Lífeyrissjóðir hafa lánað 15 prósent minna til húsnæðiskaupa en í fyrra

Stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa verið að þrengja lána­skil­yrði sín til að reyna að draga úr ásókn í sjóðs­fé­lags­lán til hús­næð­is­kaupa. Það virð­ist vera að virka. Mun minna hefur feng­ist lánað hjá líf­eyr­is­sjóðum það sem af er ári en á sama tíma í fyrra.

Svo virðist sem viðleitni stærstu lífeyrissjóða landsins til að hægja á umferð lántöku vegna húsnæðiskaupa hjá sér sé að virka.
Svo virð­ist sem við­leitni stærstu líf­eyr­is­sjóða lands­ins til að hægja á umferð lán­töku vegna hús­næð­is­kaupa hjá sér sé að virka. Mynd: Birgir Þór Harðarson

Ný útlán líf­eyr­is­sjóða til sjóðs­fé­laga, að frá­dregnum upp- og umfram­greiðslum, dróg­ust saman um 15 pró­sent á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2019 miðað við sama tíma­bil í fyrra. Frá byrjun árs og til loka sept­em­ber­mán­aðar 2019 lán­uðu sjóð­irnir 65,9 millj­arða króna til sjóðs­fé­laga, að uppi­stöðu vegna hús­næð­is­kaupa, en á sama tíma­bili 2018 námu útlánin 77,9 millj­örðum króna. Því er klár sam­dráttur að eiga sér stað í útlánum líf­eyr­is­sjóða til sjóðs­fé­laga sam­hliða því að stærstu líf­eyr­is­sjóð­irnir hafa gert þrösk­uldana sem þarf að klífa til að fá lán hjá þeim hærri.

Þetta kemur fram í nýjum hag­tölum Seðla­banka Íslands um lif­eyr­is­sjóða­kerfið sem birtar voru í lok síð­ustu viku. Útlán í sept­em­ber­mán­uði voru 12 pró­sent lægri í ár en í fyrra. Það er þó aukn­ing frá þeirri stöðu sem var uppi í sumar, þegar sam­drátt­ur­inn var sem mestur. Í júlí, júlí og ágúst 2018 lán­uðu líf­eyr­is­sjóð­irnir alls 29,8 millj­arða króna til sjóðs­fé­laga sinna. Á sama tíma­bili í ár lán­uðu þeir 21,4 millj­arða króna. [adspot]Útlánin dróg­ust því saman um 28 pró­sent milli sumra.

Þrátt fyrir að upp­hæð­irnar sem sjóð­irnir hafa lánað hafi dreg­ist veru­lega saman er fjöldi veittra lána á fyrstu níu mán­uðum árs­ins nán­ast sá sami og hann var á sama tíma­bili í fyrra, eða 5.765. Það eru ein­ungis 14 færri lán en líf­eyr­is­sjóðir lands­ins veittu á fyrstu þremur árfs­fjórð­ungum árs­ins 2018. Með­al­talslán­veit­ing er því að drag­ast veru­lega saman. Hún var 13,5 millj­ónir króna í fyrra en er 11,4 millj­ónir króna nú, og 16 pró­sent lægri en á sama tíma­bili í fyrra.

Taka verðtryggðra lána eykst á ný

Athygli vekur að ásókn lands­manna í óverð­tryggð lán er meiri á fyrstu níu mán­uðum árs­ins 2019 en hún var á sama tíma­bili í fyrra. Þá voru um 76 pró­sent allra útlána líf­eyr­is­sjóða verð­tryggð en í ár hafa 61 pró­sent þeirra verið það, og þar af leið­andi 39 pró­sent óverð­tryggð. Þorri þeirrar sveiflu átti sér þó stað á fyrri hluta árs þegar verð­bólga var umtals­vert hærri en hún er nú og virð­ast íslenskir hús­næð­is­lán­tak­endur hafa verið vel á tánum gagn­vart þeim áhrifum sem hærri verð­bólga hefur á verð­tryggð lán. Í jan­úar síð­ast­liðnum voru til að mynda meiri­hluti nýrra útlána líf­eyr­is­sjóða til sjóðs­fé­laga óverð­tryggð. Það er ein­ungis í annað sinn í sög­unni sem það ger­ist. Hitt var í des­em­ber 2018, þegar verð­bólgan fór í 3,7 pró­sent.

Á þessu ári hefur verð­bólgan hins vegar hjaðnað hratt og er nú 2,8 pró­sent. Spár gera ráð fyrir því að hún verði komin við verð­bólgu­mark­mið Seðla­banka Íslands, 2,5 pró­sent, fyrir ára­mót. Samhliða hefur verð­tryggð lán­taka auk­ist skarpt. Í sept­em­ber 2019 voru 67 pró­sent allra útlána líf­eyr­is­sjóða verð­tryggð, sem er nán­ast sama hlut­fall og var í sama mán­uði árið áður.

Hafa rúmlega tvöfaldað markaðshlutdeild

Líf­eyr­is­sjóð­irnir hófu að bjóða upp á skap­legri lána­skil­yrði og kjör að nýju haustið 2015. Síðan þá hefur umfang þeirra á lána­mark­aði vaxið hratt. Í nýlegri skýrslu Grein­ingar Íslands­banka um íslenska íbúða­mark­að­inn kom fram að íslenskir lán­tak­end­ur, sem upp­fylla skil­yrði líf­eyr­is­sjóða fyrir lán­töku, taka frekar lán hjá þeim, enda geta sjóð­irnir boðið miklu betri kjör en t.d. bankar og íbúða­lána­sjóð­ir. Það sést á því að líf­eyr­is­sjóðir lands­ins eru nú beinir mót­að­ilar að 21 pró­sent af skuldum heim­il­anna og hlut­fallið hefur aldrei verið hærra. Það hefur tvö­fald­ast á mjög skömmum tíma, en árið 2016 var það tíu pró­sent.

[adspot]Stærstu líf­eyr­is­sjóðir lands­ins hafa hins vegar mark­visst verið að reyna að hamla sókn sjóðs­fé­laga sinna í sjóðs­fé­lags­lán und­an­farin miss­eri, meðal ann­ars með því að lækka láns­hlut­fall.

Afdrifarík ákvörðun verzlunarmanna

Líf­eyr­is­­sjóð­ur­ verzlunarmanna, greindi til dæmis frá því í byrjun októ­ber að sjóð­­ur­inn hefði breytt lána­­reglum sínum og lækkað fasta vexti á verð­­tryggðum lán­­um. Breyt­ing­­arnar á láns­rétt­inum fela í sér að skil­yrði fyrir lán­­töku eru þrengd mjög og hámarks­­fjár­­hæð láns er lækkuð um tíu millj­­ónir króna. Þá hefur sjóð­­ur­inn ákveðið að hætta að lána nýjum lán­tak­endum verð­­tryggð lán á breyt­i­­legum vöxt­um, en þau hafa verið einna hag­­kvæm­­ustu lánin sem í boði hafa verið á und­an­­förnum árum.

[links]Vextir þeirra lána standa áfram í stað í 2,26 pró­­sentum þrátt fyrir að ­stýri­vextir hafi lækkað þrí­vegis frá því að þeir voru festir þar í byrjun ágúst og aðrir líf­eyr­is­­sjóðir hafi lækkað sína breyt­i­­legu verð­­tryggðu vexti skarpt. Lægstu slíkir sem nú eru í boði eru 1,63 pró­­sent. Þeir vextir eru helm­ingur af skástu vöxtum sem íslenskir bankar bjóða sínum við­skipta­vinum upp á á sam­bæri­legum lán­um.

Um er að ræða við­bragð við því að Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna var kom­inn út fyrir þol­mörk þess sem hann ræður við að lána til íbúð­ar­kaupa. Annað hvort þurfti sjóð­ur­inn að fara að selja aðrar eignir til að lána sjóðs­fé­lögum eða tak­marka útlán. Hann valdi síð­ari kost­inn. Sjóðs­fé­lags­lán voru um sex pró­sent af heild­ar­eignum sjóðs­ins í lok árs 2015 en þau eru nú um 13 pró­sent. Alls námu sjóðs­fé­laga­lánin um 107 millj­örðum króna í byrjun októ­ber og um 25 millj­arðar króna til við­bótar áttu að bæt­ast við þá tölu þegar tekið var til­lit til fyr­ir­liggj­andi umsókna um end­ur­fjár­mögn­un.

Stýrivaxtalækkanir skila sér ekki til neytenda

Raunar er það svo að hröð stýri­vaxta­lækkun Seðla­banka Íslands – vextir hafa lækkað um 1,5 pró­sentu­stig síðan í maí – skilar sér ekki nema að tak­mörk­uðu leyti í lána­kjör á hús­næð­is­mark­aði.

Líf­eyr­is­sjóða­lán, sem standa sífellt þrengri hópum sjóðs­fé­laga til boða, bjóða áfram sem áður lang­bestu kjörin þar en aðrir, sem upp­fylla ekki lán­töku­skil­yrði líf­eyr­is­sjóða, eiga lítið eigið fé eða þurfa að taka lán umfram hámark sjóð­anna, þurfa að taka lán hjá við­skipta­bönk­unum. Þegar horft er á það lána­form sem hefur verið hag­stæð­ast und­an­farin ár, breyti­lega verð­tryggða vexti, eru lægstu slíkir vextir banka (Lands­bank­ans, sem býður upp á 3,25 pró­sent vexti á grunn­lán upp að 70 pró­sent af láns­fjár­hæð) nán­ast tvisvar sinnum hærri en lægstu vextir líf­eyr­is­sjóðs (Almenna líf­eyr­is­sjóðs­ins, sem býður upp á 1,63 pró­sent vexti fyrir 70 pró­sent af láns­fjár­hæð).

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Kjaramál

Mest lesið

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
5
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár