Lífeyrissjóður verzlunarmanna þrengir lánsskilyrði – Geta ekki lánað mikið meira

Einn stærsti líf­eyr­is­sjóður lands­ins er hættur að lána nýjum lán­tökum á breyti­legum verð­tryggðum vöxtum, hefur þrengt lána­reglur sínar mjög og lækkað hámarks­lán sem hann veitir. Færri munu geta nálg­ast hag­stæð lán fyrir vikið.

Aðgengi hluta landsmanna að hagstæðum lánum hefur verið skert með ákvörðun stjórnar Lífeyrissjóðs verzlunarmanna
Aðgengi hluta lands­manna að hag­stæðum lánum hefur verið skert með ákvörðun stjórnar Líf­eyr­is­sjóðs verzlunarmanna Mynd: Birgir Þór Harðarson

Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna greindi frá því í morgun að sjóð­ur­inn hefði breytt lána­reglum sínum og lækkað fasta vexti á verð­tryggðum lánum. Breyt­ing­arnar á láns­rétt­inum fela í sér að skil­yrði fyrir lán­töku eru þrengd mjög og hámarks­fjár­hæð láns er lækkuð um tíu millj­ónir króna. Þá hefur sjóð­ur­inn ákveðið að hætta að lána nýjum lán­tak­endum verð­tryggð lán á breyti­legum vöxtum, en þau hafa verið einna hag­kvæm­ustu lánin sem í boði hafa verið á und­an­förnum árum. Vextir þeirra lána standa áfram í stað í 2,26 pró­sentum þrátt fyrir að stýri­vextir hafi lækkað tví­vegis frá því að þeir voru festir þar í byrjun ágúst og aðrir líf­eyr­is­sjóðir hafi lækkað sína breyti­legu verð­tryggðu vexti skarpt. Lægstu slíkir sem nú eru í boði eru 1,64 pró­sent.

[adspot]Um er að ræða við­bragð við því að Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna sé kom­inn út fyrir þol­mörk þess sem hann ræður við að lána til íbúð­ar­kaupa. Sjóð­ur­inn greinir frá því að eft­ir­spurn eftir sjóðs­fé­laga­lánum hafi auk­ist mikið frá því að lána­reglur voru rýmkaðar fyrir nákvæm­lega fjórum árum, í októ­ber 2015. Á þeim tíma voru sjóðs­fé­laga­lán um sex pró­sent af heild­ar­eignum sjóðs­ins en þau eru nú um 13 pró­sent. Alls nema sjóðs­fé­laga­lánin nú um 107 millj­örðum króna og um 25 millj­arðar króna til við­bótar bæt­ast við þá tölu þegar tekið er til­lit til fyr­ir­liggj­andi umsókna um end­ur­fjár­mögnun.

Í frétt sem sjóð­ur­inn birti í morgun segir enn fremur að mán­uð­ina júlí, ágúst og sept­em­ber hafi umfang láns­um­sókna þre­fald­ast miðað við sama tíma í fyrra. „Öll fyr­ir­liggj­andi gögn benda til áfram­hald­andi vaxtar. Þessi vöxtur leiðir að óbreyttu til ójafn­vægis í áhættu­dreif­ingu sjóðs­ins og því óhjá­kvæmi­legt að stjórn bregð­ist við því.“

Því hefur verið ákveðið að þrengja mjög rétt til lán­töku hjá sjóðnum, en áður gat hver sem er sem hafði greitt einu sinni til hans tekið þar lán. Nú þurfa sjóð­fé­lagar að hafa greitt iðgjöld í sex af tólf síð­ast­liðnum mán­uðum, að hafa greitt iðgjöld í 36 mán­uði fyrir umsókn eða maka­líf­eyr­is­þegar þar sem maki láns­um­sækj­anda hafði átt láns­rétt. Þá er veit­ing nýs láns til end­ur­fjár­mögn­unar eldra láns hjá líf­eyr­is­sjóðnum háð því skil­yrði að við­kom­andi sé með virkan láns­rétt.

Líf­eyr­is­sjóður verzlunarmanna hefur líka ákveðið að halda vöxtum á óverð­tryggðum lánum með föstum vöxtum til þriggja ára áfram í 5,14 pró­sent með því að breyta því hvernig þeir eru ákveðnir. Gömlu lána­regl­urnar voru þannig að kjörin ákvörð­uð­ust á þróun rík­is­skulda­bréfa­flokks (RIKB 31) þrjá alm­an­aks­mán­uði aftur í tím­ann með ákveðnu álagi. Miðað við útreikn­inga Kjarnans hefðu óverð­tryggðu föstu vext­irnir átt að lækka í tæp­lega 4,7 pró­sent ef gömlu lána­regl­unum hefði verið fylgt. Þess í stað eru þeir, líkt og áður sagði, áfram 5,14 pró­sent.

Ekki í takti við það sem lagt var upp með

Hámarks­fjár­hæð lána er lækkuð úr 50 millj­ónum króna í 40 millj­ónir króna, eða um 20 pró­sent. Þá eru fastir verð­tryggðir vextir lækk­aðir í 3,2 pró­sent en breyti­legir verð­tryggðir vextir halda áfram að vera 2,26 pró­sent.

Ákvörðun um að hækka vexti á þeirri lána­teg­und í 2,26 pró­sent var tek­inn á stjórn­ar­fundi 24. maí síð­ast­lið­inn og sam­hliða var ákveðið að hætta að að láta ávöxt­un­ar­kröfu ákveð­ins skulda­bréfa­­­­flokks stýra því hverjir vext­irnir eru og í stað þess myndi stjórn sjóðs­ins ákveða þá. Þegar þessi ákvörðun var tekin voru verð­tryggðir vextir Líf­eyr­is­sjóð verzlunarmanna þeir lægstu sem íbúð­ar­kaup­endum stóðu til boða.

[adspot]Breyt­ingin tók gildi í byrjun ágúst og hafði afdrifa­ríkar afleið­ingar innan stjórnar sjóðs­ins. Stjórn VR, sem til­nefnir helm­ing stjórn­ar­manna í sjóðn­um, ákvað að leggja fram til­lögu í full­trúa­ráði VR um að aft­ur­kalla umboð allra stjórn­ar­manna í líf­eyr­is­sjóðn­um. Ástæðan var sögð algjör trún­að­ar­brestur milli stjórn­­­ar­­manna sem VR skipar og stjórnar félags­­ins vegna ákvörð­unar sjóðs­ins um að hækka breyt­i­­lega verð­­tryggða vexti sem sjóðs­fé­lögum bjóð­­ast til hús­næð­is­­kaupa um tæp tíu pró­­sent.

Eftir umtals­verða reiki­stefnu tóku nýir stjórn­ar­menn á vegum VR sæti í stjórn sjóðs­ins í lok ágúst síð­ast­lið­ins. Síðan þá hafa vext­irnir sem ollu stjórn­ar­skipt­unum, á breyti­legum verð­tryggðum lánum, hins vegar ekki hagg­ast og nú hefur bæst við að þetta lána­form stendur ekki lengur nýjum lán­tak­endum til boða.

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir að þessi staða sé ekki í takti við það sem lagt var upp með þegar skipt var um fólk í stjórn­inni. Sér­fræð­ingar sjóðs­ins hafi hins vegar kom­ist að þeirri nið­ur­stöðu að hann gæti ekki lánað mikið meira. „Það þarf að fara í kerf­is­breyt­ingu á útlánum líf­eyr­is­sjóða til sjóð­fé­laga og færa þau í sam­ræmi við það sem er að ger­ast í lönd­unum í kringum okkur.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár