Sjúklingur lagður inn og Landspítali á hættustig

Einn ein­stak­lingur hefur verið lagður inn á Land­spít­ala með COVID-19. Þetta þýðir að spít­al­inn þarf að færa sig af við­bún­að­ar­stigi yfir á hættu­stig.

Már Kristjánsson, yfirlæknir á smitsjúkdómadeild Landspítala.
Már Krist­jáns­son, yfir­læknir á smit­sjúk­dóma­deild Land­spít­ala. Mynd: Lögreglan

Einn sjúk­lingur hefur verið lagður inn á Land­spít­ala með COVID-19, en Már Krist­jáns­son yfir­læknir á smit­sjúk­dóma­deild spít­al­ans stað­festi þetta við RÚV í morgun. Þetta er í fyrsta sinn síðan 13. maí sem ein­hver liggur á sjúkra­húsi hér á landi veikur af völdum kór­ónu­veirunnar.

Fram kemur í frétt RÚV að sjúk­ling­ur­inn sé á legu­deild og að við­bún­að­ar­stig á spít­al­anum verði nú hækkað úr við­bún­að­ar­stigi yfir á hættu­stig.

Rík­is­stjórnin mun halda blaða­manna­fund kl. 11 þar sem búast má við því að sótt­varna­ráð­staf­anir verði hertar, en rætt hefur verið um að tveggja metra reglan verði tekin upp að nýju og fjölda­tak­mörk sam­komu­banns hert.

Í til­kynn­ingu frá stjórn­völdum um fund­inn eru fjöl­miðla­menn beðnir um að „virða fjar­lægð­ar­mörk bæði á meðan á fund­inum stendur og að honum loknum þegar við­töl fara fram.“

Kjósa
0
Hvernig finnst þér þessi grein? Skráðu þig inn til að kjósa.

Veistu meira?

Athugasemdir

Skráðu þig inn til að skrifa athugasemd eða kjósa.
Allar athugasemdir eru ábyrgð á þeirra sem þær skrifa. Heimildin áskilur sér rétt til að fjarlægja ærumeiðandi og óviðeigandi athugasemdir. Hægt er að láta vita af athugasemdum með því að smella á Tilkynna.
Tengdar greinar

Covid-19

InnlentCovid-19

Hóp­sýk­ing greind­ist eftir þorra­blót í Brúarási – Guðrún Haf­steins­dóttir meðal gesta

Enn ein mat­ar­sýk­ing er komin upp eftir þorra­blót en í þetta sinn er það eftir blót sem haldið var í Brúarási í Jök­ulsár­hlíð á Fljóts­dals­hér­aði á laug­ar­dag­inn. Guðrún Haf­steins­dóttir, for­manns­efni Sjálf­stæð­is­flokks­ins sótti blótið. Samkvæmt Aust­ur­frétt eru Heil­brigð­is­eft­ir­lit Aust­ur­l­ans (HAUST) og Heil­brigð­is­stofnun Aust­ur­lands (HSA) að vinna að því að rekja upp­runa mat­ar­sýk­ingar sem upp kom á þorra­blóti í Brúarási á laug­ar­dags­kvöld....

Mest lesið

6
Innlent

Konur í meiri­hluta í hóp­upp­sögnum en jafn­rétt­is­mat óþarft að mati Reykja­vík­ur­borgar

66 pró­sent þeirra sem misstu vinn­una hjá Reykja­vík­ur­borg í hóp­upp­sögnum und­an­farna mán­uði eru konur. Borgin taldi óþarft að gera jafn­rétt­is­mat og sagði gild­andi stefnur hald­ast óbreyttar. „Það að stefn­urnar hald­ist óbreyttar þýðir ekki að breyt­ing­arnar sem verið er að leggja til hafi ekki jafn­rétt­is­á­hrif,“ segir lektor í kynja­fræði.

Mest lesið

Mest lesið í vikunni

Mest lesið í mánuðinum

3
Viðtal

Íslenskur læknir varpar nýju ljósi á lífs­hættu­legan með­göngu­sjúk­dóm

Nítján ára gömul lá Silja Rut Ragn­ars­dóttir nær dauða en lífi á skurð­ar­borði Land­spít­al­ans eftir alvar­legt til­felli með­göngu­eitr­unar. Íslenskur vís­inda­maður í Banda­ríkj­unum, Jóhann Elí Guð­jóns­son húð­læknir, leiðir braut­ryðj­andi rann­sóknir sem varpa nýju ljósi á hvers vegna sjúk­dóm­ur­inn kemur fram. Hann telur mögu­legt að þróa lyf við sjúk­dómnum sem bjargað gæti manns­lífum.
6
Viðtal

Ást­leysið er sárt

Nánd er nær­ing, nauð­syn­leg eins og matur. Tæpur helm­ingur fólks elst upp í óör­uggum tengslum sem geta komið niður á tengslum og ást­ar­sam­böndum á full­orð­ins­árum, jafn­vel ógnað heilsu, enda er „tengsla­myndun ein af grunn­for­sendum far­sældar“, að sögn klíníska sál­fræð­ings­ins Guð­brands Árna Ísberg. Í bók sinni, Í augum þínum verð ég til, fjallar hann um getu okkar til að mynda tengsl og ást­ina í öllum sínum myndum.

Mest lesið í mánuðinum

Mest lesið undanfarið ár