Vestur-Húna­vatns­sýslu eftir að riðutil­felli var stað­fest þar nýverið. 

Féð verður flutt að slát­ur­húsi og það aflífað í yfir­byggðri slát­ur­hús­rétt með skoti í höf­uðið, eins og gert er við hefð­bundna slátrun. Þar með berst ekki lengur súr­efni til fóst­urs og það deyr. Að sögn Sig­ur­borgar er miðað við að dýr sem gengin eru lengra en 90 pró­sent með­göng­unnar séu ekki flutt frá dval­ar­stað sínum til aflíf­unar „en féð er gengið skemur á með­göngu í þessu til­viki“. 

Riðan handan við ásinn

Á Bergs­stöðum eru 690 kindur og „öllu máli skiptir að aflífa þær sem fyrst,“ segir Sig­ur­borg. Þá verður einnig að aflífa allt það fé sem selt hefur verið frá bænum síð­ustu árin. Bergs­staðir eru gott kyn­bótabú og bændur þar „vand­aðir og var­kárir,” segir Sig­ur­borg. 

Landinu er skipt upp í varn­ar­hólf gegn sauð­fjár­sjúk­dómum og Mið­fjarð­ar­hólfið, sem Bergs­staðir eru innan, hefur hingað til verið alfarið laust við riðu­veiki. Þótt hætta á smiti hafi verið til staðar um langa hríð, ekki síst vegna þess að stutt er í bæi í næsta hólfi þar sem riða hefur greinst reglu­lega und­an­farin ár, segir Sig­ur­borg tíð­indin „gríð­ar­leg von­brigði fyrir alla“ – en fyrst og fremst fjár­bændur á svæð­inu, þeirra sem nú þurfa að fella sitt fé og þeirra sem búa við óviss­una um hvort sjúk­dóm­ur­inn kunni að leyn­ast í hjörðum þeirra.

Virkilega eina leiðin?

Spurn­ingar hafa vaknað, m.a. á spjall­síðum sauð­fjár­bænda, um hvort tími sé kom­inn til að breyta aðferða­fræð­inni í bar­átt­unni gegn riðu - hvort virki­lega sé þörf á því að fella allt fé á bæjum þar sem nokkur til­felli riðu grein­ast.

Sig­ur­borg telur aflífun einu aðferð­ina sem hægt sé að beita við þessar aðstæður. Sjúk­dóm­ur­inn geti verið mjög smit­andi, valdi ávallt dauða, sé aðeins hægt að greina með sýni úr heila og hvorki sé til lyf né bólu­efni gegn honum. Og í raun borin von að slíkt verði að veru­leika. Það skýrist af því að smitefnið sem veldur riðu er prótein sem hvorki er veira né bakt­ería.

Við höfum miklar áhyggjur af því að riðu sé að finna í fé á öðrum bæjum í grennd við Bergs­staði.
Sig­ur­borg Daða­dóttir,
yfir­dýra­læknir

Einkennileg hegðun

Riða er hæg­fara heila­hrörn­un­ar­sjúk­dómur. Ein­kennin geta verið ýmis konar. Nafnið riða er komið til af því að kind­urnar fara að ganga und­ar­lega, „slettast til í gangi,“ útskýrir Sig­ur­borg, vegna þess að þær missa mátt í aft­ur­fót­unum. En skringi­leg hegðun, tin í höfði og kláði vegna tauga­verkja eru einnig meðal ein­kenna. 

Bænd­urnir á Bergs­stöðum eru vand­aðir og til „mik­illar fyr­ir­myndar í öllum aðbún­aði,“ ítrekar Sig­ur­borg. „Þeir þekkja sín dýr það vel að þeir komu strax auga á að ekki var allt eins og það átti að vera.“ Að það örl­aði á ein­kenni­legri hegðun, að ein kindin var orðin “óeðli­leg til augn­anna” og ólík sjálfri sér. Þeir höfðu þegar í stað sam­band við Mat­væla­stofnun sem sendi fólk á vett­vang til að taka sýni sem svo reynd­ust stað­festa rið­una.  

Ekki vitað hvernig smitið barst

Enn er ekk­ert vitað hvernig smitið barst inn á Bergs­staði. Og í raun er ekki hægt að úti­loka að það hafi borist á aðra bæi í sama hólfi og þaðan á Bergs­staði. Frá því að smitefni berst inn í dýrið og þar til sjúk­dóms­ein­kenni koma fram geta liðið 1-2 ár, jafn­vel allt að fimm ár. Því er að mati Sig­ur­bogar ekki hægt „að vera með ein­hverjar get­gátur“ um hvaðan smitið nákvæm­lega kom og hvenær.

Yfir­dýra­læknirSig­ur­borg Daða­dóttir

Smit getur borist með ýmsu móti svo sem fóðri, bún­aði og jafn­vel fólki. En helsta smit­leiðin er beint frá dýri til dýrs. Að drekka úr sömu drykkj­ar­skál og éta úr sömu jötu eru t.d. þekktar smit­leiðir. 

„Í þessu til­viki er í raun örstutt til þekktra riðu­bæja í öðru hólfi, bæja sem eru handan við ásinn liggur mér við að segja,“ segir Sig­ur­borg. „Á milli er varn­ar­girð­ing sem á að vera held. En kindur eru nán­ast eins og kettir, þær fara sínar leiðir.“

Hverfandi smithætta á fjalli

Senn líður að sauð­burði og að honum loknum er fé rekið á fjall. Þarf að gæta sér­stak­lega að ein­hverju í því sam­bandi?

„Það er hverf­andi smit­hætta þegar féð er á beit,“ byrjar Sig­ur­borg á að útskýra. „En hættan er mikil í kringum sauð­burð því þá er smitefnið í svo miklu magni.“ Riða smit­ast með snert­ismiti og því hættan mest þegar þétt­leik­inn er mik­ill í fjár­hús­unum. Að auki eru lömb með­tæki­legri fyrir smiti.

„Við höfum miklar áhyggjur af því að riðu sé að finna í fé á öðrum bæjum í grennd við Bergs­staði,“ segir Sig­ur­borg. Þær áhyggjur eru ekki síst til­komnar vegna þess að Bergs­staðir eru mjög gott fjár­rækt­arbú og hrútar frá bænum hafa verið eft­ir­sóttir til kyn­bóta. Því hefur tölu­vert af líffé, líkt og það er kallað, verið selt á aðra bæi innan hólfs­ins. Á ára­tug hafa tæp­lega 100 dýr verið seld frá Bergs­stöðum og á síð­ustu fimm árum rétt innan við 40 dýr. Þar af eru tutt­ugu lif­andi í dag.

Fella þarf öll þau dýr sem fyrst og rann­saka heila þeirra, nánar til­tekið mænu­kylfu heil­ans, til að fá úr því skorið hvort riðu­veiki grein­ist.

Yfirvofandi hætta

Höfum við sofnað á verð­inum í bar­átt­unni við riðu­veik­ina?

„Í þessu til­viki þá er það að mínu mati ekki raunin,“ svarar Sig­ur­borg. Um það vitni sú stað­reynd að aldrei hafi komið upp hefð­bundin riða í Mið­fjarð­ar­hólfi áður. Árið 2008 greind­ist óhefð­bundið afbrigði riðu­veiki (NOR98) á bæ við Hrúta­fjörð, en það afbrigði er ekki smit­andi.  „Sauð­fjár­bændur í Miðfirði eru mjög með­vit­aðir um rið­una handan við ásinn. Þeir hafa því verið sér­stak­lega var­kárir. En af því að virkt riðu­svæði er í nokk­urra kíló­metra fjar­lægð hefur þetta vissu­lega verið yfir­vof­andi hætta.“

Frá og með árinu 2019 hefur riða verið stað­fest á 11 bæjum. Allir eru þeir á til­tölu­lega afmörk­uðu land­svæði í Vestur-Húna­vatns­sýslu ann­ars vegar og í miðjum Skaga­firði hins vegar. 

ÚtbreiðslanRiða hefur greinst víða um land síð­ustu ára­tugi. Rauður litur táknar bæi þar sem sjúk­dóm­ur­inn hefur greinst síð­ustu 7 ár. Sá guli til­felli á síð­ustu 8-25 árum. Sá græni riðutil­felli fyrir 26-50 árum og sá blái fyrir 51 ári eða meira.

Þrátt fyrir þennan fjölda, sem mikið hefur verið fjallað um í fréttum síð­ustu miss­eri, ítrekar Sig­ur­borg að mik­ill árangur hafi náðst við að hefta útbreiðsl­una frá því að aðgerðir í þá veru hófust form­lega árið 1986. Enn sé stefnt að útrýma riðu.

Þegar riða kemur upp á bæ má sam­kvæmt verk­lags­reglum ekki halda fé í tvö ár á eftir. Í tvo ára­tugi eru hins vegar sett höft á allt hólfið sem um ræðir og m.a. bannað að flytja fé á milli bæja sem og á öllu því sem mögu­lega getur flutt með sér smitefni, s.s. hey, torf, tæki og tól. 

„Við auð­vitað krossum fingur og vonum að þetta sé ein­skorðað við þennan bæ,“ segir Sig­ur­borg.

Flókinn en hraður undirbúningur aðgerða

Að flytja allt féð frá Bergs­stöðum í slát­ur­hús, og hræin þaðan í sorp­brennslu­stöð­ina Kölku á Suð­ur­nesjum, er viða­mikil og mann­afls­frek aðgerð. Fyrir utan þennan flutn­ing þarf svo að taka sýni úr heila hvers ein­asta dýrs. 

Það eru því mörg púsl sem þurfa að koma saman áður en haf­ist er handa, en vegna mik­ils umfangs verður að áfanga­skipta aðgerðum. Und­ir­bún­ingur hefur gengið með ótrú­legum hraða, allir hlut­að­eig­andi hafa lagst á eitt við að finna lausnir og hófust aðgerðir á mið­viku­dag. „Þetta er mjög þung­bært fyrir alla,“ segir Sig­ur­borg. „En það eina sem hægt sé að gera enn sem komið er.“

Von kviknar 

Vernd­andi arf­gerðin ARR fannst hér á landi nýverið, ræktun sauð­fjár með þessa arf­gerð auk ann­arra arf­gerða sem taldar eru vernd­andi gegn riðu er komin á fullt skrið. „Því hrað­ari útbreiðsla vernd­andi arf­gerða því betra, að 15–20 árum liðnum þurfum við von­andi ekki lengur að skera niður.“

Kjósa
9
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir (1)

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
  • PB
    Páll Bragason skrifaði
    Átakanlegt fyrir blessað fólkið að lenda í þessum hremmingum. En þar sem offramleiðsla er á lambakjöti, er þá ekki rakið að kaupa þessi bú út úr kerfinu, og gefa fólkinu þannig tækifæri til að snúa sér að einhverju öðru?
    0
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár