Grikkir skiluðu engum tillögum í dag - óánægja meðal evruríkjanna

Grikkir lögðu ekki fram neinar nýjar til­lögur á fundi fjár­mála­ráð­herra evru­ríkj­anna í dag og munu ekki gera það á leið­toga­fundi Evr­ópu­sam­bands­ríkj­anna í kvöld. Þetta hefur Jeroen Dijs­sel­bloem, for­seti evru­hóps­ins, stað­fest. Þrátt fyrir að engar til­lögur hafi verið lagðar fram hélt nýr fjár­mála­ráð­herra Grikk­lands, Euclid Tsaka­lotos, kynn­ingu fyrir hina fjár­mála­ráð­herrana á fund­inum í dag.

Grikkir ætla þess í stað að leggja fram til­lögur sínar á morgun. Dijs­sel­bloem sagði við blaða­menn að loknum fundi evru­hóps­ins í Brussel að hópnum hefði verið talin trú um að til­lög­urnar kæmu í dag. Hann greindi svo frá því að annar fundur verður hald­inn í gegnum síma á morgun. Þá mun Seðla­banki Evrópu meta stöð­una í Grikk­landi frá degi til dags. „Það er lít­ill tími til stefnu og hann stytt­ist bara eftir því sem við höldum áfram,“ sagði hann. Vandinn væri aðkallandi.

Undir það tók Johan Van Overt­veldt, fjár­mála­ráð­herra Belgíu, í sam­tali við fjöl­miðla. „Gríska hag­kerfið er í frjálsu falli, banka­kerfið meira og minna líka, svo við höfum ekki mik­inn tíma.“ Hann sagði hins vegar að eini fjár­mála­ráð­herr­ann sem virt­ist ekki gera sér grein fyrir því hversu áríð­andi er að finna lausn sé fjár­mála­ráð­herra Grikk­lands.

Leið­togar Evr­ópu­sam­bands­ríkj­anna koma nú einn af öðrum til fundar í Brussel. Jean-Claude Juncker, for­seti fram­kvæmda­stjórnar ESB, sagði við blaða­menn þegar hann kom á stað­inn að nú sé lausn á mál­inu undir Alexis Tsipras, for­sæt­is­ráð­herra Grikk­lands, komin. „Ég er alltaf til í að hitta hann til að ræða stöð­una,“ sagði hann.

Mark Rutte, for­sæt­is­ráð­herra Hollands, var myrkur í máli þegar hann kom á fund­inn. Hann sagði Grikki vera að taka mjög stóra áhættu og eina lausn vand­ans væri að ráð­ast í umbætur. Ef Grikkir komi ekki fram með almenni­legar til­lögur fljót­lega muni leið­togar evru­ríkj­anna ekki geta hjálpað þeim.

Angela Merkel Þýska­landskansl­ari tjáði sig einnig við fjöl­miðla á leið sinni inn á fund leið­toga Evr­ópu­sam­bands­ríkj­anna, en fund­ur­inn hefst klukkan 16. Merkel sagði enn ekki vera neinn grund­völl til samn­inga­við­ræðna við Grikki. Þó væru aðeins nokkrir dagar til stefnu. Hún hvatti til sam­stöðu í Evrópu og ábyrgðar hjá Grikkjum. Án sam­stöðu og án umbóta yrði ekki hægt að ganga frá mál­unum.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár