Björgvin Páll sækist eftir 1.-2. sæti hjá Framsókn

Björgvin Páll Gúst­avs­son lands­liðs­mark­vörður í hand­bolta hefur stað­fest að hann gefi kost á sér í 1.-2. sæti hjá Framsókn í Reykja­vík fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar.

Björgvin Páll Gústavsson er best þekktur sem handboltamarkvörður, en hann hefur einnig beitt sér í málefnum barna með ADHD í skólakerfinu á undanförnum árum.
Björgvin Páll Gúst­avs­son er best þekktur sem hand­bolta­mark­vörður, en hann hefur einnig beitt sér í mál­efnum barna með ADHD í skóla­kerf­inu á und­an­förnum árum. Mynd: EPA

Björgvin Páll Gúst­avs­son hand­bolta­mark­vörður hefur stað­fest að hann sæk­ist eftir 1.-2. sæti á lista Fram­sókn­ar­flokks­ins í Reykja­vík fyrir kom­andi borg­ar­stjórn­ar­kosn­ingar. Flokk­ur­inn, sem á engan borg­ar­full­trúa í dag, kemur til með að stilla upp á lista fyrir kom­andi kosn­ingar í borg­inni.[links]

Björgvin Páll segir í færslu á Facebook í dag að honum langi að taka ábyrgð á því að gæta vel­ferðar barna og ann­arra við­kvæmra hópa í sam­fé­lag­inu.

„Börn eru ekki með kosn­inga­rétt og þeim sem stjórna er falið mjög mik­il­vægt hlut­verk sem snýr að vel­ferð barna. Það má gera betur þegar kemur að því að for­gangs­raða rétt­indum og vel­ferð barna með sýni­legri stefnu­mótun og ákvörð­un­ar­töku. Það er kom­inn tími á að við jöfnum leik­inn og að allir fái jöfn tæki­færi. Íþrótt­irnar björg­uðu mér og er það minn draumur að heyra fleiri og fleiri börn segja að skól­inn hafi bjargað þeim. Með þeirri ákvörðun að fara í fram­boð er ég að fylgja hjart­anu og minni ástríðu,“ segir í færslu Björg­vins Páls í dag.

[adspot]

Það vakti mikla athygli í síð­ustu viku er Björgvin Páll greindi frá því að hann hefði verið hvattur í fram­boð og væri að máta sig borg­ar­stjóra­stjól­inn.

Í færslu sinni í dag seg­ist Björgvin Páll hafa not­ast við orðið „borg­ar­stjóra­efni“ til þess að gera fólki grein fyrir þeirri trú sem hann hafi á Framsókn fyrir kom­andi kosn­ingar í borg­inni.

Segist hann vilja „vera hluti af þeirri veg­ferð, hvort sem það væri að leiða flokk­inn eða í öðru sæti á lista. Ég tel að í hvoru sæt­inu sem er geti ég orðið sá leið­togi innan kerf­is­ins sem að ég tel að borgin og börnin þurfi á að halda. Börnin okkar eiga að fá hásætið næstu 4 árin og við þurfum öll að taka þátt í að hlúa að þeim,“ skrifar Björgvin Páll.

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

kosningar2022

Mest lesið

5
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár